Víkurfréttir - 15.03.2012, Page 10
10 FIMMTUdagUrInn 15. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Á tímum framfara og tækni er margt sem breytist í okkar ágæta heimi.
Lífslíkur hafa til að mynda batnað mikið á hinum síðari árum og nú í dag
eru það um 2/3 sem ná að lifa til elliáranna og 50%
líkur eru á því að ná 100 ára aldri fæðist maður á
þessari öld. Við veikjumst síðar á ævinni og lifum
lengur og betur en forfeður okkar. Öll viljum við
eldast en enginn vill vera gamall, heyrði ég um dag-
inn. Þrátt fyrir hið óumflýjanlega þá erum við minnt
á að það séu til ótal leiðir til að fara framhjá eðlilegri
öldrun, gefa móður náttúru langt nef og vera eins og
spriklandi kjúklingar langt fram eftir aldri.
Æskudýrkunin er mikil og allir kannast líklega við að eftir
ákveðinn aldur þá er ekki endilega verið að flíka því hvað
maður sé gamall og jafnvel talið dónalegt að spyrja um aldur. Hér áður fyrr
þýddi það meiri viska og virðing að ná háum aldri og ekki þótti koma til greina
að yngra fólk sinnti ábyrgðarstörfum í samfélaginu. Ég heyri á konum nálægt
mér í aldri að talan 50 nálgast með ógnarhraða og mis mikil ánægja með það.
En af hverju tökum við ekki aldrinum fagnandi og sjáum lífið heildrænt þar sem
hvert þroskastigið tekur við af öðru og við höfum tækifæri til að vinna þannig úr
þeim verkefnum sem við fáum og bætum við okkur eftir því sem árin færast yfir!
auðvitað er fjöldinn allur af einstaklingum sem fagnar hverju ári og þakkar fyrir
að fá tækifæri til að breyta og bæta líf sitt, og með því að dýpka skilning sinn
á sér og öðrum og öðlast þannig heilsteypt sjálf með tímanum. Það er nú einu
sinni þannig að það skiptir máli að geta horft sáttur um öxl og koma arfinum
áfram til kynslóðanna sem á eftir okkur koma. Við getum litið á þetta á tvo vegu:
annars vegar að eldast og missa og hins vegar að eldast og öðlast. Okkar innri
maður er í sífelldri endurnýjun þótt eitthvað annað glatist og aldrei of seint að
breyta því sem betur mætti fara.
Við getum litið á visku sem eitthvað sem við öðlumst í skóla lífsins þar sem
markmiðið er að með tímanum aukum við sýn á okkur sjálf og aðra, því sá sem
þekkir aðra - þekkir betur sjálfan sig. Hluti af því að eldast er að missa eitthvað
af æskuljómanum, gráu hárunum fjölgar og línurnar mýkjast. Á sama tíma
getum við svo sannarlega búið yfir öðrum ljóma, sem stafar af því að geta hvílt
í eigin öryggi, þurfa ekki sífellt að vera að sanna sig og geta metið sig út frá því
sem maður er en ekki því sem maður gerir. skilningur okkar á lífinu dýpkar með
árunum, við verðum víðsýnni og umburðarlyndari og hæfileikinn til að upplifa
lífið sem heildrænt ferli, eykst.
Ástæðan fyrir þessum skrifum er sú að ég er í áfanga í náminu mínu sem heitir
„sálgæsla og öldrun“. Þetta er skylduáfangi og satt best að segja fannst mér
ekki spennandi að „verða“ að taka hann. Eigin fordómar skinu í gegn, og mér
fannst ég ekkert erindi eiga í að fræðast um það óhjákvæmilega, að eldast,
svona rétt eins og það væri ekki hluti af mínum veruleika. geri mér ekki alveg
grein fyrir því hvort ég sé kvíðin því að eldast en ég veit bara að ég „faldi“ t.d.
fæðingarárið mitt á FB-síðunni minni. Var ég hrædd um að einhverjum þætti ég
of „gömul“ og þá fyrir hvað? Hvenær er manneskjan hætt að vera hún sjálf og
verður í staðinn aldurinn og útlitið? Hvenær verðum við gömul og hvaða viðmið
notum við? sjötug manneskja í góðu formi getur verið í svipuðu líkamlegu
ástandi og þrítug manneskja í kyrrsetu. Ég er svo þakklát fyrir að hafa verið
„skylduð“ í þennan áfanga því satt best að segja þá hefur hann vakið mig til
umhugsunar um sjálfa mig og umhverfið mitt og þess vegna deili ég þessu
með ykkur í dag.
Vonandi hlotnast mér sú gæfa að eldast og er ég ákveðin í að þakka fyrir
hvert ár sem ég öðlast héðan í frá. Ég stefni að því að læra af reynslunni og
búa í haginn fyrir góða framtíð. Það er langt síðan ég áttaði mig á því að ég er
öruggari með mig í dag en þegar ég var yngri, ekki eins upptekin af því hvað
öðrum finnst, hef aukið umburðarlyndi og þarf ekki að skilja allt og greina (ok
þarf ennþá að greina). Ég er líka búin að átta mig á því að það skiptir máli að
ég sé sátt við minn innsta kjarna og finni merkingu í því sem ég geri. Öll störf
eru jafn merkileg - og það eru ekki verkin sem telja heldur hver þú ert þegar
þú sinnir þeim. Ég hlakka til að takast á við nýtt þroskaskeið í mínu lífi - finnst
„forskólaárin“ hafa verið fín en er alveg sátt við að þeim sé lokið. spennandi
tímar í „unglingadeildinni“ eru framundan og aldrei að vita hverju maður tekur
upp á þar! Ef guð lofar og ég fell ekki í „unglingadeildinni“ fæ ég einn daginn
inngöngu í „öldungadeildina“, vonandi ennþá í stuði, sátt við sjálfa mig og lífs-
söguna! síðast en ekki síst mun ég þakka fyrir að hafa fengið tækifæri til að taka
áfanga um öldrun vorið 2012!
Þangað til næst - gangi þér vel
Anna Lóa
Stuð í „öldungadeildinni“
DVALARHEIMILI ALDRAÐRA SUÐURNESJUM D.S.
HJÚKRUNARHEIMILIÐ GARÐVANGUR GARÐI
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Okkur bráðvantar áhugasama hjúkrunarfræðinga til starfa við öldrunarhjúkrun.
Bæði er um er að ræða framtíðarstarf/störf og /eða sumarafleysingu, breytileg vinnuprósenta
og almennt er unnið á tvískiptum vöktum, ásamt bakvöktum.
SJÚKRALIÐAR
Einnig vantar okkur áhugasama
sjúkraliða til starfa við öldrunar-
hjúkrun, ásamt starfsfólki í
aðhlynningarstörf, um er að ræða
sumarafleysingar, breytilega
vinnuprósentu og vaktavinnu
Hjúkrunarheimilið Hlévangur
Reykjanesbæ
AÐHLYNNING
Okkur vantar áhugasamt starfsfólk
í aðhlynningarstörf, um er að ræða
sumarafleysingar, breytilega
vinnuprósentu og vaktavinnu.
HÆFNISKRÖFUR
TIL STARFA ERU:
Íslenskt starfsleyfi
(hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar)
Góðrar íslenskukunnáttu er krafist
Faglegur metnaður Jákvæðni og
færni í mannlegum samskiptum
Laun samkvæmt kjarasamningum SFH við bæði aðildarfélögin, öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknum / fyrirspurnum - ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast til
Aðalheiðar Valgeirsdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunar D.S. Garðbraut 85, 250 Garði,
netfang er heida@ds.is , sími 895-0740.
Einnig er bent á deildarstjóra Garðvangs, Þuríði Elísdóttur í síma 422-7400, eða með netpósti
thura@ds.is, ásamt deildarstjóra Hlévangs, Sveindísi Skúladóttur í síma 421-5700
eða með netpósti sveindis@ds.is
OPINN FUNDUR
Kvennahreyng Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ stendur fyrir opnum
fundi mmtudaginn 15. mars í sal Sálarrannsóknarfélags Suðurnesja
kl. 20:00, að Víkurbraut 13 (gengið inn á austurhlið hússins)
Yrskrift fundarins er Menntun og mannauður og gestir fundarins eru
Guðjónína Sæmundsdóttir forstöðumaður MSS og Dagný Gísladóttir
starfsmaður Heklunnar, Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.
Umræður verða um atvinnumál kvenna og tengsl atvinnulífs
og skólasamfélagsins.
Allar konur eru velkomnar og hvattar til að mæta og taka þátt í líegum
umræðum, þiggja léttar veitingar og eiga stund í góðra kvenna hópi.
Stjórnin
Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, D-sveit,
heldur maraþontónleika á sal
Holtaskóla laugardaginn 17. mars
frá kl.14-19. Maraþontónleika-
rnir eru haldnir vegna væntan-
legrar tónleikaferðar sveitarinnar
til Boston og nágrennis, dagana
31. mars til 8. apríl nk. Alls er
það 43 manna hópur sem fer, þar
af telur lúðrasveitin 40 manns.
Stjórnandi er Karen J. Sturlaugs-
son, en hún er ættuð frá Boston,
sem er ein af mestu menningar-
borgum Bandaríkjanna.
Þetta er fjórða tónleikaferð Lúðra-
sveitar Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar til útlanda og í ferðinni mun
sveitin halda 5 tónleika í þremur
fylkjum Bandaríkjanna, þ.e. Massa-
chusetts, Rhode Island og Maine.
Auk þess mun lúðrasveitin halda
nokkra skólatónleika og spila á
körfuboltaleik Harlem Globetr-
otter´s.
Maraþontónleikarnir hafa tvenns
konar tilgang. Annars vegar eru
þeir mikilvæg æfing fyrir lúðra-
sveitina, því þarna gefst tækifæri
til að spila alla þá gríðarlega miklu
efnisskrá sem sveitin hefur á valdi
sínu, en stór hluti hennar verður
fluttur á tónleikum í ferðinni. Hins
vegar eru tónleikarnir mikilvægur
liður í fjáröflun lúðrasveitarinnar.
Á efnisskrá lúðrasveitarinnar
kennir ýmissa grasa, m.a. Á
Sprengisandi og Brennið þið vitar,
lög eftir Stevie Wonder, Coldplay
og Michael Jackson og ekki síst
tónlist úr kvikmyndunum Pirates
of the Caribbean og Star Wars.
Einnig verða einleiksatriði, lagið
Flight of the Bumblebee á sýlófón,
hið sprellfjöruga tamborínulag,
Give My Regards to Broadway, og
svo fá básúnurnar að láta ljós sitt
skína í laginu Lassus Trombone.
Kaffihús verður starfrækt á tón-
leikunum milli kl.15 og 17 og verða
veitingar af kaffihlaðborði til sölu á
vægu verði. Það er því upplagt fyrir
Suðurnesjamenn og aðra áhuga-
sama, að gera sér dagamun og
koma á flotta lúðrasveitartónleika
í Holtaskóla á laugardaginn, gæða
sér á ilmandi kaffi og nýbökuðu
meðlæti og leggja þessu góða mál-
efni lið.
Lúðrasveitin hefur ævinlega verið
landi og þjóð til mikils sóma hvar
sem hún hefur komið, bæði innan-
lands sem utan og hefur fyrir löngu
skipað sér í fremstu röð íslenskra
skólalúðrasveita. Lúðrasveitin flutti
nýverið verkið Accordo eftir ítalska
tónskáldið Luciano Berio ásamt
þremur öðrum skólalúðrasveitum.
Flutningur verksins, sem var frum-
flutningur hérlendis, var liður í
Tectonics tónlistarhátíðinni sem
Sinfóníuhljómsveit Íslands stóð að
fyrir skömmu.
›› Tónlistarskóli Reykjanesbæjar:
Lúðrasveitarmaraþon