Víkurfréttir - 31.05.2012, Page 10
10 FIMMTUDAGURINN 31. MAí 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Fá umfjöllunarefni eru eins vinsæl í bíómyndum, bókmenntum, ljóðum,
lögum og listum eins og ástin. Þar koma fram mis gáfuleg skilaboð þar
sem við erum hvött til að sleppa öllu og gera nánast
hvað sem er fyrir ástina. Im gonna die for you, cry for
you, spy for you...........
Við sem erum einhleyp erum minnt á það að við séum
ekki alveg „normal“ og fyrirsagnir eins og „Hvernig
finnur þú drauma makann“ eða „Er sálufélagi þinn
hinum megin við hornið“ eru dæmigerðar ábendingar
um að það sem við eigum öll að stefna að – finna þann
sem fullkomnar okkur. Viðurkenni það vel að ég hef
sveiflast í þessu sem og öðru í lífinu og á tímum verið
ofurseld þeirri hugmynd að ég væri bara hálf manneskja
að vera ein, á meðan ég er sátt og sæl þess á milli. En skilaboðin eru þarna,
sama hvað hver segir og hér hef ég tekið saman ábendingar frá vinum mínum
ráðgjafanum, sjálfshjálparbókafíklinum og bíómyndasjúklingnum:
Ráðgjafinn: ertu alltaf ein, bíddu hvað er málið, þú gerir allt of miklar kröfur,
þú verður að vera opnari, þú verður að fara meira út, þú ert of lokuð, þú ert allt
of opin, þú sendir út kolröng skilaboð, þú klæðir þig eins og nunna, þú klæðir
þig eins og gleðikona, þú ert allt of stíf, þú ert allt of hress, þú talar allt of mikið
um þig, þú gerir allt of miklar kröfur, þú gerir óraunhæfar kröfur, þú gerir engar
kröfur. Hvaða staði ertu að sækja? Þú ÁTT að fara á 101 eða barinn á Nordica,
happy hour, Súfistann, Kaffi París, meira í sund, labba á fjöll, hlaupa í hóp,
ganga í björgunarsveit, taka þátt í pólitík og vera meira áberandi, samt ekki of
því það fílar það enginn. Ef þú skyldir nú komast á stefnumót þá máttu alls ekki
tala um fyrrverandi, vinnuna, börnin, forsetaframboðið, náttúruvernd, kreppuna,
PIP púða eða pólitík...... Þú mátt alls ekki drekka of mikið, en heldur ekki of lítið,
vera of mikið máluð eða hlæja of hátt. Ekki svara við fyrstu hringingu, senda
of mörg sms eða taka frumkvæðið að hitting og fyrir alla muni þá verður þú að
muna að hann er veiðimaðurinn og þú ert gyðjan!!
Sjálfshjálparbókarfíkillinn: þetta er alls ekki svona flókið, farðu eftir þessu
þá getur það ekki klikkað. Byrjaðu á að lesa „Klúðraðu ekki lífi þínu kona“ og
stúderaðu bókina „Súperflört“ afturábak og áfram, pantaðu svo á amazon.com
„Why am I still single“ og „How to meet your match“ ásamt „How to make a
man fall in love with you“ eða „Make every man want you“!! Nú ef þú kemst á
stefnumót eru bækur eins og „Why do men love bitches“, „Rules of the game“
og „The pick up artist“ ómissandi og svo gæti verið gott að lesa „Hes just not
that into you“ eða „You lost him at hello“ og „Affairs of the net“. Um leið og
þú ferð í gegnum bækurnar „Is your man cheating on You“ og „The Tiger Wood
Syndrome“ mundi ég stinga í jakkavasann hans „How to treat a woman“ og
„A new ladies man“. Nú ef sambandið virðist eiga möguleika þá mundi ég ekki
fyrir nokkra muni sleppa bókinni „The secret lives of men“ „Before its to late“
og „Finding the hero in your husband“. Svo máttu ekki gleyma sjálfri þér í
öllu þessu og þá koma YOU bækurnar að góðum notum: YOU on a diet, YOU
being beautiful, YOU stressless, YOU staying young, YOU staying sexy and in
shape all the time.
Bíómyndanördin: ertu örugglega búin að stúdera „Pretty woman“, hallóóóó,
við erum að tala um gleðikonu sem fann draumamanninn, ríkan, myndarlegan
og með mikla tilfinningagreind. Eða „An officer and a gentleman“, verksmiðju-
stúlkan sem fékk herforingjann sinn að lokum! Og af því að þú ert kennari þá
er myndin „The mirror has two faces“ kannski málið. Kennarinn þurfti BARA að
breyta útlitinu til að maðurinn sem hún elskaði fattaði hvað hún væri gordjöss
í raun og veru en líka með heila. En ekki vera með of mikinn heila! Mundu að í
„The way we were“ þá þvældust metnaðurinn og hugsjónirnar bara fyrir Catie,
ekki viltu það, HA! Hún missti manninn út af því. Taktu svo „Titanic“ kvöld öðru
hvoru. Hverju fórnar maður ekki fyrir ástina þrátt fyrir að hafa aðeins þekkst í
nokkra daga. Við erum að tala um að maðurinn fraus fyrir HANA! Held þú þurfir
aðeins að skoða forgangsröðunina í lífi þínu!
Anna Lóa í vörn: Já en mikilvægasta sambandið í lífinu hlýtur alltaf að vera við
sjálfan þig (skrifaði meira að segja heilan pistil um það) – og ef ég er sátt og sæl
þá hlýtur hitt að koma ef það á að koma. Það er ekki eins og þetta sé það sem
skipti öllu máli. Það eru kostir og gallar við að vera einn og mér finnst þið sem
eruð í sambandi nú alveg vera gangandi sönnun þess. Það er alveg sama hvaða
aðstæður það eru sem við erum í, það er aldrei ein allsherjar sæla! Þannig er
bara lífið ekki, sama hvað hver segir (sniff).
Ráðgjafi, sjálfshjálparbókafíkill og bíómyndasjúklingur svara nánast samhljóma:
Mímímímí, blablabla – það VILL enginn vera einn, sættu þig við það og hættu
þessu rausi og „ég þarf að elska sjálfa mig og virða“ kjaftæði! Málið er einfalt:
finndu einhvern fola sem fullkomnar þig!!
Þangað til næst – gangi þér vel.
Anna Lóa
Finndu fola sem
fullkomnar þig!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Steypugljái á
stéttina í sumar
SUPERSEAL
TOP COAT
ATVINNA
Óskum eftir að ráða blikksmið eða
málmiðnaðarmann sem fyrst.
Blikksmiðja Ágústar Guðjónssonar Vesturbraut 14 Reykjanesbæ.
Umsóknir sendist á agblikk@simnet.is
Rauði kross Íslands
Suðurnesjadeild
Flóamarkaður
Föstudaginn 1. júní nk., verður haldinn
flóamarkaður að Smiðjuvöllum 8,
Reykjanesbæ, frá kl. 13:00 - 16:30.
BIFVÉLAVIRKI
ÓSKAST
Laghentir, bílaþjónusta, leitar að
bifvélavirkja til starfa í Reykjanesbæ.
Um er að ræða langtímastarf.
Upplýsingar veitir Guðmundur
í síma 861 7600 eða á staðnum, Iðjustíg 1 C
Vilja aukið
framlag vegna
fjarnáms á
Suðurnesjum
Fulltrúar Miðstöðvar símennt-unar á Suðurnesjum áttu fund
með stjórn Sambands sveitar-
félaga á Suðurnesjum á dögunum
til að að ræða þá stöðu sem upp
er komin með fjarnám á Suður-
nesjum.
Aðstaða er fyrir fjarnema á tveim
stöðum á Suðurnesjum, þ.e. í
Reykjanesbæ og Grindavík. Fjöldi
nemenda á hverri önn er 80-100
manns. Meðalaldur nemenda er 36
ár og stundar stór hluti nemenda
vinnu með námi.
Búseta fjarnema hefur verið greind
og var niðurstaðan sú að 87% út-
skrifaðra nemenda búa á Suður-
nesjum. Frá árinu 2004 hafa 107
nemendur útskrifast frá Háskól-
anum á Akureyri.
Eins og staðan er núna þá vantar
fjármuni til að standa undir rekstri
fjarnáms á Suðurnesjum á næstu
árum.
Stjórn S.S.S. samþykkir að fela for-
manni og framkvæmdastjóra að
fara í viðræður við Mennta- og
menningarmálaráðuneytið um
aukið framlag til svæðisins vegna
fjarnámsins í samráði við forsvars-
menn MSS.
Í framhaldi af þessum fundi bók-
aði bæjarráð Sveitarfélagsins Voga
eftirfarandi:
„Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga
styður að á næstu fjárhagsáætlun
Sambands sveitarfélaga á Suður-
nesjum verði því fé sem veitt er í
sérstök verkefni sveitarfélaganna
forgangsraðað þannig að Miðstöð
símenntunar á Suðurnesjum geti
boðið upp á fjarnám í hjúkrunar-
fræði næsta haust. Ef fundur S.S.S.
og M.S.S. með ríkinu bera árangur
og frekari framlög fáist í fjarnám
á Suðurnesjum á því tímabili sem
hjúkrunarfræðinámið stendur
yfir mun framlag sveitarfélaganna
lækka sem því nemur. Svæðið þarf
mjög á hjúkrunarfræðimenntuðu
fólki að halda ekki síst í öldrunar-
þjónustu og er fjarnám í hjúkrunar-
fræði mikilvægt fyrir þá uppbygg-
ingu í hjúkrunarmálum aldraðra
sem nú er að fara af stað“.
Stjórn S.S.S. tekur á síðasta fundi
sínum undir með Sveitarfélaginu
Vogum að brýnt sér að bjóða upp á
aðstöðu til fjarnáms á Suðurnesjum.
Stjórnin mun aðstoða M.S.S. til að
leita leiða við að finna fjármagn svo
hægt sé að halda uppi þjónustu við
fjarnema á Suðurnesjum. Nauðsyn-
legt er að ríkið komi til móts við
M.S.S. og sveitarfélögin á Suður-
nesjum með því að styrkja fjarnám
á svæðinu til jafns við aðra lands-
hluta. Þannig væri hægt að tryggja
áframhaldandi fjarnám hjá M.S.S.
Átján ára á 156
kílómetra hraða
Sautján ökumenn
reyndust aka
yfir leyfilegum
hámarkshraða við
umferðareftirlit
lögreglunnar á
Suðurnesjum
nú um helgina. Ellefu ökumenn
gerðust brotlegir með þeim hætti
á aðeins þremur klukkustundum.
Ökumennirnir sautján mældust
allir á of miklum hraða á Reykja-
nesbraut. Einn þeirra var 18 ára
piltur, sem mældist á 156 kíló-
metra hraða. Hann þarf að greiða
140 þúsund krónur í sekt og fær
þrjá punkta í ökuferilsskrá.