Iðnaðarmál - 01.01.1978, Page 34

Iðnaðarmál - 01.01.1978, Page 34
þremur og hálfum „einföldum“ af sterku áfengi. Þetta mat hefur nýlega fengið staðfestingu hjá Heilbrigðismálaráðuneyti Banda- ríkjanna. í skýrslu ráðuneytisins, „Áfengi og heilsufar“, segir að hin sígildu Anstie-mörk virðist enn tákna það áfengismagn sem ekki auki líkurnar á ótímabærum dauða. Um reykingar er ekki hægt að setja nein slík öryggismörk. Jafnvel hóflegur skammtur af vindlingum er skaðlegur. Þeir sem hætta að reykja finna fljótt að þeir hósta minna og eiga létt- ara um andardráttinn. Áætlað er að 90% af tagaðri lungnastarf- semi vinnist aftur á níu mánuð- um í tóbaksbindindi. Líkamsget- an eykst einnig. Sænskar rann- sóknir sýna að vanir reykinga- menn geta vænst 20% aukningar á almennri likamsorku innan mánaðar frá því reykingum var hætt. Auk þess öðlast þeir aukið mótstöðuafl gegn sýkingu. (Reykingar skemma hið sjálf- virka ónæmiskerfi líkamans og draga úr lífskrafti hvítu blóð- kornanna). Tilraunir á dýrum sýna að 80% þessa lækkaða mótstöðuafls skilar sér aftur inn- an fjögurra mánaða frá því að reykingum er hætt. Þó að reykingar myndi ekki ó- svikinn kemískan ávana, skapa þær venju sem reynst getur mjög erfitt að uppræta. Samt er það hægt með viljastyrk og skyn- serni, jafnvel fyrir mikinn reyk- ingamann. Samkvæmt áætlun Breska læknasambandsins hafa um 30 milljónir manna um víða veröld hætt að reykja síðan fyrsta skýrslan um samband reykinga og lungnakrabba birt- ist. Víða eru samtök á vegum heilbrigðisyfirvalda sem vinna gegn reykingum og veita mikil- væga fræðslu og aðstoð með kvikmyndum, fyrirlestrum cg hópumræðum fyrir þá sem þurfa á uppörvun og siðferðilegum styrk að halda meðan á barátt- unni stendur. Handahófskennt pilluát er önnur skaðleg venja. Nýlegar rannsóknir sýna að um helming- ur fulltíða fólks í Bretlandi tekur einhvers konar lyf á degi hverj- um. Auglýsingar tæla fólkið til þeirrar trúar að við sérhverjum sjúkdómi sé til stórkostlegt lyf - hægðameðöl við harðlífi, brjóst- sykur við særindum í hálsi, á- burður við hálsríg. Árangurinn er sá að þúsundir smálesta af lyfjum renna niður um þjóðar- vélindið i árangurslitlum tilraun- um til að auka lífskraftinn, minnka líkamsþungann eða efla lífshamingjuna. Oft vinna þessar pillur meira tjón en gagn. Eftir því sem Nóbelsverðlaunahafinn Andrew Lwoff heldur fram, stafa 30% af veikindum nútímans af misnotkun lyfja. Þessari áhættu er unnt að koma niður í lágmark með því að taka lyfin eingöngu eins og fyrir er mælt og aðeins þegar brýn nauðsyn krefur. (Hig- uchi prófessor í lyfjafræði við háskólann í Kansas áætlar að 90% lyfja sem notuð eru í dag séu óþörf frá læknisfræðilegu sjónarmiði). 5. Rólegt iífsviðhorf Til að ná velgengni i athafna- lífinu verður framkvæmdastjór- inn að geta „sett í gang“. En til að geta þolað hinn sálræna þrýsting og hið þunga vinnu- álag verður hann einnig að kunna þá list sem er jafn mikil- væg - að „slökkva". Þetta felur m. a. í sér að læra að aðlaga sig hinu óhjákvæmilega. í stað þess að æðrast yfir getuleysi sínu til að nota eigin aðferðir verður hann stundum að tileinka sér hina spænsku lífsspeki: que será será (komi það sem verða vill). Þá hjálpar það einnig að þroska með sér kímnigáfu. Á ör- lagastundu í ameríska borgara- stríðinu örvaði Abraham Lincoln starfsbræður sína með því að verja dýrmætum tíma á mikil- vægum ráðuneytisfundi til að lesa fyrir þá gamansama frá- sögn. Að lestrinum loknum sneri hann sér að þeim og sagði: „Herrar mínir, hvers vegna hlæið þið ekki? Með þessu skelfilega fargi sem hvílir á mér dag og nótt myndi ég ekki halda lífi ef ég gæti ekki hlegið, og þið þurf- ið á þessu töfralyfi að halda engu síður en ég.“ Til að varðveita heilbrigði í veröld sem stundum virðist brjáluð verðum við dag- lega að taka inn ríflegan skammt af lyfi sem nefnist hlátur. Viðskiptalífið getur verið mjög strembið viðureignar en fram- kvæmdastjóri sem metur heilsu sína einhvers verður að varð- veita rólegt og glaðvært lífsvið- horf. Þegar Plato lagði fyrir sjálf- an sig spurninguna: „Hver er hinn rétti lífsmáti"? svaraði hann 28 IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.