Franskir dagar - 01.07.2006, Síða 6

Franskir dagar - 01.07.2006, Síða 6
Franskir dagar - Les jours fran^ais Texti: Fríöa Bonnie Andersen Myndir: úr einkasafni Söngleikurinn Skrúðsbóndinn og tónskáldið Björgvin Guðmundsson Á tónleikum í Fáskrúðsijarðarkirkju á Frönskum dögum verða flutt lög úr fyrsta íslenska söngleiknum, Skrúðsbóndanum eftir Björgvin Guðmunds- son. Barnabarn hans Fríða Bonnie Andersen tók ljúflega í beiðni okkar um að segja lítillega frá afa sínum. Björgvin fæddist að Rjúpnafelli i Vopnafirði árið 1891. Snemma kom í ljós að hann var áhugasamur um söng og virtist óþreytandi aö viða að sér þekkingu á því sviði allt frá barnsaldri. Fyrstur til að hvetja hann til að semja lög var Kristján Wíum organisti í Vopnafjarðarkirkju. Síðar átti það eftir að liggja fyrir honum að flytjast vestur um haf til Kanada, meðal annars svo hann mætti komast í tæri við tónlistarskóla. Starfaði Björgvin vestra um nokkrurra ára skeið bæði við kórstjórn og trésmíðar og kom loks að því að stofnaður var sérstakur styrktarsjóður til aö kosta Björgvin til náms í Royal College of Music í London. Þaðan útskrifaðist hann 1928 en sneri aftur heim til íslands þrem árum síðar, þegar honum bauðst að kenna við barnaskólann á Akureyri, og settist þar að ásamt fjölskyldu sinni. Kona hans var Hólmfríður Guðmundsson, þau eignuðust eina dóttur, Margréti. Björgvin Guðmundsson lést 1961. Það er fróðlegt að velta fyrir sér tilurð fyrsta íslenska söngleiksins, Skrúðsbóndans. Grípum niöur í minningar Björgvins þegar hann var 7 eða 8 ára gamall.: „A heimili okkar man ég að til voru fjórar ljóðabækur um þessar mundir (1898- 1899). Voru þær kallaðar: Kristjánsbók, Matthíasar bók, Steingrímskver og Bóla eða Hjálmarskver og svo heyröi ég getið um einhverja Jónasarbók og var mér enda kennt ýmislegt úr henni. Var mér sagt að höfundar allra þessarra bóka væru eða hefðu verið skáld þótti mér mikilsvert um þann titil en mestar mætur hafði ég á Kristjáni enda mun ég hafa heyrt hans fyrst getið og fyrst lært vísur eftir hann svo sem Heimkomuna og Tárið. Einhverntíma um þetta leiti fór ég út í Ytri- Hlíð með mömmu og þá heyrði ég Sigurjón og hana tala um tvö skáld til viðbótar, tvo bræður, Pál og Jón Ólafssyni. Mun Sigurjón Björgvin Guðmundsson. 6

x

Franskir dagar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.