Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.05.2012, Qupperneq 17

Víkurfréttir - 31.05.2012, Qupperneq 17
17VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 31. MAí 2012 Heilsudagar í Kríunesi Dagana 06 - 10 júní Guðbjörn Gunnarsson Einka- markþjálfari Anna Katrín Ottesen Sjúkraþjálfari Matti Ósvald Stefánsson M.Th.-NLP Pr. Heilsuráðgjafi Aðrir leiðbeinendur: Björn I. Stefánsson framkvæmdastjóri Örn Jónsson nuddari Markmiðið er: Basískur líkami. Hugafarsbreyting til framtíðar. Meðvitund um að líkaminn er musteri sálarinnar. Læra æfingar sem auðvelt er að viðhalda. Jóga Nánari upplýsingar og skráning: Sími 8972400 www.kriunes.is ingi@kriunes.is Fræðsla - hugleiðsla - markþjálfun - bátar - hjól - þrek - göngur YFIR 100 HJÓL AF ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM verða til sýnis á stórglæsilegri sýningu - Boðið verður uppá kaffi og kökur fyrir gesti - Ýmis fyrirtæki verða með vörur til sölu og sýnis - húðflúr og airbrush - hoppukastalar og andlitsmálun fyrir börn, þannig að allir ættu að finna einhvað við sitt hæfi, bæði hjólafólk og aðrir gestir - Tónlistaratriði og margt fleira verður í boði - Kl. 15:00 verður viðgerðarhlé fyrir utan höllina í Tjarnargrill rallýinu sem fer fram þessa sömu helgi - Þannig að tilvalið er fyrir allt áhugafólk um mótorsport að láta sjá sig - Kveðja Ernir ›› Andrea Björg Jónsdóttir með hæstu einkunn frá FS: Andrea Björg Jónsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi þegar út- skrift Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram um síð- astliðna helgi. Andrea segist stefna á læknisfræði en hún heillaðist af læknisfræðinni þegar hún fór á háskóladagana á síðasta ári. „Þá sá ég mig ekki vera neitt annað en lækni í framtíðinni,“ sagði Andr- ea í samtali við Víkurfréttir. Andrea fékk einnig viðurkenningu fyrir góðan árangur í ensku, fyrir spænsku og hún fékk gjöf frá danska sendiráðinu fyrir árangur sinn í dönsku. Andrea Björg fékk viðurkenningar frá skólanum fyrir árangur sinn í stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði og hún fékk einnig gjafir frá Íslenska stærðfræða- félaginu og Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir árangur sinn í stærðfræði og frá Háskólanum í Reykjavík fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi. Andrea Björg fékk svo 100.000 kr. styrk úr Skólasjóði Fjölbrautaskólans fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi. Landsbankinn veitti Andreu svo viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og góðan árangur í tungumálum, stærðfræði og raungreinum. Skipulag er númer eitt, tvö og þrjú að mati Andreu þegar kemur að náminu en hún segir það einnig mikil- vægt að vera þolinmóður og hafa gaman af náminu. „Ég hef alltaf verið mjög skipulögð, en að mínu mati er skipulag númer eitt, tvö og þrjú. Það hjálpaði mér einnig mjög mikið að vinna jafnt og þétt, ekki fresta hlutunum fram á síðustu stundu,“ segir Andrea. Andrea hélt stóra útskriftarveislu um síðustu helgi þar sem hún bauð fjölskyldunni og vinafólki, en síðan komu vinir hennar í heimsókn um kvöldið á útskriftar- deginum. Hún gerði svo vel við sig í tilefni áfangans og keypti sér iPhone. „Það var smá útskriftargjöf frá mér til mín,“ en Andrea hefur tvö síðustu ár unnið í Kaskó í Keflavík með skólanum. Hún segir það vera mjög þægilega vinnu með skóla. Uppáhalds fag Andreu hefur alltaf verið stærðfræði, en hún hefur alltaf átt tiltölulega auðvelt með að skilja hana að eigin sögn. „Ég sá samt hvað ég hafði gaman af að læra um mannslíkamann þegar ég fór í LOL (líf- færa- og lífeðlisfræði) áfangana í FS. Mér fannst þeir rosalega skemmtilegir.“ Andrea æfði sund á árum áður en hún hefur mjög gaman af ýmiss konar hreyfingu. „Ég hef haldið áfram að stunda líkamsrækt á hverjum degi eftir að ég hætti, enda þekki ég ekki neitt annað. Vinir mínir hafa líka alltaf átt stóran part í mínu lífi, en ég kynntist einmitt bestu vinkonum mínum í gegnum sundið. Svo finnst mér einnig gaman að ferðast og sjá og upplifa nýja hluti. Ég ætla mér að vera dugleg að ferðast í fram- tíðinni.“ Andrea hafði upphaflega hugsað sér að fara í Mennta- skólann í Reykjavík en ákvað að sækja um í FS þar sem hún var enn að æfa sund. Hún segist ekki sjá eftir þeirri ákvörðun en hún upplifði margt skemmtilegt í FS og kynntist fullt af frábæru fólki, bæði kennurum og nemendum. Andrea ætlar fyrst og fremst að vinna hjá bílaleigunni Hertz í sumar. Hún gerir svo örugg- lega eitthvað skemmtilegt þegar hún á frí, en segir það ekkert vera ákveðið. Dúxinn verðlaunaði sig með iPhone Laugardaginn 2. júní næstkomandi mun Ernir, bifhjólaklúbbur Suðurnesja, halda sitt árlega Arnarkast, en þetta er leikur þar sem hjólað er um Reykjanesið og stoppað á fyrirfram ákveðnum stöðum þar sem kastað er teningum. Einnig verður tekið þátt í Sjóaranum síkáta með Grindjánum, í lokin eru síðan veitt verðlaun fyrir hæstu skorin. Þeir sem taka þátt í þessum leik greiða ákveðið þátt- tökugjald, eins og undanfarin ár mun ágóðinn renna til góðs málefnis. Að þessu sinni mun klúbburinn styrkja Fjölskylduhjálp Íslands á Suðurnesjum Hjólakveðjur, stjórnin. Neftóbak í salerni Öryggisgæsla í Flugstöð Leifs Eiríkssonar tilkynnti á föstudag lög-reglunni á Suðurnesjum um grunsamlegan poka í almennings- salerni í flugstöðinni. Pokinn var tekinn í vörslu lögreglu og afhentur tollgæslunni til skoðunar. Ekki reyndist vera um fíkniefni að ræða í pokanum, eins og grunur lék á í fyrstu, heldur innihélt hann líklegast neftóbak. Pokinn vóg um 530 grömm og var tóbakið blautt. Líklegt er talið að því hafi átt að sturta niður en það hafi ekki tekist. Pokanum var fargað. Ellefu óku of hratt Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sjö hinna brotlegu ökumanna óku um Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Sá sem hraðast ók mældist á 134 kíló- metra hraða. Þá voru þrír staðnir að of hröðum akstri á Njarðarbraut og einn á Grindavíkurvegi. Með loftbyssu og skotfæri í Leifsstöð Lögreglunni á Suðurnesjum var nýverið gert viðvart um að karl-maður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggis- gæslu á farangri mannsins. Eigandinn, erlendur ferðamaður, kvaðst hafa komið með skipi frá Noregi og vera á leiðinni til Grænlands með flugi. Honum var gerð grein fyrir að óleyfilegt væri að ferðast með muni af þessu tagi og lagði lögregla síðan hald á loftbyssuna, tvo kassa af loft- þrýstihylkjum og fjögur box af skotfærum. Arnarkast á laugardaginn Auglýsingasím inn er 421 0001

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.