Fjarðarpósturinn - 26.02.2015, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2015
Ég hef lesið margan reyfarann í
gegnum tíðina. Þeir hafa verið
misgóðir en nær alltaf snýst sagan
um glæp sem lesandinn er upp-
lýstur um. Sagan um hafnarstarfs-
manninn og áætlaða áminningu
hans vegna fundar sem átti ekki að
hafa verið haldinn er einn besti reyfari sem ekki hefur
verið gefinn út. En spennan í þessum reyfara er all
sérstök þar sem hún snýst um að finna glæpinn.
Glæpurinn sem leitað er að hefur kannski aldrei verið
framinn en í stað þess virðist augljósasti glæpurinn vera
í stjórnsýslu Hafnarfjarðarbæjar.
Að starfsmaður upplýsi samstarfsmenn sína um að
hafa verið boðaður á fund þar sem spurt hafi verið m.a.
út í yfirmann hans telst varla glæpur. Ekki einu sinni þó
starfsmaðurinn hefði ímyndað sér það eða hreinlega
skáldað það upp. Glæpur þarf að hafa þolanda og hann
hefur ekki fundist í málinu og í raun þess vegna virðist
stjórnsýslan að hafa farið yfir um þegar formaður
hafnarstjórnar ætlaði að ávíta manninn. Þarna varð
kannski fyrsti glæpurinn til þegar pólitískt valinn
formaður hafnarstjórnar grípur fram í fyrir ráðnum
yfirmanni mannsins og hefur áminningarferil í andstöðu
við yfirmanninn! Þetta gengi alla vega ekki í hlutafélagi.
Enginn virðist hafa heldur komist til botns í því hver
tilgangurinn með áminningarferlinum er. Enginn hefur
heldur upplýst um tilefni sem starfsmaðurinn ætti að
hafa til að segja ósatt um fundinn og fullyrt er að við
skoðun á rekstri bæjarins hafi fleiri almennir starfsmenn
verið spurðir um sína yfirmenn.
Þó svo ekki sé að finna neinn aðalglæp í þessum
reyfara er mörgum spurningum ósvarað sem eflaust
kitlar áhugafólk um góða reyfara. Af hverju ætti
maðurinn að segja ósatt? Af hverju er verið að fela það
að fundur hafi verið haldinn? Af hverju tekur formaður
hafnarstjórnar upp á því að ætla að áminna starfsmann-
inn? Eru einhverjir sem eru að fjarstýra formanninum?
Hvaða ráðgjöf veitti lögmaður Sambands sveitarfélaga
meirihluta hafnarstjórnar? Taldi hann eðlilegt að
hafnarstjórn tæki fram fyrir hendurnar á hafnarstjóra?
Málið er ekkert búið eins og lýst hefur verið yfir og
bæjarbúar eiga heimtingu á að fá að vita hvað liggur
þarna á bak við. Stjórn Hafnarfjarðarhafnar er rúin
trausti og stórt spurningarmerki er sett við þátt bæjarstjóra
í málinu sem sat fund hafnarstjórnar þegar málið var
tekið fyrir og hann var líka í ráðhúsinu þegar meintur
fundur átti að vera haldinn. Hér þarf upplýsingar.
Bæjarstjóri hefur látið leita eftir því hvort einhver hjá
Hafnarfjarðarbæ hafi hringt og boðað fundinn en hvað
með 3R-Ráðgjöf eða einhvern á þeirra vegum?
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Sunnudagurinn 1. mars
Æskulýðsguðsþjónusta
kl. 11
Fermingarbörn taka virkan þátt í stundinni.
Sunnudagaskólinn verður einnig með.
Unglingakór Hafnarfjarðarkirkju syngur.
Kaffi, djús og kex í safnaðarheimilinu á eftir.
Miðvikudagar
Morgunmessa kl. 8.15
Léttur morgunverður á eftir.
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
Sunnudagurinn 1. mars
Sunnudagaskóli kl. 11
Alltaf sama fjörið þar. Fróðleg og
skemmtileg samvera fyrir alla fjölskylduna.
Kvöldmessa kl. 20
Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða sönginn
undir stjórn Arnar Arnarsonar.
Fylgist með okkur á www.frikirkja.is
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Sunnudaginn 1. mars
Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar
Krúttmessa kl. 11
Allir hópar barnastarfsins
sameinast í barnamessu.
Gospelmessa kl. 20
í Haukaheimlinu
Kór kirkjunnar syngur við undirleik húsbandsins.
Bryndís Svavarsdóttir flytur hugleiðingu,
Bæna- og fyrirbænastundir
á fimmtudögum kl. 11.
www.astjarnarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Sunnudaginn 1. mars
Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar
Æskulýðsmessa kl. 11
Regína Ósk og barnakór kirkjunnar
flytja tónlist.
Krakkarnir í barna- og æskulýðsstarfinu
verða í aðalhlutverki.
Kaffi og djús á eftir.
www.vidistadakirkja.is
Framkvæmdasjóður
aldraðra ekki til að
greiða rekstur
Stjórn Landssambands eldri borgara samþykkti
nýlega ályktun þar sem því er mótmælt harðlega að
fjármagn Framkvæmdasjóðs aldraðra verði notað til
þess að greiða rekstur hjúkrunarheimila.
Segir í ályktuninni að aðalmarkmið sjóðsins sé að
stuðla að fjölgun hjúkrunarheimila.
„Neyðarástand er að skapast vegna vöntunar á
hjúkrunarrýmum, á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum
og víðar á landinu. Ástandið á enn eftir að versna ef
ekkert er að gert, þar sem áætlanir gera ráð fyrir mikilli
fjölgun þeirra sem verða að leita eftir þjónustu og geta
ekki bjargað sér lengur heima hjá sér vegna veikinda.
Samfélagið allt verður að bregðast við vandanum nú
þegar með gerð áætlunar um fjölgun hjúkrunarrýma til
að mæta áætlaðri þörf á næstu árum. Brýnt er að
sveitarfélög og ríki standi saman að gerð slíkrar
áætlunar ásamt Landssambandi eldri borgara,“ segir í
ályktun stjórnar Landssambands eldri borgara. Söngglaðir eldri borgarar.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n