Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.05.2012, Qupperneq 4

Víkurfréttir - 31.05.2012, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGURINN 31. MAí 2012 • VÍKURFRÉTTIR Hátæknifyrirtækið Málmey hefur ákveðið að flytja starfsemi sína að Ásbrú í Reykjanesbæ og verður þar hluti af sívaxandi samfélagi frum- kvöðla, fræða og atvinnulífs sem telur yfir 80 fyrir- tæki og stofnanir, 500 starfsmenn, 600 námsmenn og 1.800 íbúa. Málmey hefur yfir reynslumiklu og hæfu starfsfólki að ráða þegar kemur að hönnun og smíði á vélbún- aði tengdum sjávarútvegi. Verkstæði fyrirtækisins á Ásbrú verður búið fullkomnum tækjum sem gerir því kleift að takast á við fjölbreytt verkefni tengd málmsmíði auk smíða og þróunar á tæknilausnum fyrir sjávarútveg. Á meðal viðskiptavina Málmeyjar má nefna Samherja, Marel, Kötlu Seafood, Nesfisk, Icegroup, Haustak og fleiri sjávarútvegsfyrirtæki. Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Þró- unarfélags Keflavíkurflugvallar: „Á Ásbrú hefur mótast einstakt umhverfi fyrir skap- andi og kraftmikil fyrirtæki. Við fögnum því að fá Málmey inn í þennan öfluga hóp og sjáum mikil tækifæri fyrir fleiri tæknifyrirtæki á Ásbrú. Málmey mun geta nýtt sér Mekkatrónik tæknifræðinám- og rannsóknir menntafyrirtækisins Keilis og þá rann- sóknar- og smiðjuaðstöðu á Ásbrú sem þjónar jafnt stórum sem smáum tæknifyrirtækjum“ segir Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar sem hefur leitt uppbyggingu Ásbrúar undanfarin ár. Guðmundur Sigþórsson, framkvæmdastjóri Málm- eyjar: „Við erum mjög spenntir fyrir því að flytja á Ásbrú og taka þátt í þeirri uppbyggingu sem stendur þar yfir. Málmey stendur á ákveðnum tímamótum og stefnir að auknum vexti á komandi árum. Við teljum okkur vera vel staðsetta á Ásbrú til að fylgja þeim vexti eftir. Þar skiptir m.a. máli góð tenging við tækniskóla Keilis og mun betri aðstaða til að mæta auknum umsvifum fyrirtækisins. Það kom okkur þægilega á óvart að starfsmenn okkar tóku mjög vel í þessar breytingar og styðja við bakið á okkur í þeim. Við vonumst ennfremur til þess að fá til liðs við okkur starfsmenn af Suðurnesjum því verkefnastaða fyrirtækisins kallar á talsverða fjölgun starfsmanna“ segir Guðmundur Sigþórsson, framkvæmdastjóri Málmeyjar. Um Málmey: Málmey var stofnað af Gylfa Þór Guðlaugssyni sem er hönnuður fyrirtækisins og aðaleigandi. Gylfi hefur starfað við smíðar og hönnun vélbúnaðar í yfir 20 ár. Hjá Málmey starfa 15 manns en fyrirtækið sérhæfir sig í smíði á tæknilausnum fyrir fiskvinnslur. Um Ásbrú: Ásbrú er einstakt samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnulífs. Ásbrú er heimili námsmanna, frum- kvöðla og fyrirtækja á sviði tækni, heilsu, flutninga og skapandi greina. „Eftir að hafa starfað við þetta undanfarin ár finnst mér gaman að heyra frá sjómönnunum okkar hér í Grindavík hversu ánægðir þeir eru með að sjómannadagshelgin, sem er til heiðurs þeim og fjölskyldum þeirra, skuli vera mikill hátíðis- viðburður í okkar litla samfélagi og sífellt meiri metnaður lagður í hana. Hér er allt undirlagt um sjómannadagshelgina og sjómenn- irnir ásamt fjölskyldum sínum fara þar fremstir í flokki við að skreyta bæinn og halda uppi fjörinu,“ segir Þorsteinn. Grindavík er eitthvert öflugasta bæjarfélag landsins og með tilkomu nýja tjaldsvæðisins sem opnað var 2009 og auknu samstarfi við Bláa lónið er Grindavík að stimpla sig á kortið sem öflugur ferðamannabær. Segja má að bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti marki upphafið á skemmti- legu sumri hér suður með sjó. Mikið verður lagt í Sjóarann síkáta í ár og verður enn meira gert til þess að gera bæjarhátíðina að sannkall- aðri fjölskylduskemmtun þar sem Reyknesingar og landsmenn allir eru hvattir til þess að heimsækja alvöru sjávarpláss en Grindavík er í dag stærsti útgerðarbærinn á landsbyggðinni. „Sjóarinn síkáti hefur skipað sér sess sem ein öflugasta bæjarhátíð landsins og má segja að við séum fyrst á dagskrá í sumarskemmt- unum. Hér eru ljósmynda-, mynd- lista- og grjótlistaverkssýningar með Grindvíkingum alla vikuna. Upphitun hefst á fimmtudagskvöld- inu með tónleikum Ragga Bjarna á Salthúsinu og svo verður líf og fjör á föstudagskvöldinu með götug- rillum um allan bæ, litaskrúðgöngu og bryggjuballi með Páli Óskari og fleiri skemmtikröftum. Á laugar- deginum er bærinn undirlagður af ýmsum skemmtunum fyrir alla fjölskylduna. Má þar nefna ratleik, leiktæki, vandaða skemmtidagskrá fyrir börnin, Brúðubíllinn mætir fyrir þau yngstu, svo fátt eitt sé talið. Foreldrar og fullorðnir fá sinn skammt en þarna verða ýmsar upp- ákomur og sýningar. Um kvöldið verða tónleikar og böll á skemmti- stöðum bæjarins. Á sunnudeg- inum er hápunkturinn, hefðbundin hátíðahöld á vegum Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur með heiðrunum og verðlaunaafhend- ingum og svo verða stórtónleikar með hljómsveitinni Valdimar í íþróttahúsinu um kvöldið. Þessa helgi verður einnig sundmót, fót- boltamót, golfmót, keppt í Íslands- móti í sjómanni, netaviðburðum, kerlingahlaupi og fleira og fleira," segir Þorsteinn fullur tillhlökk- unar. n Nú eru tíu ár liðin frá því að Duushúsin, menningar- og listamiðstöð Reykjanesbæjar opnuðu með sýningunni Bátasafn Gríms Karlssonar. Bátaflotinn samanstóð þá af 59 líkönum en er nú kominn yfir eitt hundrað og alltaf ný að bætast við. Sýningar- sölunum hefur einnig fjölgað í húsinu og eru salirnir nú orðnir fjórir og þar má sjá mismunandi sýningar safnanna í bænum, listasafnsins og byggðasafns- ins. Í tilefni þessara tímamóta verða opnaðar nýjar sýningar, sem allar tengjast sjómönnum eða sjómennsku, í öllum sölum Duushúsa laugardaginn 2. júní kl. 14.00 og eru allir bæjarbúar velkomnir að koma og njóta. Bátasalur Sýning á 100 bátalíkönum eftir skipstjórann Grím Karlsson og tréskúlptúrum eftir skipstjórann Guðmund Garðarsson. Báðir þessir skipstjórar hafa fundið sér nýjan vettvang eftir að þeir hættu til sjós, annar smíðar bátalíkön en hinn sker út myndir í rekavið. Listasalur Millilandamyndir, sýning á verkum úr einkasafni Matthíasar Matth- íassonar, fyrrverandi skipstjóra á millilandaskipum og Katrínar M. Ólafsdóttur eiginkonu hans. Einnig eru til sýnis gömul skipalíkön af Fellunum í eigu Samskipa. Gryfjan Á vertíð. Ný sýning Byggðasafns Reykjanesbæjar sem segir sögu svæðisins fram til 1940. Bíósalur Blönduð sýning sögu og listar: Verk úr safneign Listasafns Reykjanes- bæjar sem tengjast sjónum, ljós- myndasýning af nýjustu Fellunum hjá Samskip, stórt líkan af Skipa- smíðastöð Njarðvíkur og myndir í tengslum við það og síðast en ekki síst nokkur bátalíkön sem velunn- arar Bátasafnsins munu afhenda í tilefni sjómannadagsins. Að lokum er minnt á árlega sjó- mannamessu sem haldin er í Bíósal Duushúsa á sunnudaginn kl. 11.00 í samstarfi við prest Ytri-Njarðvíkur- kirkju og fleiri aðila. Eigum að heimasækja hvert annað á bæjarhátíðunum á Reykjanesi „Ég fór á Ljósanótt í Reykjanesbæ og Sólstöðuhátíðina í Garðinum í fyrra og það var virkilega skemmtilegt og gaman að sjá hversu bæjarhátíðarnar eru ólíkar hver annarri. Þær hafa allar sinn sjarma. Við vonumst til þess að sjá sem flesta nágranna okkar á Reykjanesi á Sjóaranum síkáta í Grindavík, við eigum að nýta tækifærið á þessum bæjarhátíðum okkar og heimsækja hvert annað hér á Reykjanesi,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, upplýsinga- og þróunarfulltrúi Grindavíkur- bæjar sem stendur í ströngu þessa dagana við að undirbúa Sjóarann síkáta ásamt Kristni Reimarssyni frístunda- og menningarfulltrúa. - Sjóarinn síkáti í Grindavík hefst í kvöld. Öll helgin undirlögð af viðburðum og uppákomum fyrir alla fjölskylduna. Hátæknifyrirtækið Málmey flytur starfsemi sína að Ásbrú Kjartan Þór Eiríksson og Guðmundur Sigþórsson undirrita samninga um húsnæði fyrir Málmey á Ásbrú. Nýjar sýningar í öllum sölum Duushúsa ›› Menning og mannlíf:

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.