Víkurfréttir - 31.05.2012, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGURINN 31. MAí 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Menn eru spenntir fyrir þessum leik og það er komin stemning í bæinn enda Sjóarinn
síkáti að detta í gang,“ segir Óskar Pétursson
markvörður Grindvíkinga en Grindvíkingar taka
á móti taplausum Skagamönnum á laugardaginn
klukkan 16:00 á laugardag. Óskar gerir sér grein
fyrir því að ekki sé hægt að hrópa húrra fyrir
gengi liðsins það sem af er tímabili og hann er
ekki frá því að hann sé orðinn slappur í bakinu
eftir að hafa náð í boltann úr netinu 16 sinnum í
aðeins fimm leikjum. „Við erum fyrst og fremst
að vinna í því að skipuleggja okkur varnarlega.
Um leið og við náum að stoppa í götin þá verður
þetta allt annað, því við erum með menn sem
geta skorað,“ segir Óskar.
Grindvíkingar létu tvo leikmenn fara í vikunni en
það voru þeir Gavin Morrison og Jordan Edridge
sem ekki þóttu standa undir væntingum. „Það
er leiðinlegt að missa þá því maður var búinn að
kynnst þeim. En þetta er bara ákvörðun sem er
tekin og við bara stöndum og föllum með henni og
gott að sjá að eitthvað er verið að gera til að breyta
genginu.“
Óskar segist bíða spenntur eftir því að sjá leikmann
eins og Hafþór Ægi koma á völlinn aftur en hann
hefur verið mikið meiddur síðustu árin. Hafþór,
ásamt Paul McShane og Magnúsi Björgvinssyni, eru
allir að stíga upp úr meiðslum og eiga vafalaust eftir
að styrkja sóknarleik
Grindvíkinga. „Það er
samt engin markastífla
hjá okkur, við verðum
bara að hætta að fá öll
þessi mörk á okkur.“ Í
s í ð a s t a l e i k n á ð u
G r i n d v í k i n g a r a ð
skora tvö mörk undir
lokin og jafna 3-3 gegn
Selfyssingum og krækja
í stig. „Það er alltaf gaman
að koma til baka en ég hefði
viljað skora eitt í viðbót og stela
sigrinum,“ sagði Óskar.
Hvernig verður að mæta
Skagamönnum?
„Þeir eru með sterka leikmenn og
það er sjálfsagt hugur í mönnum
enda hefur þeim gengið vel. Við
erum samt bara betri ef eitthvað
er á móti þessum svokölluðu stóru
liðum þannig að ég held að það verði
bara helvíti gaman á laugardaginn. Það
er kominn tími til þess að þeir tapi og við náum að
fylla völlinn,“ sagði Óskar að lokum.
útspark Ómar JÓhannsson
Ómar Jóhannsson, markvörður og
starfsmaður í Fríhöfninni sparkar
pennanum fram á ritvöllinn.
súrt tap, sætur sigur
Nú er fótboltasumarið komið á fullt og allir ánægðir. Við hjá
Keflavíkurliðinu höfum verið frægir fyrir það að blása í einhverja
blöðru af öllu afli í byrjun móts. Svo bíða allir spenntir eftir
að blaðran springi, sem gerist stundum, og við sígum niður
töfluna. Við höfum blásið heldur varlegar í blöðruna árið 2012 en
síðustu sumur og farið rólegar af stað í stigasöfnun en oft áður. Að
sjálfsögðu gerum við það ekki viljandi, fótboltinn er bara svona
skrítinn. Stundum vinnurðu og stundum taparðu, það er að segja
þegar leikirnir fara ekki jafntefli. Það þarf samt ekki að vera neinn
dauði og djöfull þó að við förum rólega af stað. Spilamennskan
hefur fyrir það mesta verið jákvæð og margir ungir og efnilegir
leikmenn að byrja vel. Ef ég hefði fengið að ráða þá hefðum við
reyndar verið búnir að vinna alla okkar leiki hingað til. Ég fæ
engu að ráða, ég er bara markmaður.
Það væri samt allt svo miklu einfaldara ef við gætum bara unnið
alla leiki. Allt verður aðeins erfiðara og leiðinlegra þegar maður
tapar. Ég verð aðeins erfiðari og leiðinlegri þegar ég tapa, spyrjið
bara konuna mína. Maturinn eftir tapleik er ekki jafn góður og
eftir sigur. Maður er lengur í gang á morgnana eftir tapleik heldur
en sigurleik, í mínu tilfelli kemur það sér mjög illa, það þýðir að ég
er farinn að virka í kringum hádegi eftir tapleik. Svo þegar kemur
að æfingu eftir tapleik er hún langt í frá jafn skemmtileg og eftir
sigur. Menn eru að hittast í fyrsta sinn eftir leikinn og kryfja hann.
Það er ólíkt skemmtilegra að fara yfir eitthvað sem heppnast vel
og var skemmtilegt heldur en lélegan tapleik fullan af mistökum.
Sigurleikir eru fullir af mistökum alveg eins og tapleikir, þau eru
bara auðveldlega fyrirgefin þar sem leikurinn vannst.
Ég hef spilað einhverja fótboltaleiki um ævina og tapað nokkrum
því miður og það venst aldrei. Ef maður venst því að tapa er maður
í vondum málum. Maður lærir samt á sjálfan sig eftir nokkur ár
í boltanum. Það er drullufúlt að tapa en ef maður ætlar að berja
sig í hausinn eftir hvert tap er maður mjög líklega lengur að ná
sér eftir það. Líkurnar á því að þú vinnir hljóta að minnka í hvert
sinn sem þú brýtur þig niður í huganum. Sigrarnir eru fljótir að
bæta upp allar slæmu tilfinningarnar sem fylgja tapleikjum. Eins
og fyrir töfra verður allt betra og jákvæðara við að vinna leik. Við
vorum búnir að tapa tveimur leikjum í röð áður en við mættum
ÍBV. Ekki fallegasti sigur sem við höfum unnið en mikið ofsalega
var hann ljúfur. Svo ljúfur að ég spáði Íslandi í fyrsta sæti í
Júróvision partíinu á laugardaginn. Ekki mjög raunhæft kannski
en mikið ofsalega er gaman að vinna.
Það má gera ráð fyrir því að þetta verði léttur og skemmtilegur leikur. Kristján vinur minn
vill spila skemmtilegan bolta eins og við og því
má búast við fjörugum leik,“ segir Guðmundur
Steinarsson framherji Keflvíkinga en þeir fara
á Hlíðarenda í kvöld og mæta þar Kristjáni
Guðmundssyni og Valsmönnum. Með sigri geta
Keflvíkingar farið upp í fjórða sæti en liðið er þessa
stundina í því fimmta. „Við ætluðum fyrir mót að
gera okkar heimavöll að vígi en við töpuðum gegn
Stjörnunni á heimavelli og því verðum við að
vinna það upp á útivelli, það væri ágætt að byrja
á því núna,“ hann segist jafnframt vera svekktur
með tapið gegn Stjörnunni og einnig gegn ÍA uppi
á Skaga. „Þar hefði ég viljað ná í stig en svona heilt
yfir þá er ég alveg þokkalega sáttur.
„Það er dálítið verið að breyta um leikstíl frá síðustu
tveimur árum og svo eru tveir ungir menn, þeir
Frans (Elfarsson) og Arnór Ingvi (Traustason) að
stjórna spilinu á miðjunni. Það er alltaf áhætta að
fá svo unga leikmenn í þessi hlutverk en þeir hafa
verið að standa sig mjög vel og það hefur í raun
tekið styttri tíma að púsla liðinu saman en ráð var
gert fyrir.
Hefðu þessir leikmenn átt að fá
sénsinn í U-21 liði Íslands?
„Það hefur nú oft verið þannig að þeir sem hafa verið
að spila stór hlutverk í sínum liðum hafa verið að fá
séns í landsliðunum. Mér finnst alla vega skrýtið að
þeir skuli ekki hafa verið kallaðir inn í hópinn a.m.k.
Það er oft verið að velja menn sem eru á samningi
erlendis bara af því að þeir eru þar. Þegar farið er
að grafa dýpra þá eru þeir kannski ekkert að spila
að ráði. Ég hefði alltaf tekið mennina sem eru í
leikstandi og eru að skila sínu hérna heima.“
En hvernig er það, eiga menn að halda þér í
fantasy-liðinu, fara mörkin að detta inn?
„Ég segi nú yfirleitt fólki að taka mig úr liðinu, svo
þegar ég fer að skora þá fæ ég einn öll stigin,“ segir
Guðmundur og hlær. Að lokum vildi Guðmundur
hvetja fólk til þess að mæta með rútunni á leikinn
og spara sér bensínið.
Bið fólk um að taka
mig úr fantasy-liðinu
-segir Guðmundur Steinarsson
Kominn tími á að
Skaginn tapi
- stórleikur á Sjóaranum síkáta
Birgir Leifur Hafþórsson, besti kylfingur Íslands sigraði á fyrsta móti Eimskipsmótaraðarinnar í
golfi sem fram fór á Hólmsvelli í Leiru um síðustu
helgi. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Íslandsmeistari
kvenna 2011 var best í kvennaflokki.
Birgir Leifur lék mjög gott golf, var fyrri daginn á pari í
miklum vindi en lék seinni hringinn á 4 undir
pari og vann með tveimur höggum. Annar varð
Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi
Reykjavíkur. Klúbbmeistari Golfklúbbs Suðurnesja,
Guðmundur Rúnar Hallgrímsson varð í 25. sæti og náði
sér ekki á strik í mótinu. Klúbbmeistari kvenna hjá GS,
Karen Guðnadóttir varð í 11. sæti af 25 þátttakendum í
meistaraflokki kvenna.
Birgir Leifur bestur
á Hólmsvelli í Leiru
VF-mynd/pket.
Birgir Leifur á teig á 3. braut, Bergvíkinni
þegar Kári blés duglega.