Ægir - 01.01.2013, Side 20
20
Þ J Ó N U S T A
Heilsteyptar reimar
í færiböndin eru
það besta
„Það nýjasta í færiböndum
eru heilsteypt bönd sem við
segjum að sé besti valkostur-
inn og muni ryðja sér til rúms
í færiböndum í allri matvæla-
vinnslu í framtíðinni. Í sjáv-
arúvegi er mikil áhersla lögð
á að hámarka líftíma vörunn-
ar og þetta á til að mynda við
um ferska fiskinn. Það er því
lykilatriði að færibandareim-
arnar uppfylli gæðakröfur. Í
gegnum tíðina hefur verið
þekkt að böndin hafa verið
lagskipt hvað uppbyggingu
varðar en með þessum nýj-
ustu heilsteyptu böndum er
mun auðveldara að tryggja
hámarks hreinlæti því örverur
geta ekki hreiðrað um sig í
böndunum. Þrifin verða auð-
veldari og allt skilar þetta sér
í betri framleiðsluvöru,“ segir
Hermann Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri og aðaleigandi
Reimaþjónustunnar. Fyrirtæk-
ið sérhæfir sig í hvers konar
færibandareimum og þjónustu
við þau en böndin leika stórt
hlutverk í nútíma fisk-
vinnslum.
Umrædd heilsteypt bönd
koma frá Volta Belting sem
er einn þriggja stærstu birgja
Reimaþjónustunnar. Volta
Belting er leiðandi í heimin-
um í framleiðslu færibanda-
efnis úr Thermoplastic. Þessi
bönd uppfylla allar ströng-
ustu kröfur matvælaiðnaðar-
ins en þessar nýjustu gerðir
ganga undir nafninu Positive
drive og Super drive belts –
hönnun sem ætlað er að
leysa verkefnin við erfiðustu
notkunarskilyrði.
Aðrir stærstu birgjar
Reimaþjónustunnar eru
spænski reimaframleiðandinn
Esbelt og Forbo-Siegling frá
Þýskalandi. „Auk þess að
selja reimarnar önnumst við
alla þjónustu í kringum þær,
sníðum í réttar lengdir og
sjóðum saman, hvort heldur
er hér á verkstæðinu hjá okk-
ur, um borð í skipum eða
inni á gólfi í fyrirtækjum. Lyk-
ilatriði er að leysa þörf við-
skiptavinarins fljótt og vel,“
segir Hermann.
Allar gerðir reima fyrir
færiböndin
„Reimarnar eru einn mikil-
vægasti hlekkur færiband-
anna og sá flötur sem varan
kemst í beina snertingu við.
Það skiptir því öllu máli að
gæði þeirra séu mikil – alveg
sér í lagi í matvælaframleiðslu
eins og sjávarútvegi þar sem
er á ferðinni viðkvæm vara,“
segir Hermann.
Rétt val á reimum í færi-
böndin skiptir máli og þar er
af nógu að taka hjá Reima-
þjónustunni. Yfirborð reim-
anna er margs konar – allt
eftir því hvað hentar starfsemi
viðkomandi notanda. Það
getur verið sleipt, matt,
munstrað eða gaddað og
hægt er að velja úr margs
konar efnum, t.d. polyester,
polypropylene, polyethylene,
polyacetal og termoplastisk
polyester, svo aðeins séu tek-
in nokkur dæmi úr vöruúrvali
Reimaþjónustunnar. Að sama
skapi geta böndin verið
margvísleg í lengdum og
gerðum; t.d. sérhannaðar
reimar fyrir mikinn hita eða
kulda, kubbabönd, færibönd
sem beygja, færibönd með
ásoðnum spyrnum, færibönd
með merkingum og þannig
mætti áfram telja. Enda er
það svo að reimarnar frá
Reimaþjónustunni koma við
sögu í öllum matvælaiðnaði
hér á landi, á flugvöllum, í
flutningafyrirtækjum, prent-
iðnaði, timburiðnaði og mun
víðar.
Örverur eiga ekki auðvelt með að hreiðra um sig í heilsteyptu reimunum og þessi gerð færibandareima er því að ryðja sér til
rúms í matvælavinnslunni.