Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2013, Blaðsíða 8

Ægir - 01.01.2013, Blaðsíða 8
S T E I N B Í T S S T O F N I N N Í lok nóvember á síðasta ári var farinn leiðangur á rann- sóknarskipinu Bjarna Sæ- mundssyni til að rannsaka steinbít á Látragrunni en þar er aðalhrygningarsvæði hans. Meginverkefni leiðangursins var að athuga hvort hægt væri að meta þéttleika hrogna- klasa steinbíts með sæ- bjúgnaplógi og neðansjávar- myndavél. Einnig að kanna þéttleika steinbíts á svæðinu með botnvörpu og að merkja steinbít. „Leiðangurinn lukkaðist mjög vel. Við merktum 191 steinbít með rafeindamerkjum og slöngumerkjum og 203 steinbíta einungis með slöngumerkjum. Við höfum endurheimt fjórtán steinbíta með rafeindamerkjum og þrjá með slöngumerkjum,“ segir Ásgeir Gunnarsson leiðang- ursstjóri. Hann segir að merkin gefi til kynna að steinbíturinn sé að jafnaði mjög botnlægur. „Það er til líkan sem kall- ast sjávarfallalíkan sem getur staðsett steinbítinn út frá sjáv- arföllunum. Á sex tíma fresti fáum við þannig bylgjur úr merkjunum sem sýna sjávar- föllin sem segir okkur að steinbíturinn er að öllu jöfnu botnlægur. Við höfum þó séð hann fara upp í sjó. Einnig höfum við séð hann fara á grynnra vatn en það var vitað að hann fer út á meira dýpi á haustin til að hrygna. Síðan fer hann á grunnsævi í janúar til febrúar í fæðugöngur,“ segir Ásgeir. Hann segir að merkingarn- ar leiði vonandi til þess að betur verði hægt að kort- leggja ferðir steinbítsins út frá sjávarfallalíkaninu. Hvaða leið hann fari og hvort allir fari sömu leið. Leiðangurinn var farinn fyrst og fremst til að skoða þetta lokaða svæði á Látra- grunni og nærliggjandi svæði 8 Ferðir steinbítsins kort- lagðar með merkingum - stofninn í slæmri stöðu Steinbítur merktur á Glettinganesgrunni. Gula slangan er tengd við raf- eindamerkið (sjá mynd efst í hægra horninu) og stendur út úr kviðnum á fisknum, en rafeindamerkið er sett inní kviðarhol fisksins. Einnig var steinbíturinn merktur með slöngumerki og er það staðsett við bakugga steinbítsins. Slöngumerkið er rautt á lit og er um 5 cm á lengd. (Ljósmynd: Ásgeir Gunnarsson) Ásgeir Gunnarsson.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.