Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.03.2012, Qupperneq 10

Víkurfréttir - 15.03.2012, Qupperneq 10
10 FIMMTUdagUrInn 15. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR Á tímum framfara og tækni er margt sem breytist í okkar ágæta heimi. Lífslíkur hafa til að mynda batnað mikið á hinum síðari árum og nú í dag eru það um 2/3 sem ná að lifa til elliáranna og 50% líkur eru á því að ná 100 ára aldri fæðist maður á þessari öld. Við veikjumst síðar á ævinni og lifum lengur og betur en forfeður okkar. Öll viljum við eldast en enginn vill vera gamall, heyrði ég um dag- inn. Þrátt fyrir hið óumflýjanlega þá erum við minnt á að það séu til ótal leiðir til að fara framhjá eðlilegri öldrun, gefa móður náttúru langt nef og vera eins og spriklandi kjúklingar langt fram eftir aldri. Æskudýrkunin er mikil og allir kannast líklega við að eftir ákveðinn aldur þá er ekki endilega verið að flíka því hvað maður sé gamall og jafnvel talið dónalegt að spyrja um aldur. Hér áður fyrr þýddi það meiri viska og virðing að ná háum aldri og ekki þótti koma til greina að yngra fólk sinnti ábyrgðarstörfum í samfélaginu. Ég heyri á konum nálægt mér í aldri að talan 50 nálgast með ógnarhraða og mis mikil ánægja með það. En af hverju tökum við ekki aldrinum fagnandi og sjáum lífið heildrænt þar sem hvert þroskastigið tekur við af öðru og við höfum tækifæri til að vinna þannig úr þeim verkefnum sem við fáum og bætum við okkur eftir því sem árin færast yfir! auðvitað er fjöldinn allur af einstaklingum sem fagnar hverju ári og þakkar fyrir að fá tækifæri til að breyta og bæta líf sitt, og með því að dýpka skilning sinn á sér og öðrum og öðlast þannig heilsteypt sjálf með tímanum. Það er nú einu sinni þannig að það skiptir máli að geta horft sáttur um öxl og koma arfinum áfram til kynslóðanna sem á eftir okkur koma. Við getum litið á þetta á tvo vegu: annars vegar að eldast og missa og hins vegar að eldast og öðlast. Okkar innri maður er í sífelldri endurnýjun þótt eitthvað annað glatist og aldrei of seint að breyta því sem betur mætti fara. Við getum litið á visku sem eitthvað sem við öðlumst í skóla lífsins þar sem markmiðið er að með tímanum aukum við sýn á okkur sjálf og aðra, því sá sem þekkir aðra - þekkir betur sjálfan sig. Hluti af því að eldast er að missa eitthvað af æskuljómanum, gráu hárunum fjölgar og línurnar mýkjast. Á sama tíma getum við svo sannarlega búið yfir öðrum ljóma, sem stafar af því að geta hvílt í eigin öryggi, þurfa ekki sífellt að vera að sanna sig og geta metið sig út frá því sem maður er en ekki því sem maður gerir. skilningur okkar á lífinu dýpkar með árunum, við verðum víðsýnni og umburðarlyndari og hæfileikinn til að upplifa lífið sem heildrænt ferli, eykst. Ástæðan fyrir þessum skrifum er sú að ég er í áfanga í náminu mínu sem heitir „sálgæsla og öldrun“. Þetta er skylduáfangi og satt best að segja fannst mér ekki spennandi að „verða“ að taka hann. Eigin fordómar skinu í gegn, og mér fannst ég ekkert erindi eiga í að fræðast um það óhjákvæmilega, að eldast, svona rétt eins og það væri ekki hluti af mínum veruleika. geri mér ekki alveg grein fyrir því hvort ég sé kvíðin því að eldast en ég veit bara að ég „faldi“ t.d. fæðingarárið mitt á FB-síðunni minni. Var ég hrædd um að einhverjum þætti ég of „gömul“ og þá fyrir hvað? Hvenær er manneskjan hætt að vera hún sjálf og verður í staðinn aldurinn og útlitið? Hvenær verðum við gömul og hvaða viðmið notum við? sjötug manneskja í góðu formi getur verið í svipuðu líkamlegu ástandi og þrítug manneskja í kyrrsetu. Ég er svo þakklát fyrir að hafa verið „skylduð“ í þennan áfanga því satt best að segja þá hefur hann vakið mig til umhugsunar um sjálfa mig og umhverfið mitt og þess vegna deili ég þessu með ykkur í dag. Vonandi hlotnast mér sú gæfa að eldast og er ég ákveðin í að þakka fyrir hvert ár sem ég öðlast héðan í frá. Ég stefni að því að læra af reynslunni og búa í haginn fyrir góða framtíð. Það er langt síðan ég áttaði mig á því að ég er öruggari með mig í dag en þegar ég var yngri, ekki eins upptekin af því hvað öðrum finnst, hef aukið umburðarlyndi og þarf ekki að skilja allt og greina (ok þarf ennþá að greina). Ég er líka búin að átta mig á því að það skiptir máli að ég sé sátt við minn innsta kjarna og finni merkingu í því sem ég geri. Öll störf eru jafn merkileg - og það eru ekki verkin sem telja heldur hver þú ert þegar þú sinnir þeim. Ég hlakka til að takast á við nýtt þroskaskeið í mínu lífi - finnst „forskólaárin“ hafa verið fín en er alveg sátt við að þeim sé lokið. spennandi tímar í „unglingadeildinni“ eru framundan og aldrei að vita hverju maður tekur upp á þar! Ef guð lofar og ég fell ekki í „unglingadeildinni“ fæ ég einn daginn inngöngu í „öldungadeildina“, vonandi ennþá í stuði, sátt við sjálfa mig og lífs- söguna! síðast en ekki síst mun ég þakka fyrir að hafa fengið tækifæri til að taka áfanga um öldrun vorið 2012! Þangað til næst - gangi þér vel Anna Lóa Stuð í „öldungadeildinni“ DVALARHEIMILI ALDRAÐRA SUÐURNESJUM D.S. HJÚKRUNARHEIMILIÐ GARÐVANGUR GARÐI HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Okkur bráðvantar áhugasama hjúkrunarfræðinga til starfa við öldrunarhjúkrun. Bæði er um er að ræða framtíðarstarf/störf og /eða sumarafleysingu, breytileg vinnuprósenta og almennt er unnið á tvískiptum vöktum, ásamt bakvöktum. SJÚKRALIÐAR Einnig vantar okkur áhugasama sjúkraliða til starfa við öldrunar- hjúkrun, ásamt starfsfólki í aðhlynningarstörf, um er að ræða sumarafleysingar, breytilega vinnuprósentu og vaktavinnu Hjúkrunarheimilið Hlévangur Reykjanesbæ AÐHLYNNING Okkur vantar áhugasamt starfsfólk í aðhlynningarstörf, um er að ræða sumarafleysingar, breytilega vinnuprósentu og vaktavinnu. HÆFNISKRÖFUR TIL STARFA ERU: Íslenskt starfsleyfi (hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar) Góðrar íslenskukunnáttu er krafist Faglegur metnaður Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum Laun samkvæmt kjarasamningum SFH við bæði aðildarfélögin, öllum umsóknum verður svarað. Umsóknum / fyrirspurnum - ásamt ferilskrá og meðmælendum skulu berast til Aðalheiðar Valgeirsdóttur framkvæmdastjóra hjúkrunar D.S. Garðbraut 85, 250 Garði, netfang er heida@ds.is , sími 895-0740. Einnig er bent á deildarstjóra Garðvangs, Þuríði Elísdóttur í síma 422-7400, eða með netpósti thura@ds.is, ásamt deildarstjóra Hlévangs, Sveindísi Skúladóttur í síma 421-5700 eða með netpósti sveindis@ds.is OPINN FUNDUR Kvennahreyng Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ stendur fyrir opnum fundi mmtudaginn 15. mars í sal Sálarrannsóknarfélags Suðurnesja kl. 20:00, að Víkurbraut 13 (gengið inn á austurhlið hússins) Yrskrift fundarins er Menntun og mannauður og gestir fundarins eru Guðjónína Sæmundsdóttir forstöðumaður MSS og Dagný Gísladóttir starfsmaður Heklunnar, Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja.  Umræður verða um atvinnumál kvenna og tengsl atvinnulífs og skólasamfélagsins.  Allar konur eru velkomnar og hvattar til að mæta og taka þátt í líegum umræðum, þiggja léttar veitingar og eiga stund í góðra kvenna hópi.  Stjórnin Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, D-sveit, heldur maraþontónleika á sal Holtaskóla laugardaginn 17. mars frá kl.14-19. Maraþontónleika- rnir eru haldnir vegna væntan- legrar tónleikaferðar sveitarinnar til Boston og nágrennis, dagana 31. mars til 8. apríl nk. Alls er það 43 manna hópur sem fer, þar af telur lúðrasveitin 40 manns. Stjórnandi er Karen J. Sturlaugs- son, en hún er ættuð frá Boston, sem er ein af mestu menningar- borgum Bandaríkjanna. Þetta er fjórða tónleikaferð Lúðra- sveitar Tónlistarskóla Reykjanes- bæjar til útlanda og í ferðinni mun sveitin halda 5 tónleika í þremur fylkjum Bandaríkjanna, þ.e. Massa- chusetts, Rhode Island og Maine. Auk þess mun lúðrasveitin halda nokkra skólatónleika og spila á körfuboltaleik Harlem Globetr- otter´s. Maraþontónleikarnir hafa tvenns konar tilgang. Annars vegar eru þeir mikilvæg æfing fyrir lúðra- sveitina, því þarna gefst tækifæri til að spila alla þá gríðarlega miklu efnisskrá sem sveitin hefur á valdi sínu, en stór hluti hennar verður fluttur á tónleikum í ferðinni. Hins vegar eru tónleikarnir mikilvægur liður í fjáröflun lúðrasveitarinnar. Á efnisskrá lúðrasveitarinnar kennir ýmissa grasa, m.a. Á Sprengisandi og Brennið þið vitar, lög eftir Stevie Wonder, Coldplay og Michael Jackson og ekki síst tónlist úr kvikmyndunum Pirates of the Caribbean og Star Wars. Einnig verða einleiksatriði, lagið Flight of the Bumblebee á sýlófón, hið sprellfjöruga tamborínulag, Give My Regards to Broadway, og svo fá básúnurnar að láta ljós sitt skína í laginu Lassus Trombone. Kaffihús verður starfrækt á tón- leikunum milli kl.15 og 17 og verða veitingar af kaffihlaðborði til sölu á vægu verði. Það er því upplagt fyrir Suðurnesjamenn og aðra áhuga- sama, að gera sér dagamun og koma á flotta lúðrasveitartónleika í Holtaskóla á laugardaginn, gæða sér á ilmandi kaffi og nýbökuðu meðlæti og leggja þessu góða mál- efni lið. Lúðrasveitin hefur ævinlega verið landi og þjóð til mikils sóma hvar sem hún hefur komið, bæði innan- lands sem utan og hefur fyrir löngu skipað sér í fremstu röð íslenskra skólalúðrasveita. Lúðrasveitin flutti nýverið verkið Accordo eftir ítalska tónskáldið Luciano Berio ásamt þremur öðrum skólalúðrasveitum. Flutningur verksins, sem var frum- flutningur hérlendis, var liður í Tectonics tónlistarhátíðinni sem Sinfóníuhljómsveit Íslands stóð að fyrir skömmu. ›› Tónlistarskóli Reykjanesbæjar: Lúðrasveitarmaraþon

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.