Neytendablaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 4
Steinar Júlíusson hefur verið félagsmaður í Neytendasamtökunum
í mörg ár. Hann hefur í áratugi búið í húsnæði á vegum húsnæðis
samvinnufélaga og hefur mikla reynslu af slíkum félögum bæði
hérlendis og erlendis. Steinar segir erfitt að skilja hvers vegna svo
margir Íslendingar séu tilbúnir að skuldsetja sig langt fram í tím ann
til þess eins að geta búið í einkahúsnæði. Búseturéttur sé góður
kostur og geri fólki kleift að búa í góðu húsnæði án þess að skuld
setja sig áratugi fram í tímann. Neytendablaðið ákvað að fræðast
meira um málið.
Margir kostir
Steinar og eiginkona hans, Guðrún Jónasdóttir, hafa búið í
hús næðis samvinnufélagsíbúð á Íslandi undanfarin 19 ár. Sjálfur er
Stein ar í stjórn Búmanna hsf. og þau hjónin eru með búseturétt í
íbúð á vegum Búseta hsf. Steinar segir þau mjög ánægð með þetta
fyrirkomulag og að þau myndu ekki skipta aftur yfir í hefðbundið
íslenskt húsnæðis kerfi aftur. „Kostirnir eru margir,“ segir Steinar.
„Við þurfum t.d. ekki að hafa áhyggjur af viðhaldi eða standa í
karpi við fasteignasala og iðnaðarmenn. Þannig spörum við tíma
og áhyggj ur sem fylgja kaupum á séreignaríbúð. Kostnaðurinn
er sann gjarn og við greiðum mánaðarlega sameiginleg gjöld og
skyld ur af íbúð og húsi auk smá upphæðar í viðhaldssjóð. Búsetu
formið er að okkar mati gott; rólegt og öruggt sambýli og alls ekki
síðra en í sambærilegum íbúðarhúsum.“
Húsnæðissamvinnufélög víða um heim
„Fyrstu kynni mín af húsnæðissamvinnufélögum voru árið 1987
þegar ég bjó í tvö ár í slíku húsnæði í Osló. Til marks um það
hversu vinsæl slík félög eru í Noregi hefur stærsta félagið, OBOS,
með þriðju hverju íbúð að gera á Oslósvæðinu.“
En það er ekki bara á Norðurlöndum sem slík félög gegna mikil
vægu hlutverki. Þau eru t.d. afar sterk í Kanada og Steinar segir
einnig merkilegt að í hinum kapítalísku Bandaríkjum sé starfsemin
mjög öflug og bendir á að í New York sé að finna stærsta sam félag
húsnæðissamvinnufélaga í heimi með u.þ.b. 3,8 miljónir félags
manna. „Íbúðirnar eru í sjálfri miðborginni, á bestu stöðum borgar
innar, og í þeim býr fólk af öllum stéttum. John Lennon og Yoko
Ono bjuggu til að mynda í slíku húsi.“
Berlín reist úr rústum
Steinar tekur dæmi um hlutverk húsnæðissamvinnufélaga við
endur reisn Berlínar: „Heimsborgin Berlín var nánast rústir einar fyrir
64 árum. Ekki eitt einasta hús á margra ferkílómetra svæði var heilt
en íbú arnir stofnuðu húsnæðissamvinnufélög sem endurbyggðu
íbúðar húsin í borginni á undraskömmum tíma. Berlínarborg er
löngu risin úr rústunum og endurreisnin gekk fljótt. Borgin er nú
þægi leg og mikil menningarborg sem gaman er að heimsækja.
Enn þá búa um 80% íbúa borgarinnar í húsum húsnæðisfélaga, fólk
af öll um stéttum; læknar, prófessorar, verkamenn og kennarar.“ Steinar Júlíusson
Húsnæðissamvinnufélög
– góður kostur
Allir þurfa þak yfir höfuðið. En hvers vegna vilja Íslendingar endilega eiga það?
4 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2010