Iðnaðarmál - 01.01.1978, Qupperneq 39
Sveigjanlegt öxultengi
Tengið er aðeins eitt stykki
og er hægt með því að tengja
saman öxla sem ekki liggja
í beinni línu og getur misvis-
unin verið talsverð.
Hægt er að búa til tengið í
ýmsum óstöðluðum lengdum
upp í 30 cm. Það þolir mjög
háan snúningshraða. Hæsta
vægi er 14.125 Nm.
Nafn: Duai-Panamech frá
Powder Couplings Ltd., Leeds,
Englandi.
Úr Engineering, april 1978.
Létt, sjálfvirkt suðutæki
fyrir duftvarða rafsuðu
(MIG/MAG/rörþráða-
suða)
Lítil létt duftsuðuvél fyrir
kverk- og stúfsuðu, heppileg
við suðuvjnnu þar sem í dag
er notuð stativsuða. Annar
kostur er, að tækið þarfnast
ekki sérstakra straumgjafa,
heldur er hægt að nota venju-
legan straumgjafa, annað
hvort jafn- eða riðstraum.
Tæknilegar upplýsingar:
straumnotkun 500 A, duft-
geymir 5 I, þyngd (án þráða
og dufts) 19 kg.
Úr AJOUR I - T 1978 nr. 5.
Plastsuða með ör-hljóð-
bylgjum
Ör-hljóðbylgjur eru til margra
hluta nytsamlegar, m. a. til
þess að sjóða saman stykki
úr plasti. Þessi suðutækni er
sögð gefa slétt samskeyti sem
ekki er hætta á að leki.
Eitt af þeim fyrirtækjum
sem sérhæfa sig i þessari
tækni er Kerry Ultrasonics
Ltd. Er hægt að fá tæki frá
þeim (sem heita Plastison)
fyrir 300, 600 og 1200 W,
nafntiðni 20 kH/z. Tækið er i
tveimur aðal einingum: orku-
gjafinn, sem gefur raforku
með ör-hljóðbylgjutíðni og í
öðru lagi suðutólið, sem fest
er á bekk og samanstendur af
orkubreyti og suðutrekt.
Hægt er að ná mikilli ná-
kvæmni við suðuna með þess-
um tækjum.
Á myndinni er sýnt hvernig
stopphringur er soðinn í ör-
yggisloka úr polypropen.
Úr Engineering Materials
and Design, febr. 1978.
Ör-hljóðbylgjuskynjari
finnur rafleka og gasleka
Með skynjaranum er á stutt-
um tíma hægt að finna hvar
rafmagn leiðir út, eins er
hægt að finna gasleka í þrýsti-
eða lofttómsútbúnaði. Tækið
breytir ör-hljóðbylgjum í heyr-
anlegt hljóð og magnar það
svo það heyrist í hátalara og
heyrnartækjum, auk þess sést
útslagið á mæli. Trektinni á
skynjaranum er beint að
staðnum sem skoða á og er
hægt að gera það úr öruggri
fjarlægð. Tækið er sagt betra
en eldri og stærri tæki til
svipaðra nota.
Tækið er mjög næmt, t. d.
er hægt að finna gasleka um
göt sem eru aðeins 0,05 mm
í þvermál, þrýstingurinn 0,7
atm og fjarlægðin til skynjar-
ans 1,5 m.
James G. Biddle Co., Ply-
mouth Meeting, Pa., USA.
Úr Chemical Engineering,
5. júni 1978.
IÐNAÐARMÁL
31