Víkurfréttir - 04.01.2008, Blaðsíða 17
VÍKURFRÉTTIR I FÖSTUDAGURINN 4. JANÚAR 2008 17STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Fréttaveitan, fréttabréf HS hf. og starfsmanna hennar, hélt upp á 20 ára afmæli sitt í síð-
asta mánuði.
Fyrsta blaðið var gefið út í desember 1987 að
undirlagi fyrrum forstjóra HS, Ingólfs Aðalsteins-
sonar, og hefur hún alla tíð síðan endurspeglað
starfsemi fyrirtækisins og starfsmanna hennar.
Björn Stefánsson ritstýrði blaðinu frá upphafi og
allt til ársloka 2005 og sá þar um efnisöflun, upp-
setningu, prentun, umbrot og dreifingu. Þegar
Björn ákvað að hætta voru þau Víðir S. Jónsson og
Harpa Sævarsdóttir fengin til að ritstýra blaðinu.
Í afmælinu var Birni Stefánssyni fært fyrsta eintak
af 221. tölublaði Fréttaveitunnar og honum færð
blóm.
Þá var Keili afhent innbundin Fréttaveita, frá
upphafi 1987 og til ársins 2004, alls þrjú bindi og
veitti Hjálmar Árnason, forstöðumaður fagskóla
Keilis, bókunum viðtöku.
Vefurinn hver.is var afhentur formlega við sama
tilefni en hver.is er gagnagrunnur með öllum
blaða- sem og öðrum greinum, myndum og fleiru
tengt fyrirtækinu frá upphafi þess.
Hitaveita Suðurnesja:
Fréttaveitan 20 ára
Störf í Keflavík
Pósturinn óskar eftir að ráða til starfa
bílstjóra��
bréfbera��
gjaldkera��
Vinnutími er frá kl. 08:00 - 16:15 alla virka daga.
Bílstjórar þjónusta Reykjanesbæ, flugstöðvars-
væðið, gamla varnarsvæðið, Garð og Sandgerði.
Bréfberar þjónusta Reykjanesbæ.
Gjaldkeri er á pósthúsinu í Reykjanesbæ.
Einnig óskast bílstjórar og bréfberar í tímavinnu.
Nánari upplýsingar veitir Anna María Guðmundsdóttir, svæðisstjóri á staðnum.
Hægt er að sækja um á www.postur.is
Björn Stefánsson og Víðir Jóns-
son afhenda Hjálmari Árnasyni
Fréttaveituna innbundna.
VF-mynd/Þorgils