Ægir - 01.07.2008, Blaðsíða 62
62
K R O S S G Á T A
Þ R Ó U N
Matís og fyrirtækið Hollusta
úr hafinu ehf hafa tekið upp
samstarf um að ljúka vöru-
þróun á kryddlegnum og
maukuðum sölvum, en Holl-
usta úr hafinu hóf þróun á
kryddlegnum sölvu og sól-
puree fyrir tveimur árum.
Í þessu vöruþróunarverk-
efni verður farið yfir upp-
skriftir, umbúðir og útlit í því
markmiði að draga fram þá
ímynd og eiginleika sem sóst
er eftir, þ.e. bragðgóða vöru
með gott geymsluþol sem ber
jafnframt með sér hollustu og
gæði. Þá verður hannað fram-
leiðsluferli fyrir vinnslu og
pökkun á vörunni.
Kryddlegin söl og söl pur-
ee er sælkeravara. Á erlend-
um mörkuðum er kryddleg-
inn þari, en kryddlegin söl
eru hins vegar óþekkt á er-
lendum mörkuðum.
Stofnandi Hollustu úr haf-
inu ehf er Eyjólfur Friðgeirs-
son en verkefnisstjóri í þessu
verkefni af hálfu Matís er
Þóra Valsdóttir.
Matís vinnur nú að verkefn-
inu „Norðurkví“ í samvinnu
við Náttúrustofu Vestfjarða,
SINTEF Fiskeri og havbruk,
Hafrannsóknastofnun, Veður-
stofu Íslands og Hraðfrysti-
húsið Gunnvöru í Hnífsdal.
Verkefnið, sem er stýrt af Jóni
Árnasyni, fóðurfræðingi hjá
Matís, miðar að því að hann
og smíða sjókvíar sem upp-
fylla ströngustu kröfur um
styrk og þol fyrir íslenskar
aðstæður.
Í verkefninu verða:
Tekin verða saman gögn
um séríslenskar umhverfisað-
stæður sem taka þarf tillit til
við hönnun á sjókvíum fyrir
íslenskar aðstæður.
Kannað hvort kvíalausnir,
sem nú eru á markaði, henta
við umhverfisaðstæður hér á
landi.
Þróaðar, ef þörf er á, nú-
verandi kvíalausnir að þeim
aðstæðum sem hér eru.
Prófaðar þær lausnir sem
finnast í verkefninu við raun-
verulegar aðstæður á Íslandi
með tilliti til áhrifa þeirra á
fiskinn sem í þeim er alinn og
hvernig þær henta sem vinnu-
staður.
Þróa vörur úr kryddlegn-
um og maukuðum sölvum
Sjónum beint að
sjókvíum
Dæmi um vörur frá „Hollusta úr hafinu“.
Í verkefninu er sjónum beint að hönn-
un og gerð sjókvía sem uppfylla
ströngustu kröfur um styrk og þol fyrir
íslenskar aðstæður.