Iðnaðarmál - 01.01.1978, Qupperneq 30
Við sjáum hér að neðan málsmeðferðina á upp-
götvaraskrifstofunni. Örlagamarkið er á næsta þrepi
fyrir aftan það sem við köllum hér nálaraugað.
Skipurit yfir gang mála
Mat á uppgötvun
..Nálaraugaö"
Stjórn verksins
Lýsing og teikningar sendar inn
til uppgötvaraskrifstofunnar.
Skrifstofan metur málið ókeypis
og sendir það eftir samkomulagi
til frekari athugunar, þar sem
kannað er tæknilegt og við-
skiptalegt gildi málsins og einn-
ig fréttagildi. Viðskiptavinur
greiðir kostnaðinn af því.
Skrifstofan ákveður að fenginni
umsögn áðurnefndra aðila, hvort
leitað skuli eftir fjárstuðningi.
Skriflegur samningur er gerður
milli uppgötvara og skrifstofu,
en hann er forsenda opinbers
stuðnings.
Sjóðsstjórn metur málið og gef-
ur svar af eða á um stuðning.
Uppgötvaraskrifstofan stjórnar
ráðstöfun fjárveitingarinnar.
Tilraunaeintak er gert og prófað
og möguleikar á viðskiptasvið-
inu metnir.
Sé Ijóst að fjárhagslegar for-
sendur séu fyrir framleiðslunni
tekur skrifstofan að sér að selja
sérleyfi á framleiðslunni fyrir
skjólstæðinginn.
Á grundvelli þessa árangurs og góðra sambanda
skrifstofunnar við iðnaðinn hefur skrifstofan orðið
virkur aðili í dreifingu rannsóknarupplýsinga í iðn-
aðinum. i því sambandi hefur uppgötvaraskrifstof-
an fengið til liðs við sig reyndan sérfræðing, sem að
staðaldri heimsækir stofnanir og fyrirtæki til þess
að leita uppi verkefni, sem hentað gætu iðnaðinum,
tíl dæmis með skjótri fjármögnun.
Eftir fenginni reynslu okkar hafa 2-5% af inn-
komnum uppgötvunum möguleika á því að verða
nothæfar, sem er í samræmi við reynslu erlendra
aðila.
Sérleyfadeild dönsku
uppgötvunarmiðstöðvarinnar
73/74 74/75 75/76 76/77 ÁR
Samanlögð velta 15 uppgötvana
danskra króna í milljónum
1 2 3 4 5 6 7 AR
Á uppgötvaraskrifstofunni vinna nú 11 fastráðnir
starfsmenn og 3 ráðgefandi sérfræðingar. Skrif-
stofan nýtur síðan þjónustu tölvufyrirtækis, sem
vinnur úr gögnum og dreifir upplýsingum milli upp-
götvara og þeirra, sem hagnýta sér störf þeirra.
Stjórnendur skrifstofunnar gera sér vonir um að hún
verði fjárhagslega sjálfstæð á næsta áratug, eins
og gert er ráð fyrir í framtíðaráætlun hennar.
24
IÐNAÐARMÁL