Iðnaðarmál - 01.01.1978, Blaðsíða 33

Iðnaðarmál - 01.01.1978, Blaðsíða 33
vafa um heilsufar þitt, kominn yfir fertugt, með of háan blóð- þrýsting, í fullmiklum holdumeða veill fyrir hjarta, er ráðlegt að fara í allsherjar læknisskoðun áður en þú tekur upp áætlun um líkamsþjálfun og þrekæfingar. 3. Nægileg hvíld Athugun á lífsháttum þeirra sem hafa orðið þekktir fyrir ó- þrjótandi þrek og dugnað sýna jafnan að þeir hafa tileinkað sér aðferðir eða ráð til að taka sér smáhvíldir inn á milli, þegar þörf krefur. Hinn atorkusami Kennedy forseti átti það til, þegar ráð- stefnur í Hvíta húsinu voru komnar í sjálfheldu, að fyrir- skipa 5 mínútna hlé, og meðan aðrir fengu sér að reykja og sötruðu kaffi hvíldi hann höfuðið á skrifborðinu sínu og dottaði. Með þessum kríublundi tókst honum að hreinsa hugann og hefja síðan viðureignina á ný með endurnýjuðum krafti. Hin eðlilega líffræðilega hrynjandi verks er fólgin í dreifingu smá- hvílda yfir vinnutimann. Það er aðefrðin til að vinna með bestum afköstum og minnstu þreytu. i Svíþjóð var gerð tilraun með 10 röska menn. Þeim var gefin klukkustund til að framkvæma hálftíma samstætt verk á þjálfun- sig í hálfa mín. Þessi sérstaka aðferð er e. t. v. ekki sú besta við allan þorra iðnaðarstarfa, en líf- fræðilegar tilraunir staðfesta gildi þess að hafa hvíldarstudir fleiri. Tilraunir á fjölmennum hópum verksmiðjufólks í Dort- mund sýndu, að þegar tekin var upp 5 mínútna hvíld í enda sér- hverrar vinnustundar minnkaði þreytan og framleiðslan jókst um allt að 13%. Góður nætursvefn er einnig blessunarríkur. Hóprannsóknir í Kanada leiddu í Ijós að fólki sem fær minna en 7 stunda svefn á nóttu er hættara við að þjást af kvíða, taugaspennu og þreytu en þeir sem að staðaldri sofa lengur. Ef einni klukkustund var síðan bætt við svefntíma hinna fyrrnefndu í einn mánuð urðu þessi svefnleysiseinkenni minna áberandi. Að mánuði liðnum hafði dregið úr kvíðaköstum þeirra og þreytu og þeir voru færari um að mæta erfjðleikum og streitu hins daglega lífs. Svefninn er náttúruleg endur- næring. Og sama er að segja um reglulegt leyfi frá störfum. Dr. Beric Wright, heilbrigðisráðgjafi hjá Institute of Directors, hefur þetta að segja: ,,Sumarleyfið er sennilega heilladrýgsta trygg- ingin gegn þreytu og sjúkdóm- um. Og samt kemur í Ijós við at- artæki. Sumir unnu það í einni 30 mínútna lotu og hvíldu sig síðan i 30 mínútur. Aðrir unnu í fleiri styttri lotum og tóku smá- hvíldir á milli. Þegar farið var að rannsaka árangurinn kom í Ijós að hagkvæmasta aðferðin til að vinna verkið var að deila klukku- stundinni niður í 30 sek. hluta, vinna siðan i hálfa mín. og hvila hugun að um 6% breskra fram- kvæmdastjóra taka sér alls eng- in leyfi frá störfum. Sumir segj- ast ekki hafa tima til þess, aðrir óttast að ef þeir slaki á klónni oq taki sér hvíld muni þeim reynast erfitt að komast aftur í takt við starfið Franskur læknir sem hefur sér- staklega rannsakað þetta atriði leggur til, að þegar gerð sé áætl- un um leyfi ættu menn að leitast við að leiðrétta hið „líffræðilega ójafnvægi“ í lífi sínu. Ef starfið er leiðigj arnt og fábreytilegt þurfa menn á örvun og tilbreyt- ingu að halda. Ef þeir eiga við persónuleg ágreiningsmál að stríða heima fyrir eða á skrifstof- unni þurfa þeir sennilega fyrst og fremst algjöra einangrun ofur- lítinn tíma. Á þennan hátt er hægt að gera leyfin sannkallaða heilsubót - einkum séu þau tek- in með stuttu millibili. Flestir læknar telja að betra sé að taka tvö eða þrjú styttri leyfi á ári en að eyða öllu leyfinu í einu löngu leyfi. 4. Hófsemisvenjur Reykingar og áfengisneysla eru dýrar aðferðir til að eyði- leggja heilsuna. Læknisfræðileg- ar sannanir eru fyrir því að ofur- litið af því sem þú telur áfenginu til ágætis getur gert þér gott - það er taugaróandi, örvar blóð- rás, bætir meltingu og virðist jafnvel lengja lífið. (Bandarísk- ar rannsóknir sýna að hófsmenn á áfenga drykki lifa lengur en ó- hófsmenn eða algjörir bindindis- menn). En sé farið yfir hófsemis- mörkin getur áfengið orðið ban- vænt. i Bandaríkjunum er áfeng- ið talið mesti dauðavaldurinn á eftir krabbameini og hjartasjúk- dómum og í Bretlandi veldur það árlega dauða þúsunda i um- ferðaslysum, sjálfsmorðum og af skorpulifur. Jafnvel „samkvæm- isdrykkja'1 hefur hættu i för með sér. Sumir taugasérfræðingar telja að nokkrar heilafrumur eyðileggist i hvert skipti sem menn „finna á sér" og allt að 10 þúsund heilafrumur deyi við hvert „ærlegt fylliri". Fyrir einni öld setti skoski læknirinn dr. Francis Anstie „ör- yggismörk" fyrir áfengisdrykkju, eina og hálfa únsu (42 gr) af fljótandi alkoholi á dag. Þetta jafngildir hálfri flösku af léttu vini, einum litra af bjór eða IÐNAÐARMÁL 27

x

Iðnaðarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.