Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2013, Blaðsíða 33

Ægir - 01.01.2013, Blaðsíða 33
33 „Við skynjum að í sjávarútveg- inum er mikill áhugi og um- ræða um hráefnismeðferð, um þau atriði sem geti hjálpað okkur sem framleiðendum fiskafurða að fá enn meira fyrir þær. Lykilorðið er kæling og aftur kæling, jafnt hvort horft er til frumstigsins úti á sjó eða vinnsluferilsins í landi. Okkar þróun á ein- gangruðum plastkerum í gegnum árin og nýjungar á því sviði miða einmitt að því að hjálpa greininni að ná þessum markmiðum,“ segir Sævaldur Gunnarsson, sölufulltrúi hjá Promens Dalvík aðspurður um hvaða áherslur hann skynji í sjávarútveginum nú þegar þess verður vart að barátta er harðnandi á fiskafurðamörk- uðum. Sævaldur segir að ekki þurfi að koma á óvart að samkeppnin fari harðnandi á afurðamörkuðum í Evrópu því samhliða þrengri efnahag í mörgum löndum hafi veru- leg aukning orðið á framboði hvítfisks, sér í lagi úr Barents- hafi. Höfum náð árangri hér á landi „Almennt getum við sagt að við Íslendingar höfum náð góðum árangri í að bæta hrá- efnismeðhöndlunina og feng- ið umbun fyrir það á afurða- mörkuðum vegna gæða fram- leiðslunnar. Hér höfum við framleiðendur sem hafa lagt ríka áherslu á hráefnismeð- höndlunina og kælingu hrá- efnisins alla leið í gegnum vinnsluferlið en svo eru líka aðrir sem eiga tækifæri til aukins árangurs með breytt- um vinnsluferlum og betri kælingu. Við skynjum sama áhuga á bæði mörkuðum okkar hér á landi sem og í sjávarútvegi erlendis; allir eru að horfa til þess að gera meira úr þeim afla sem þeir hafa úr að spila. Í því felast tækifærin,“ segir Sævaldur og nefnir að mörg fyrirtæki hugi nú að því hvernig sé hægt að gera meira úr aukaafurðum og fá þannig fleiri krónur á hvert kíló upp úr sjó. „Við er- um núna með í þróun nýtt lok á 340L/460L/660L kerin frá okkur sem mun nýtast við söfnun á slógi, lifur og slík- um aukaafurðum. Það má segja að þetta sé „lifrartunnu- loksaðferðin“ betrumbætt en lokið mun koma á markað frá okkur nú í mars. Bæði mun það geta nýst sem lok, fest með teygjum eins og hefðbundin keralok eða soð- ið fast ofan á ker þar sem meiri þéttleika er krafist.“ Mikil fjölbreytni er í vöru- línu Promens Dalvík og kerin eru bæði miðuð að þörfum smærri báta sem stærri fiski- skipa, landvinnslufyrirtækja, fiskeldis og svo framvegis. „Okkar ker nýtast vel í þess- ari þróun í landvinnslunum en stærsti markaðurinn verð- ur eftir sem áður í fiskiskipa- flotanum. Þar er grunnurinn að góðu hráefni lagður. Hrá- efnismeðhöndlunin er lykilat- riði í ferskleika vörunnar úti á mörkuðum erlendis, ræður miklu um hillutíma hennar og því hvort hægt er að nýta flutningsleiðir á ferskfiski með skipum í stað flugvéla. Mönnum verður það æ ljós- ara í greininni hversu mikið samhengi er á milli allra þátta í virðiskeðjunni og að líta verður á ferilinn frá veiðum til neytanda í einni heild,“ segir Sævaldur og svarar því aðspurður að staða fyrirtækja sé eðlilega misjöfn til að ráð- ast í fjárfestingar í kerum. Aukin framleiðslugeta á Dalvík „Vissulega er þrengra hjá sumum en öðrum en í sjávar- útvegi hér á landi hafa menn verið mjög fljótir að bregðast við og nýta tækfærin þegar þeir finna að fjárfestingar skila sér fljótt til baka í gegn- um hærra afurðaverð. Þetta er einkennandi hér á landi,“ segir Sævaldur en sem kunn- ugt er var nýr hverfisteypuofn tekinn í notkun í verksmiðju Promens á Dalvík í haust sem knúinn er rafmagni. Sævaldur segir verksmiðjuna því vel í stakk búna að mæta auknum verkefnum. „Með nýja ofnin- um jókst framleiðslugeta verksmiðjunnar og við getum því enn betur mætt þörfum okkar viðskiptavina,“ segir Sævaldur. Í mars kemur á markað ný gerð af lokum á Sæplast kerin sem sérstaklega er hönnuð til að gera auðveldara að safna aukaafurðum úr fiski, s.s. slógi og lifur, svo dæmi séu tekin. www.isfell.is Hnífar og brýni í miklu úrvali Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets: • Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28 • Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19 • Ísnet Húsavík - Barðahúsi • Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi • Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1 • Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is Þ J Ó N U S T A

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.