Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.07.2012, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 12.07.2012, Blaðsíða 10
FIMMTUDAGURINN 12. júLí 2012 • VÍKURFRÉTTIR10 ›› FRÉTTIR ‹‹ Á Náttúrustofu Reykjaness hefur helsta verkefnið undanfarin ár verið fuglarannsóknir og rann- sóknir á lífríki fjöru. Gróðurfar heyrir einnig undir stofuna og segir Gunnar Þór að það sé eitt af verkefnunum að skrá plöntur og gróður sem ekki hafi áður fundist á svæðinu. Þá er tekið við upplýs- ingum um náttúrufar og stunduð almenn náttúrufarsvöktun sem er útbreiðsla og fjöldi lífvera. Verkefnin eru viðamikil en starfs- fólkið fátt og það þarf að halda vel utan um allar skráningar. Upp úr 1990 var gerð úttekt á 10x10 ferkílómetra reitarskala á Reykjanesskaga á útbreiðslu varp- fugla. Gunnar segir að þessari úttekt hafi ekkert verið fylgt eftir og því sé nauðsynlegt að gera aðra úttekt til að fá samanburð. Gunnar segist þó vita að miðað við þessa könnun sem gerð var upp úr 90, þá hafi orðið töluvert miklar breytingar. Þá eru bæði tegundir eins og starri sem hefur dreift sér og ýmsar andartegundir eru komnar sem ekki voru áður. Þá eru einnig dæmi þess að tegundum hafi fækkað og þá hjá sendlingum og snjótittlingum. Gunnar hefur á síðustu árum fylgst með ástandi kríunnar sam- hliða rannsóknum á sílamávi og segist hann sjá ótrúlega margt svipað þar. Þegar það gengur vel hjá kríunni, þá gengur einnig vel hjá mávinum. Þessir tveir fuglar eiga sér samnefnara sem við teljum vera sandsíli. Á vorin veiðir Náttúrustofa Reykjaness nokkuð af sílamávi til rannsókna og merkinga. Í vor var mönnum ljóst að mávurinn var í betra líkamsástandi en oft áður. Þá virðist sem varpið Endurgreiðsla kostnaðar vegna tann- lækninga barna hækkar tímabundið - Hækkunin gildir frá 1. júlí til næstu áramóta. Tímabundnar úrbætur fyrir tannheilsu barna. Tannheilsa barna hefur verið þó nokkuð í umræðunni og vaxandi áhyggjur af tann- heilsu barna, sérstaklega þeirra barna sem búa við efnahagslegar þrengingar og fátækt. Rekja má þessar áhyggjur m.a. til deilu um gjaldskrá vegna tannlækninga sem ríkið hefur ekki samþykkt að taka mið af við útreikninga sína um endurgreiðslur, en einnig til þeirrar kaupmáttarrýrnunar og kjaraskerðinga sem heimili landsins hafa orðið fyrir í kjölfar efnahagshruns fjármálakerfisins á Íslandi 2008. Í reglugerð um þátttöku sjúkra- trygginga er kveðið á um 75% greiðsluþátttöku vegna tannlækn- inga barna og er þá miðað við hina opinberu gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands. Ef gjaldskrá tannlæknis er hærri en opinbera gjaldskráin greiðir sjúklingurinn mismuninn sem skýrir að endurgreiðsla raun- kostnaðar hefur verið mun lægri en nemur 75% frá því að samningar hins opinbera við tannlækna féllu úr gildi. Með núverandi hækkun á endur- greiðslu kostnaðar Sjúkratrygginga Íslands er áætlað að hlutfall endur- greiðslu raunkostnaðar hækki úr tæpum 42% í að meðaltali í 62,5%. Getur hér munað nokkru fyrir pyngju heimilanna og eru foreldrar hvattir til að kynna sér þessar breyt- ingar. Gunnar Þór HallGrímsson er forstöðumaður náttúrustofu reykjaness sem staðsett er á Fræðasetrinu í sandgerði. stofan er ekki stór, því þar starfa einungis tveir starfs- menn. náttúrustofa reykjaness á hins vegar í góðu samstarfi við aðrar stofnanir í hús- inu þannig að samlegðaráhrif eru mikil. náttúrustofa reykjaness er ein af sjö náttúru- stofum sem dreifðar eru hringinn í kringum landið. stofurnar eru í eigu sveitarfélaga á sínu svæði en reknar með stuðningi frá ríkinu og starfa eftir lögum sem gilda fyrir náttúrufræðistofnun íslands og þessar náttúrustofur. Hlutverk náttúrustofu reykjaness er að skrá og skoða náttúrufar á sínu svæði sem er reykjanesskaginn. ›› Náttúrustofa reykjaNess Krían og sílamávurinn haldast í hendur Sumarlestur á bókasafn- inu í Garði Le s t r a r á t a k n e m e n d a Gerðaskóla hófst í byrjun júní á Bókasafninu í Garði og stendur yfir frá júní - ágúst- loka. Átakið fór vel af stað, enn er nægur tími til að hefja þátt- töku. Við viljum hvetja foreldra til að koma með börnunum á bóka- safnið og aðstoða þau við val á bókum og styðja þau þannig í þessu skemmtilega verkefni. Nánari upplýsingar gefur bókavörður á opnunartíma safnsins sem er opið: Mánudaga – Fimmtudaga frá kl. 15.00 – 18.00. Opið í allt sumar! Víkurfréttir hafa flutt ritstjórnarskrifstofur blaðsins að Krossmóa 4 í Reykjanesbæ

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.