Víkurfréttir - 12.07.2012, Blaðsíða 9
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 12. júLí 2012 9
Panelklæðningin frá 1965 sé orðin
þurr og skemmdir á nokkrum
stöðum. Bekkir þurfi viðhald
og gólfefni séu orðin lúin.
Þá segir Ragnheiður Ásta að
gamli predikunarstóllinn sé til og
hann sé geymdur í Kirkjulundi.
Hann eigi sér mikla sögu og því
sé honum gerð mikil virðing með
því að taka hann í notkun að nýju.
Kostnaður við þessar breytingar
er talinn vera um 10 milljónir
króna og nú sé unnið að því að
afla þess fjár. Þá liggur fyrir að
orgel kirkjunnar er að syngja sitt
síðasta og sú stund færist nær að
það mun hreinlega hrynja. Orgelið
er gamalt og verksmiðjuframleitt
í Austur-Þýskalandi á sínum tíma
en er ekki eins og orgel í dag, sem
eru sérsmíðuð inn í hverja kirkju.
„Okkur langar að sýna kirkjunni
þá virðingu sem henni ber,“
segir Ragnheiður Ásta í sam-
tali við blaðamann. Til þess
að breytingarnar geti orðið að
veruleika verður að gera þær í
nokkrum skrefum. Breytingarnar
hófust fyrir tveimur árum þegar
panelklæðning var tekin úr
kórnum, hann var málaður og
altaristaflan var hreinsuð. Núna
í ágúst verður kirkjunni lokað
í einn mánuð, þar sem engin brúð-
kaup verða í ágústmánuði. Panell
verður tekinn af veggjum og þeir
málaðir, bekkir verða teknir út úr
kirkjunni og endurnýjaðir, auk
þess sem skipt verður um gólfefni.
Að ári verður síðan farið í að laga
kirkjuloftið og laga gráturnar. Í
framhaldinu verður síðan farið í að
setja upp gamla predikunarstólinn.
Ragnheiður Ásta segir að þegar
litið er til sögunnar þá hafi
Keflavíkurkirkja verið byggð af
miklum stórhug. Stærstur hluti
kirkjunnar var gefinn af kaup-
manninum á staðnum en einnig
lögðu bæjarbúar til bæði vinnu-
framlag og fjármuni til bygg-
ingarinnar. Nú er einnig horft til
þess að bæjarbúar í Keflavíkursókn
leggi til vinnu og fjármuni til
kirkjunnar sinnar. Stórhugurinn á
sínum tíma var svo einstakur. Þá
bjuggu á fimmta hundrað manns
í sveitarfélaginu en þeir byggðu
kirkju sem tók 200 manns í
sæti. Núna geta bæjarbúar
Kirkjan færð í upprunalegt
horf fyrir 100 ára afmælið
lagt fjármuni til verksins
t.a.m. með því að kaupa pípu í
nýja orgelinu eða leggja fram
vinnu einn og einn dag.
Séra Skúli S. Ólafsson sóknar-
prestur segir að hugmyndin sé
að virkja hinn mikla félagsauð
sem er innan kirkjunnar til
góðra verka. Þá hefur kirkjan
fengið hinn færa arkitekt, Pál V.
Bjarnason til verksins. Hann hefur
að sögn legið yfir teikningum og
gömlum ljósmyndum af kirkjunni.
Þá hefur hann farið ofan í alla
gamla muni sem hafa varð-
veist úr kirkjunni til að finna
upprunalega liti. Þannig er búið að
finna liti á tréverki og bútur af upp-
runalegum gólfdúk fannst í gamla
predikunarstólnum, þannig að þar
geta menn fengið sama lit og áferð.
Steindir gluggar kirkjunnar verða
teknir niður og þeim komið í
geymslu. Þá hefur Keflavíkurkirkja
aðstöðu til að hafa þá til sýnis
áfram, a.m.k. að hluta. Sýnist
fólki svo að steindu gluggana eigi
að setja upp að nýju, þá sé alltaf
möguleiki á því. Þannig verði
gengið frá þeim að þeir verði varð-
veittir. Ragnheiður Ásta segir að
sóknarnefndarfólk sé spennt að sjá
hvernig kirkjan líti út án steindu
glugganna. Steindir gluggar hafi á
sínum tíma verið mikil tískubóla
í mörgum kirkjum. Steindu
gluggarnir í Keflavíkurkirkju
hafa enga trúarlega skírskotun.
Stefnt er að því að hafa lokið þeim
áfanga sem nú verður unninn
fyrir Ljósanótt og bjóða gestum
úr árgangagöngunni að koma
við í kirkjunni og njóta þeirra
breytinga sem þá verða tilbúnar.
Sr. Skúli S. Ólafsson sóknar-
prestur Keflavíkurkirkju við
predikunarstólinn sem verður
endurgerður í upprunalega
mynd. Englarnir eru t.a.m. ekki
hluti af upprunalegum stól.
Steindu gluggarnir munu víkja fyrir glæru gleri
eins og var í kirkjunni þegar hún var vígð fyrst.
Svona er upprunalegt útlit
Keflavíkurkirkju. Farið verður
eins nálægt því og hægt er
með nútíma þarfir í huga.
Rammi altaristöflunnar
fær dökkbrúnan lit, sem er
upprunalegur litur.