Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2013, Blaðsíða 35

Ægir - 01.01.2013, Blaðsíða 35
35 tengsl við Ísland m.a. í gegn- um franska sjómenn sem sóttu á íslensk fiskimið forð- um,“ segir Bjarmi en hann ásamt einum starfsmanna Vélfags fór utan í október til að setja vélina upp og kenna starfsmönnum fyrirtækisins á hana. Trúðu varla nýtingarprósentunni! „Sem betur fer hefur allt gengið eins og í sögu hingað til og alltaf mikil gleði á hin- um enda símalínunnar þegar við fáum símtal frá Frakk- landi. Það eru helst stillingar sem við höfum þurft að leið- beina með en við höfum get- að notað snjallsímatækni til að hjálpa okkur við það,“ segir Bjarmi en hann segir góða nýtingu í flökuninni hafa komið Frökkunum mest á óvart. Þeir hafi í fyrstu hald- ið að einhver villa væri í nýt- ingarútreikningunum! „Vélflökunin skilar líka mjög fallegum flökum og það hjálpar auðvitað til þegar á markaðinn er komið. Upp- setning vélarinnar vakti mikla athygli á svæðinu og í vinnslusalinn komu ýmsir að- ilar úr öðrum fyrirtækjum eða af svæðinu til að fylgjast með og sjá vélina vinna. Vélflökun virðist ekki algeng þarna og því er ekki ólíklegt að við eigum eftir að selja fleiri vélar á þetta svæði og í nágrenni. Fyrir lítið fyrirtæki eins og okkar er hins vegar mikil reynsla að ganga í gegnum eitt útflutningsverkefni af þessu tagi og við munum taka eitt skref í einu í útflutn- ingnum. En við eigum svo sannarlega erindi með vél- búnað okkar á erlendan markað og vitum af áhuga víðar erlendis,“ segir Bjarmi. Nýtt framleiðsluhús tekið í notkun Vélfag fékk m.a. viðurkenn- ingu á Íslensku sjávarútvegs- sýningunni árið 2011 en fyrir- tækið framleiðir bæði flökun- arvélar og hausara, auk þess sem nú er verið að setja nýja roðvél á markaðinn. Þá er fyrirtækið þessa dagana að taka í notkun 600 fermetra framleiðsluhús í Ólafsfirði þar sem til að mynda verður tek- inn í notkun nýr búnaður við framleiðslu vélanna. „Með þessu húsi breytist öll framleiðsluaðstaða okkar verulega en við munum áfram verða með hluta starf- seminnar á Akureyri, líkt og verið hefur. Samhliða þessu öllu eru ýmis þróunarverkefni í vinnslu þannig að við telj- um bjart framundan,“ segir Bjarmi. Bjarmi tengir M700 vélina. Íslenska vélin vakti mikinn áhuga bæði starfsmanna í fyrirtækinu og fiskverkenda í nágrenninu sem komu í vinnslusalinn til að fylgjast með uppsetningunni. M700 flökunarvélin frá Vélfagi. Flökunarvél Vélfags vekur lukku í Frakklandi Þ J Ó N U S T A

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.