Iðnaðarmál - 01.01.1978, Síða 36

Iðnaðarmál - 01.01.1978, Síða 36
NYTSAMAR NYJUNGAR Kaplaeinangrun úr þver- bundnu polyeten (PEX) Kaplar sem einangraðir eru með þverbundnu polyethylen (PEX) hafa marga kosti, t. d. þola þeir 90C° hita borið sam- an við 65C° hjá PVC og PE einangruðum köplum. Munur- inn á PEX og PE er, að í PEX eru sameindakeðjurnar þver- bundnar svo úr verður nokk- urs konar þrivitt net. Petta er gert með þvi að blanda lif- rænum oxunarefnum (eins og peroxiðum) í venjulegt PE, en við upphitun hverfist perox- íðið við vetnisfrumeindir á keðjunum sem tengjast þann- ig hvor við aðra. Sieverts Kabelfabrik i Sund- byberg í Svíþjóð hefur lagt mikið fé í að þróa notkunma á PEX i kaplaeinangrun. Þar hefur m. a. verið þróuð aðferð til að einangra samskeyti á köplum. Á myndinni sést hvernig PE-bandi er vafið utanum samskeyti. Þetta verður að gera í mjög hreinu umhverfi. Síðan eru samskeytin hituð. en við það myndast PEX. Úr Ny Teknik, 2. febr. 1978. Óbrjótandi rúður Komið er á markaðinn frá PPC Industries nýtt öryggis- gler fyrir t. d. banka, sölubúð- ir og fangaklefa. Verkfæri, eins og hamrar, kúbein og meitlar eru sögð ónothæf við að komast i gegnum glerið, sem einnig er sagt þola byssukúlur og fljúgandi múr- steina. Rúðurnar eru úr þrem lög- um, yst 'A" afspennt gler og 1A" af polykarbonati á milli. Glerið yst ver rúðurnar risp- um en plastið gefur þeim styrk. Hægt er að fá rúðurnar með viðvörunarþráðum sem eru faldir í kantinum og nærri ósýnilegir. Úr The Glass Industry, nóv. 1977. Styrkt plastsamsetning Aðferðin heitir Peramelt og byggist á þvi að fínt net úr málmi er sett á milli flatanna sem á að skeyta saman, en síðan er flötunum þrýst saman og sam- skeytin hituð. Við það fyllir plastið holrúmin i netinu svo það festist og virkar sem styrking. Flestum teg- undum af bráðplasti er hægt að skeyta saman með þessari aðferð, undantekning PTFE („teflon") og skyld efni. Notkunarsvið: skeyta saman tvö ólik plastefni, skeyta saman marglaga plastefni, styrkja hluti sem mikið mæðir á og gera við brotna hluti. Mælt er með þessari aðferð þegar erfitt er að setja saman á annan hátt, t. d. við viðgerðir á polye- ten og polypropen. Frá Pera, Melton Mowbray, Leicestershire, LE 3 OPB, England. 30 Úr Engineering, des. 1977. IÐNAÐARMÁL

x

Iðnaðarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnaðarmál
https://timarit.is/publication/1105

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.