Iðnaðarmál - 01.01.1978, Side 26

Iðnaðarmál - 01.01.1978, Side 26
Hér sést harðsuðan á belgnum glögglega. Þessar gerðir taka við mjög miklu sliti, einkum þeg- ar togað er á slæmum botni, og þess vegna endast bobbingarnir sjálfir mun betur. Þegar við framleiðum bobbingana, fellur til mik- ið af afgöngum, sem nota má til framleiðslu á milli- bobbingum. Þá yrði járnið brætt upp og þeir steypt- ir úr því. Við fengjum hráefnið þannig að segja má ókeypis, því enda þótt við flytjum brotajárnið út fæst ekki meira fyrir það en flutningskostnaðurinn, svo þetta er má segja ókeypis sorphirðing. Við gætum smíðað nær öll tæki til þess að framleiða millibobbingana, nema kannski suðupottinn, en við áætlum að það kosti 50-70 milljónir króna að koma svona framleiðslu í fullan gang. Hún myndi spara um 400 milljónir króna í innflutningi, eins og við sögðum áðan. En þarna stendur hnífurinn í kúnni. Okkur hefur ekki einu sinni tekist að fá tveggja milljóna króna lán til þess að koma framleiðslunni af stað, og það er ekki þannig búið að íslenskum iðnaði í dag að við höfum bolmagn til þess að koma henni af stað með þessu móti. Það eru því horfur á því að við höldum áfram að eyða 400 milljónum króna árlega í erlendum gjaldeyri fyrir algerlega óþarfan innflutning! Flothringjaframleiðsla færist inn í landið Keyptum áður af Norðmönnum — seljum þeim nú Fyrirtækið Piasteinangrun á Akureyri hóf i fyrra- haust framleiðslu á flothringjum fyrir net og nú i ár á trollkúlum. Framleiðslan hefur gengið vel og fyr- irtækið hefur flutt út mikið af flothringjum og er nú að þreifa fyrir sér með útflutning á trollkúlum. Fyrirtækið Plasteinangrun er nú að mestu eign Iðnaðardeildar Sambandsins og KEA. Það var stofnað árið 1961 og var þá hlutafélag í eigu ein- staklinga. Þá framleiddi fyrirtækið eingöngu ein- angrunarplast og er enn meðal stærstu framleið- enda á því sviði og framleiddi nær 6600 rúmmetra af því á síðasta ári. Árið 1966 hófst einnig framleiðsla á plastpokum og er hún enn í gangi.

x

Iðnaðarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.