Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.07.2012, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 12.07.2012, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 12. júLí 2012 13 ›› Skötumessan 2012 í Garði: STARFSSVIÐ • Aðstoða starfsmenn deildarinnar við ýmis dagleg störf svo sem við söfnun og frágang tæknigagna er varða viðvarandi lofthæfi flugvéla • Umsjón með útgáfu og dreifingu á ýmsum skýrslum deildarinnar • Skrá og halda utan um fundagerðir HÆFNISKRÖFUR • Stúdentspróf eða sambærilegt tæknipróf • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta • Góð almenn tölvufærni í Excel, Word og Autocad • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð • Góðir skipulagshæfileikar • Mikilvægt að viðkomandi hafi áhuga og einhverja þekkingu á tæknimálum Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir óskast fylltar út á www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 22. júlí. NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA: Unnar Sumarliðason – unnar@its.is Steinunn Una – unasig@icelandair.is STARFSMAÐUR Á SKRIFSTOFU Í VERKFRÆÐIDEILD ICELANDAIR ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA ÖFLUGAN STARFSMANN Í TÆKNIÞJÓNUSTU FÉLAGSINS Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI ZEDRA Verslunarkjarnanum Fitjum Reykjanesbæ Enn meiri verðlækkun á Útsölunni 50 – 70 % afsláttur Verið velkomin Sími 568-8585 Skötumessan 2012 verður haldin í Miðgarði, sal Gerðaskóla í Garði miðvikudaginn 18. júlí nk. og hefst kl. 19:00. Að venju er gert ráð fyrir miklum fjölda gesta til að borða hæfilega kæsta skötu, salt- fisk, plokkfisk og tilheyrandi meðlæti. Eins og áður er vegleg skemmtidagskrá þar sem fram koma harmonikuunnendur af Suðurnesjum, Eyjabandið, Siggi á Háeyri, Jón Berg og fl. gott fólk. List án Landamæra flytja tónlistaratriði úr Brúðkaups- nóttinni, Páll Rúnar Pálsson bassasöngvari frá Heiði í Mýrdal, Árni Johnsen, Einar Mikael sýnir ótrúlegar sjónhverfingar, Björn Björnsson fv. skóla- stjóri fer með gamanmál, Jóhannes Kristjánsson eftirherma og Guðni Ágústsson fv. ráðherra verður veislustjóri. Þeir eiga eflaust eftir að herma hvor eftir öðrum félagarnir þegar þeir fá þetta einstæða tækifæri til að tala saman. Nú er tækifærið fyrir fólk að sjá og heyra hvor nær Guðna betur, Guðni eða Jóhannes. Það kemur í ljós á Skötumessunni 2012. Eins og áður rennur hagnaður Skötumessunnar að mestu til styrktar fötluðum einstaklingum og félagasamtökum þeirra. Félagar frá íþróttafélagi fatlaðra á Suðurnesjum NES og Knattspyrnufélag- inu Víði hafa aðstoðað við framkvæmd messunnar eins og starfsmenn frá Vinnuskólanum í Garði sem hafa aðstoðað við að undirbúa Miðgarð fyrir veisluna og vonandi verður svo áfram. Frá upp- hafi hafa Fiskmarkaður Suðurnesja og Skólamatur ehf. verið helstu stuðningsaðilar Skötumess- unnar og engin breyting verður á því í ár og er þeim enn og aftur þakkaður stuðningurinn. Styrkir frá Skötumessunni 2011, voru afhentir á Bessastöðum af forseta Íslands, þriðjudaginn 23. ágúst 2011. Alls voru afhentir styrkir að upphæð kr. 850.000 krónur og hlutu eftirtaldir aðilar styrk: Íþróttafélagið NES, Á allra vörum, Jón Margeir Sverrisson sundmaður í Kópavogi, Hallfríður Reynisdóttir og sjálfboðaliðar á Garðvangi. Styrkina fá þeir sem með einum eða öðrum hætti sinna störfum fyrir sjúka og fatlaða. Öllum þeim er tóku þátt í Skötumessunni í Garði 2011er þakkað fyrir stuðninginn, hvort heldur var í framlögðu hráefni, framlagi í skemmtidagskrá og ekki síður vinnu og hvatningu með margskonar stuðningi við verkefnið. Helstu stuðningsaðilar 2011 voru: Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, Skóla- matur ehf, Axel Jónsson, Víkurfréttir, Fiskmarkaður Suðurnesja, Sveitarfélagið Garður, Saltver ehf., H. Pétursson fiskverkun í Garði, Íslenskir sjávarréttir, Petrína Sigurðardóttir, Guðlaug Helga Sigurðardóttir, Jóna Hallsdóttir, Theodór Guðbergsson, Ingunn Pálsdóttir, Árni Johnsen, Halldór Einarsson, Henson, Hreimur, Bjartmar Guðlaugsson, Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvaldsson, Kolfinna Baldursdóttir og fl. Ágóði rennur til fatlaðra barna og unglinga Rúmlega 100 jarð- skjálftar á Reykjanesi Fram kemur á vef Veðurstofunnar, að rúmlega 100 jarðskjálftar hafi mælst á Reykjanesskaga í júnímánuði og um 20 á Reykjaneshrygg í allt að 90 kílómetra fjarlægð frá Reykjanestá. Skjálftarnir voru á stærðarbilinu -0,7 til 2,3, sá stærsti varð 7. júní á Reykjaneshrygg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.