Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.07.2012, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 12.07.2012, Blaðsíða 8
FIMMTUDAGURINN 12. júLí 2012 • VÍKURFRÉTTIR8 Kirkjunni hefur oft verið breytt í gegnum tíðina en þær inn- réttingar sem nú eru í henni eru frá lokum 7. áratugarins og eru eftir teikningum Ragnars Emilssonar arkitekts. Meðal þess sem gert var má nefna að söngloftið, sem var úr tré, var rifið burt. Nýja söngloftið er eins stórt og framast er kostur vegna gluggaskipunar, bogadregið að framan og steinsteypt, nema hvað ofan á bogadreginni stein- bríkinni er eikarhandrið. Þá voru nýjar grátur og predik- unarstóll smíðuð í stíl við vegg- þiljurnar. Í kirkjuna komu nýir bólstraðir kirkjubekkir. Þeir voru að stærstum hluta gjöf frá Systrafélagi Keflavíkurkirkju, sem stofnað var 12. mars 1965. Einnig voru allar hurðir endur- nýjaðar nema útihurðirnar. Lýsingu kirkjunnar var ger- breytt. Sett var upp tvöföld röð af ljósakrónum, fjórar í hvorri röð. Gömlu ljósakrónurnar þrjár, sem aflagðar voru við stækkunarfram- kvæmdirnar, voru svo settar upp að nýju fyrir jólin 1974. Kirkjan var svo endurvígð árið 1967. Fyrsta steinda glerlistaverkið sem kirkjan eignaðist er í hring- glugganum á framhlið kirkjunnar. Verkið er enskrar gerðar frá 1968. Steindu gluggana í kirkjuskipinu og kór kirkjunnar teiknaði Benedikt Gunnarsson listmálari. Þeir voru gerðir í Þýskalandi í samráði við Benedikt og voru settir í kirkjuna árið 1977. Breytingin á kirkjunni á þessum tíma var mjög róttæk og breytti algjörlega svip Keflavíkurkirkju að innan. Fyrir breytingarnar var oft talað um það að Kefla- víkurkirkja væri ein fallegasta kirkja landsins að innan. Fyrir þessar breytingar þótti kikjan svo stílhrein og að birtan flæddi inn um gluggana. Breytingarnar voru hins vegar barn síns tíma. Nú er sem sagt vilji til þess innan Keflavíkurkirkju að hverfa aftur til upprunalegs útlits og er í gangi vinna sem miðar að því að finna liti sem notaðir voru þegar kirkjan var vígð 1915. Helstu breytingar verða þær að panell fer af veggjum, gráturnar við alt- arið verða í upprunalegu útliti, gamli predikunarstóllinn verður færður í upprunalegt útlit, skipt um gólfefni í kirkjunni og bekkir færðir í upprunalegt horf en hafðir þægilegir að sitja á. Þá munu steindir gluggar verða teknir úr kirkjunni og sett í hana venjulegt gler til að hleypa inn náttúrulegu ljósi. Þá verður upprunalegur litur settur á ramma altaristöflunnar og upprunalegi predikunar- stóllinn fær sinn sess að nýju. Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir, formaður sóknarnefndar Keflavíkurkirkju, sagði í samtali við Víkurfréttir að nauðsynlegt viðhald væri aðkallandi og því yrði tækifærið notað til að koma kirkjunni í upprunalegt útlit. Meirihluti bæjarráðs Reykja-nesbæjar vísaði í liðinni viku tillögu fulltrúa Samfylkingar frá um að gerð verði sjálfstæð úttekt á fyrirliggjandi samnings- drögum við Eignarhaldsfélagið Fasteign og fjárhagslegum skuld- bindingum. Vísað var til þess að vinnan stendur enn. Í bókun fulltrúa Samfylkingar segir að það sé miður að meirihluti bæjarráðs Reykjanesbæjar skuli ekki samþykkja tillögu bæjarfull- trúa Samfylkingarinnar sem vísað var til bæjarráðs af bæjarstjórn þann 26. júní sl. Í henni var lagt til að bæjarráð sameinist um að ráða óháðan sérfræðing, sem ekki hefur starfað fyrir Eignarhalds- félagið Fasteign né Capacent, og feli honum að gera sjálfstæða úttekt á fyrirliggjandi samningsdrögum og fjárhagslegum skuldbindingum. Niðurstöðurnar yrðu síðan kynntar fyrir bæjarstjórn áður en til endan- legrar staðfestingar bæjarstjórnar kemur á samningi Reykjanesbæjar við EFF. „Ljóst er að afdrif EFF mun hafa áhrif á fjárhag bæjarins til langrar framtíðar næstu árin og því eðlilegt að íbúar bæjarins verði upplýstir um málið og sé gefið tækifæri á að tjá skoðun sína.“ Framkvæmda- leyfi fyrir 18 holu golfvelli á Vatns- leysuströnd Umsókn Golfklúbbs Vatns-leysustrandar um fram- kvæmdaleyfi til uppbyggingar 18 holu golfvallar á landi ofan Vatns- l e ysustr and ar- vegar var tekin fyrir í bæjarráði Sveitarfélagsins Voga í vikunni. Bæjarráð samþykkir veitingu framkvæmdaleyfisins í samræmi við bókun nefndarinnar. Í dag rekur Golfklúbbur Vatnsleysu- strandar 9 holu golfvöll að Kálfa- tjörn. Steypa kantstein í Grindavík Sumarið er tími ýmissa fram-kvæmd a. G angstíg agerð verður fyrirferðamikil í Grindavík í sumar og meðal annars verður settur kantsteinn víða áður en gangstéttarnar verða lagðar. Myndin var tekin við tjaldsvæðið í Grindavík þar sem var verið að steypa kantstein í blíðskaparveðri, segir á vef Grindavíkurbæjar. Kirkjan færð í upprunalegt horf fyrir 100 ára afmælið KeFlaVíKurKirKja fagnar 100 ára afmæli árið 2015 og til að fagna þeim tímamótum er spennandi starf komið í gang innan kirkjunnar sem m.a. miðar að því að færa kirkjuna í upprunalegt form, svo langt sem hægt er að fara með það verkefni miðað við nútíma þarfir og af því að kirkjan sjálf hefur stækkað í báða enda, ef svo má að orði komast. Þannig er komið nýtt anddyri á kirkjuna og KÓriNN (sem er svæðið í kringum altarið) er einnig í síðari tíma viðbyggingu. ›› FRÉTTIR ‹‹ „Eðlilegt að íbúar verði upplýstir“ Sr. Erla Guðmunds- dóttir, Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir formaður sóknarnefndar og Sr. Skúli S. Ólafsson sóknarprestur Keflavíkurkirkju. Í fangi hans situr sonur hans, Guð- jón Ingi Skúlason. Ásýnd innandyra á eftir að verða allt önnur eftir að breytingum lýkur.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.