Iðnaðarmál - 01.01.1978, Síða 25

Iðnaðarmál - 01.01.1978, Síða 25
Sterkir bobbingar framleiddir í Odda — Hvað vinna margir við þessa framleiðslu? — Þeir eru frá fimm til sjö. Við höfum smíðað all- ar vélar og mót sjálfir, sem til þessarar framleiðslu þarf, nema suðuvélarnar sjálfar. Við framleiðum í kringum 2000 stykki á ári, en gætum framleitt helm- Hér bíður framleiðslan viðskiptavina, á meðan fluttir eru inn ingi meira, eins og áður sagði, ef markaður væri bobbingar, sem framleiðendur telja ekki eins sterka. fyrir hendi. Vélsmiðjan Oddi á Akureyri hóf fyrir nokkrum árum framleiðni á bobbingum fyrir botnvörpur, en þeir voru áður allir fluttir inn, mestmegnis frá Bretlandi og Þýskalandi. Kristján Jóhannesson og Torfi Guðmundsson sögðu Iðnaðarmálum frá þessari nýjung í íslensk- um iðnaði. — Við teljum okkur mjög vel samkeppnisfæra við innflutning, þegar bæði verð og gæði eru borin saman. Við framleiðum um helming af þeim bobb- ingum sem notaðir eru hérlendis, en þótt við gæt- um framleitt fyrir allan flotann, kjósa samt margir útgerðarmenn heldur að kaupa bobbinga erlendis. — Eru ykkar bobbingar frábrugðnir þeim inn- fluttu? — Já, við teljum að þeir séu sterkari en þeir bobbingar, sem inn eru fluttir og henti því einkum betur, þegar togað er á ósléttum botni. Bobbing- arriir eru framleiddir sem tvær hálfkúlur sem soðnar eru saman. Það reynir mjög mikið á þessi sam- skeyti, þar sem þau eru þar á belg kúlunnar sem dregst eftir botninum, fjærst vírnum sem bobbing- arnir eru þræddir upp á. Á þessi samskeyti er soðin sérstök gjörð til þess að hlífa þeim og hefur hún yfirleitt verið höfð 7 sm breið. Við höfum farið út í það að sjóða 12 sm breiða gjörð á samskeytin og þar utan á höfum við soðið með sérstakri harðsuðu sérstaka krómblöndu, og hún endist ákaflega vel, þótt togað sé á hraunbotni. Þetta eykur auðvitað framleiðslukostnaðinn, og því fylgir sá böggull fyrir okkur, ef svo má til orða taka, að eftirspurnin minnkar raunverulega, því að bobbingarnir verða svo miklu sterkari að mun sjaldnar þarf að endur- nýja þá! — Hafið þið reynt fyrir ykkur með útflutning? — Já, við höfum þreifað fyrir okkur bæði í Fær- eyjum og Noregi. Norðmenn hafa verið heldur treg- ir til þess að kaupa af okkur, enn sem komið er. Það stafar mestmegnis af því, að þeir toga yfirleitt á mjúkum sandbotni, og því njóta kostir okkar bobbinga sín ekki eins vel þar. Færeyingar toga hins vegar mikið á hraunbotni og þess vegna gerum við okkur meiri vonir um við- skiptin þar, og þeir hafa tekið fyrstu sýnishornum okkar fremur vel. — Eruð þið að brydda upp á fleiri nýmælum í framleiðslu? Þeir Kristján og Torfi líta hvor á annan. — Það er nú varla að við þorum að segja þér frá öðru máli, en það er óneitanlega dálítið dæmigert fyrir þann skilning, sem okkur finnst íslenskur iðnaður njóta á borði. Það er um svokallaða millibobbinga, sem eru steyptir járnhólkar, hafðir á milli bobbinganna á vírnum, svo rétt bil haldist á milli þeirra. Þeir eru fluttir inn fyrir um 400 milljónir króna árlega. Úr framleiðslusal. IÐNAÐARMÁL 19

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.