Víkurfréttir - 31.05.2012, Blaðsíða 21
21VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 31. MAí 2012
n Auglýsingadeild í síma 421 0001
n Fréttadeild í síma 421 0002
n Afgreiðsla í síma 421 0000
SJÓMANNADAGURINN
Sjómannamessa og dagskrá í Duushúsum sunnudaginn
3. júní kl. 11:00
- Sjómannamessa í Bíósal. Sr. Baldur Rafn Sigurðsson
í Bíósal.
- Stjórn Bátafélagsins afhendir ný bátalíkön
- Safnstjóri Byggðasafnsins kynnir sjóminjar í eigu
safnsins
- Aldraðir sjómenn segja frá
Í lok dagskrár verður lagður krans við
minnismerki sjómanna.
Sjómannadagstilboð á súpu á Kaffi Duus
HVAÐ EINKENNIR
GÓÐ SAMBÖND?
Fyrirlestur með dr. John M. Gottman miðvikudaginn
6. júní kl. 17:00 - 19:00 í Hörpu.
Viltu læra hvað einkennir góð sambönd og hvað
einkennir sambönd sem ganga ekki upp.
Er þitt samband eins og þú vilt hafa það?
Býr sambandið yfir þeim eiginleikum sem eru
nauðsynlegir til að það endist?
Miða á fyrirlestur dr. John M. Gottman er hægt að
kaupa hjá Þjónustuveri Reykjanesbæjar, Tjarnargötu
12 milli kl.09:15 – 15:30 fram til 5. júní.
Miðaverð kr. 4000,-
Opinn kynningarfundur um um endurskoðun
Aðalskipulags Keflavíkurflugvallar
Opinn kynningarfundur um endurskoðun Aðalskipulags Keflavíkurflugvallar 2012 - 2030, verður haldinn í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar, 3. hæð (Marklandi), fimmtudaginn 7. júní kl. 16:30 - 17:45.
Þar verður almenningi og öðrum hagsmunaaðilum gefin kostur á því að kynna sér leiðarljós og áherslur vinnuhóps
aðalskipulags Keflavíkurflugvallar. Á fundinum verður farið yfir helstu viðfangsefni sem eru mikilvæg fyrir
hagsmuni og þróun Keflavíkurflugvallar. Að undanförnu hefur vinnuhópur aðalskipulags unnið að þarfagreiningu
Keflavíkurflugvallar og hefur þar litið til flugbrauta, flugstöðva, flugþjónustu, öryggis flugumferðar, samgangna og
veitna, og öryggissvæðisins. Á fundinum verða kynntar helstu niðurstöður greiningar og umfjöllunar um valkosti
og þær tillögur og áherslur sem áframhaldandi skipulagsvinna mun fylgja.
Tilgangur fundarins er að kynna þessar niðurstöður og er lögð áhersla á að fá fram sjónarmið og umræðu við fram-
lögð gögn áður en haldið verður lengra í skipulagsvinnunni.
Hægt verður að nálgast „Leiðarljós og áherslur skipulagsvinnu“, þann 6. júní á skrifstofu skipulagsfulltrúa
Keflavíkurflugvallar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og á heimasíðu Keflavíkurflugvallar:
http://www.kefairport.is/Flytileidir/Um-felagid/Skipulagsmal
Hægt verður að senda inn ábendingar um Leiðarljós og áherslur skipulagsvinnu til og með 5. júlí nk.
Senda skal þær til skipulagsfulltrúa, Sigurðar H. Ólafssonar, á póstfangið shol@isavia.is eða á skrifstofuna,
merktar Aðalskipulag Keflavíkurflugvallar.
Keflavíkurflugvelli, 29. maí 2012.
F.h. Skipulagsyfirvalda á Keflavíkurflugvelli
Sigurður H. Ólafsson, skipulagsfulltrúi.
Lærum og
leikum með
hljóðin gerir
samning við
365 miðla
Nýlega undirrituðu Bryndís Guðmundsdóttir talmeina-
fræðingur og Skarphéðinn Guð-
mundsson dagskrárstjóri samn-
ing um að sýna myndefni Lærum
og leikum með hljóðin sem hluta
af barnaefni á sjónvarpsrásum
365 miðla. Fyrstu sýningar hefj-
ast haustið 2012 og verður notað
myndefni og lifandi tónlist sem
Menningarráð Suðurnesja og
Samfélagssjóður Landsbankans
styrktu. Myndefnið hefur fengið
mjög góðar viðtökur hjá börnum,
foreldrum og skólum um allt
land. Hér er um séríslenskt efni að
ræða, með lifandi tónlist, sem er
mikilvægt framlag til menningar
og undirbúningsfærni barna fyrir
hljóðmyndun og lestur.
Bryndís Guðmundsdóttir mun
fylgja efninu úr hlaði og var m.a.
greint frá samningnum á nýaf-
stöðnu námskeiði Lærum og
leikum með hljóðin sem var
haldið fyrir Fræðsluskrifstofur á
Norðurlandi. Myndefni Lærum og
leikum með hljóðin verður sýnt í
litlum þáttum þar sem færi gefst á
að vinna skipulega í samstarfi við
skóla og fjölskyldur með hvert og
eitt málhljóð.
Ýmis ný verkefni eru á döfinni hjá
Raddlist sem gefur út og framleiðir
Lærum og leikum með hljóðin.
Fyrirhuguð er spjaldtölvuútgáfa
og útgáfa á nýju efni í hljóðkerfis-
vitund sem byggir á aðferðafræði
Lærum og leikum með hljóðin;
Hljóðalestin, auk þess sem útgáfa
og rannsóknavinna erlendis er í
undirbúningi.
Pálmi Guðmundsson framkvæmdastjóri Dagskrársviðs 365 miðla og
Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri sem hér eru með Bryndísi Guð-
mundsdóttur handsöluðu samninginn hjá 365 miðlum.