Iðnaðarmál - 01.01.1978, Blaðsíða 21

Iðnaðarmál - 01.01.1978, Blaðsíða 21
Nýjungar í íslenskum veiðarfœraiðnaði Blýteinatógið veldur byltingu í netaveiðum Við Stakkholt 4 i Reykjavik er eitt af eldri og stærri fyrirtækjum landsins, Hampiðjan hf. Saga hennar er um margt dæmigerð fyrir íslenskan iðnað og þá að- stöðu, sem honum hefur verið búin í áranna rás, og þvi verður hún rakin stuttlega hér, en tilefni þess að blaðamaður frá Iðnaðarmálum heimsótti fyrirtækið, var að kynnast nýjungum í veiðarfæra- og plast- röragerð, sem þar eru á döfinni. Hampiðjan hf. var stofnuð árið 1934, þegar at- vinnuleysisvofa kreppunnar var við hvers manns dyr. Nokkrir yfirmenn á togaraflotanum, með Guð- mund S. Guðmundsson vélstjóra í fararbroddi, beittu sér þá fyrir því að íslendingar færu sjálfir að framleiða veiðarfæri. Tilgangurinn var tvíþættur. í fyrsta lagi að skapa atvinnu og í öðru lagi að fram- leiða veiðarfæri eftir fyrirsögn íslenskra sjómanna, sem best þekktu aðstæður á fiskimiðunum. Rekstur fyrirtækisins gekk allvel, en það var þó fyrst á stríðsárunum, sem hann tók mikinn fjörkipp. Þá háttaði svo til, að ekki var unnt að fá tilbúin veiðarfæri til landsins, en hins vegar var hægt að fá óunninn hamp. Þáverandi ríkisstjórn sneri sér til Hampiðjunnar og bað hana að vinna úr hampinum fyrir landsmenn, á meðan stríðið stæði. Þá var unnið nótt og dag í Hampiðjunni í nokkur ár og hún fram- leiddi garn fyrir netagerðir auk þess sem hún not- aði til eigin framleiðslu. Má hiklaust fullyrða, að hún hafi bjargað íslenskum sjávarútvegi og þar með efnahag þjóðarinnar allrar, því ólík hefðu kjör ís- lendinga orðið, hefðu þeir ekki dregið fisk úr sjó á stríðsárunum. En það gleymist oftast fljótt sem vel er gert og á því hefur íslenskur iðnaður oft fengið að kenna. Þegar hamagangur nýríkrar þjóðar eftirstríðsár- anna hófst með öllum hans furðulegu hagvísindum, hafði enginn áhyggjur af fyrirtækinu, sem bjargaði sjávarútveginum í stríðinu, nema eigendur þess. Innflutningur veiðarfæra var að nafninu til háður kvóta, en hann var hærri en nam þörf landsmanna, og gengið var að auki kolvitlaust skráð fyrir inn- lendan iðnað. Á þessum árum lá við að saga Hamp- iðjunnar yrði öll, og eitt árið var ekkert framleitt, nema til þess að viðhalda birgðum. Upp úr 1950 var gengið leiðrétt og þá óx fyrir- tækinu ásmegin að nýju. Nýjar vélar voru keyptar og framleiðslan jókst jafnt og þétt. Árin 1964 og 1965 urðu þáttaskil í rekstrinum. Þá ruddu gerviefni sér braut í botnvörpum og togaraskipstjórar litu ekki við vörpum úr hampi lengur. Þá þurftu forráða- menn Hampiðjunnar að taka skyndiákvörðun um í þessari samstæðu eru innfluttu plastkornin brædd upp og þræðir síðan dregnir i gegnum köld böð og undnir upp á spólur. IÐNAÐARMÁL 15

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.