Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2013, Blaðsíða 29

Ægir - 01.01.2013, Blaðsíða 29
29 Þ J Ó N U S T A Heildaraukning aflaverðmæta íslenskra skipa fyrstu tíu mánuði ársins 2012 nemur 8,1%, milli ára. Þau jukust úr 127,6 milljörðum króna fyrstu tíu mánuði ársins 2011 í 137,9 milljarða króna á sama mánaðatímabili 2012. Hlut- fallslega varð langmesta afla- verðmætisaukningin í loðnu og í heild yfir 10% í uppsjáv- arafla. Aflaverðmæti botnfisks var 81,3 milljarðar sem er 6% aukning frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 76,7 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 41,5 millj- arðar sem er 12,7% aukning miðað við sama tímabil í fyrra. Aflaverðmæti ýsu, sem nam 10,4 milljörðum, jókst um 8,4% milli ára en verð- mæti karfaaflans nam 11,9 milljörðum sem er 6,3% aukning frá fyrstu tíu mánuð- um ársins 2011. Verðmæti ufsaaflans jókst um 9,1% milli ára og nam 8,0 milljörðum króna í janúar til október 2012. Mun meiri verðmæti loðnu en minni verðmæti makríls Verðmæti uppsjávarafla nam um 42,3 milljörðum króna í janúar til október 2012, sem er 10,4% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti loðnu nam 13,1 milljörðum sem er 50,2% aukning samanborið við sama tímabil í fyrra og verð- mæti kolmunna, sem var 2,7 milljarðar á fyrstu tíu mánuð- um ársins, jókst um rúmlega 2,4 milljarða milli ára. Afla- verðmæti síldar nam 10,6 milljörðum króna í janúar til október 2012 sem er 9,3% aukning milli ára. Hins vegar dróst aflaverðmæti makríls saman um 19,2% miðað við sama tímabil í fyrra en afla- verðmæti makríls í janúar- október 2012 var 14,4 millj- arðar. Nær enginn annar uppsjávarafli var veiddur á fyrstu 10 mánuðum ársins 2012. Aflaverðmæti flatfisk- safla nam um 9,2 milljörðum króna, sem er 8,6% aukning frá janúar til október 2011. Sjófrystingin stendur í stað Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 64,5 milljörð- um króna og jókst um 17,4% miðað við fyrstu tíu mánuði ársins 2011. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 9,5% milli ára og nam 18,2 milljörðum króna. Aflaverð- mæti sjófrystingar nam 49,7 milljörðum í janúar til októ- ber og jókst um 0,2% milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam rúmum 4,6 milljörðum króna, sem er 17,4% samdráttur frá árinu 2011. Verðmæti afla janúar-október 2012 Október Janúar–október Breyting frá fyrra ári 2011 2012 2011 2012 Botnfiskur 8,980 9,779 76,661 81,252 6 Þorskur 4,454 4,992 36,847 41,541 12.7 Ýsa 1,137 1,076 9,565 10,373 8.4 Ufsi 888 957 7,308 7,970 9.1 Karfi 1,637 1,660 11,239 11,944 6.3 Úthafskarfi 0 0 4,028 1,979 -50.9 Annar botnfiskur 864 1,094 7,674 7,445 -3 Flatfisksafli 883 662 8,509 9,243 8.6 Uppsjávarafli 3,018 4,311 38,366 42,349 10.4 Síld 2,831 4,232 9,736 10,638 9.3 Loðna 48 0 8,731 13,117 50.2 Kolmunni 41 29 257 2,691 948.9 Annar uppsjávarafli 98 50 19,642 15,902 -19 Skel- og krabbadýraafli 219 322 2,641 3,819 44.6 Rækja 120 215 1,687 2,793 65.5 Annar skel- og krabbad.afli 100 107 953 1,026 7.6 Annar afli 6 2 1,471 1,272 -13.5 Verðmæti alls (millj.kr.) 13,107 15,076 127,648 137,935 8.1 Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-október 2012 Október Janúar–október Breyting frá fyrra ári 2011 2012 2011 2012 Höfuðborgarsvæði 3,196 3,337 24,333 31,466 29.3 Suðurnes 2,572 2,434 21,363 22,298 4.4 Vesturland 524 512 5,968 6,746 13 Vestfirðir 590 826 6,480 7,557 16.6 Norðurland vestra 873 1,293 8,325 9,284 11.5 Norðurland eystra 2,076 2,024 21,058 15,996 -24 Austurland 1,405 1,891 18,219 21,642 18.8 Suðurland 1,329 2,308 16,151 17,892 10.8 Útlönd 543 452 5,752 5,054 -12.1 Verðmæti alls (millj.kr.) 13,107 15,076 127,648 137,935 8.1 Hrognafrysting hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað. Verðmæti loðnu jókst milli ára um 50%. Aflaverðmæti fyrstu tíu mánuði ársins 2012: Góð loðnuvertíð í fyrra skilaði miklum verðmætum

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.