Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2013, Blaðsíða 20

Ægir - 01.01.2013, Blaðsíða 20
20 Þ J Ó N U S T A Heilsteyptar reimar í færiböndin eru það besta „Það nýjasta í færiböndum eru heilsteypt bönd sem við segjum að sé besti valkostur- inn og muni ryðja sér til rúms í færiböndum í allri matvæla- vinnslu í framtíðinni. Í sjáv- arúvegi er mikil áhersla lögð á að hámarka líftíma vörunn- ar og þetta á til að mynda við um ferska fiskinn. Það er því lykilatriði að færibandareim- arnar uppfylli gæðakröfur. Í gegnum tíðina hefur verið þekkt að böndin hafa verið lagskipt hvað uppbyggingu varðar en með þessum nýj- ustu heilsteyptu böndum er mun auðveldara að tryggja hámarks hreinlæti því örverur geta ekki hreiðrað um sig í böndunum. Þrifin verða auð- veldari og allt skilar þetta sér í betri framleiðsluvöru,“ segir Hermann Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri og aðaleigandi Reimaþjónustunnar. Fyrirtæk- ið sérhæfir sig í hvers konar færibandareimum og þjónustu við þau en böndin leika stórt hlutverk í nútíma fisk- vinnslum. Umrædd heilsteypt bönd koma frá Volta Belting sem er einn þriggja stærstu birgja Reimaþjónustunnar. Volta Belting er leiðandi í heimin- um í framleiðslu færibanda- efnis úr Thermoplastic. Þessi bönd uppfylla allar ströng- ustu kröfur matvælaiðnaðar- ins en þessar nýjustu gerðir ganga undir nafninu Positive drive og Super drive belts – hönnun sem ætlað er að leysa verkefnin við erfiðustu notkunarskilyrði. Aðrir stærstu birgjar Reimaþjónustunnar eru spænski reimaframleiðandinn Esbelt og Forbo-Siegling frá Þýskalandi. „Auk þess að selja reimarnar önnumst við alla þjónustu í kringum þær, sníðum í réttar lengdir og sjóðum saman, hvort heldur er hér á verkstæðinu hjá okk- ur, um borð í skipum eða inni á gólfi í fyrirtækjum. Lyk- ilatriði er að leysa þörf við- skiptavinarins fljótt og vel,“ segir Hermann. Allar gerðir reima fyrir færiböndin „Reimarnar eru einn mikil- vægasti hlekkur færiband- anna og sá flötur sem varan kemst í beina snertingu við. Það skiptir því öllu máli að gæði þeirra séu mikil – alveg sér í lagi í matvælaframleiðslu eins og sjávarútvegi þar sem er á ferðinni viðkvæm vara,“ segir Hermann. Rétt val á reimum í færi- böndin skiptir máli og þar er af nógu að taka hjá Reima- þjónustunni. Yfirborð reim- anna er margs konar – allt eftir því hvað hentar starfsemi viðkomandi notanda. Það getur verið sleipt, matt, munstrað eða gaddað og hægt er að velja úr margs konar efnum, t.d. polyester, polypropylene, polyethylene, polyacetal og termoplastisk polyester, svo aðeins séu tek- in nokkur dæmi úr vöruúrvali Reimaþjónustunnar. Að sama skapi geta böndin verið margvísleg í lengdum og gerðum; t.d. sérhannaðar reimar fyrir mikinn hita eða kulda, kubbabönd, færibönd sem beygja, færibönd með ásoðnum spyrnum, færibönd með merkingum og þannig mætti áfram telja. Enda er það svo að reimarnar frá Reimaþjónustunni koma við sögu í öllum matvælaiðnaði hér á landi, á flugvöllum, í flutningafyrirtækjum, prent- iðnaði, timburiðnaði og mun víðar. Örverur eiga ekki auðvelt með að hreiðra um sig í heilsteyptu reimunum og þessi gerð færibandareima er því að ryðja sér til rúms í matvælavinnslunni.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.