Fjarðarpósturinn - 26.02.2015, Side 9
www.fjardarposturinn.is 9FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2015
Fræðsluráð Hafnarfjarðar
hefur samþykkt að efna til sam-
starfs við leik- og grunnskólana í
bænum um nýtt þróunarverkefni
sem beinist að því að bæta náms-
árangur í öllum skólum bæjarins.
Áhersla á íslensku og
stærðfræði
Þróunarverkefnið er til tveggja
ára og með því á að efla læsi,
virkni og námsáhuga á öllum
námssviðum og námsgreinum,
með sérstakri áherslu á íslensku
og stærðfræði.
Í bókun fræðsluráðs segir að
það sé stefna og markmið
fræðslu yfirvalda í Hafnarfirði að
hafn firskir nemendur standi
a.m.k. jafnfætis nemendum
ná granna sveitarfélaga í náms-
árangri og að þetta verkefni sé
mikilvægt skref í þá átt.
Hafa verið undir
landsmeðaltali
,,Skólar Hafnarfjarðar hafa
undanfarin 5-6 ár verið undir
lands meðaltali í samræmdum
könnunarprófum og talsvert
undir meðaltali annarra sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu.
Það er eitthvað sem við sættum
okkur ekki lengur við og leggjum
mikla áherslu á að snúa við,“
segir Rósa Guðbjartsdóttir for-
maður fræðsluráðs Hafnarfjarðar.
Í tilkynningu frá Hafnarfjarðar-
bæ segir að á þessu skólaári hafi
verið í gangi metnaðarfullt
læsisverkefni sem gangi út á að
auka lestrarfærni og lesskilning í
leik- og grunnskólum bæjarins.
Hinu nýja verkefni er einnig
ætlað að því að efla læsi og bæta
námsárangur með sérstaka
áherslu á íslensku og stærðfræði
og munu þessi verkefni því
styðja við hvort annað.
Fræðsluyfirvöld leggja áherslu
á innviði skólastarfs og auk
þessara verkefni verður 120
milljón um króna varið til ýmissa
þró unarverkefna á yfirstandandi
fjárhagsári.
Þarf að komast að því hvað
þarf að gera
„Við höfum allt til alls hér í
Hafnarfirði til að verða í
fararbroddi, frábært starfsfólk,
skóla og nemendur og það þarf
að komast að því hvað þarf að
gera til að námsárangur verði
betri og bregðast strax við með
því að láta verkin tala,“ segir
Rósa Guðbjartsdóttir formaður
fræðsluráðs.
Verkið Heili, hjarta, typpi var
sýnt síðasta haust og fékk góðar
viðtökur áhorfenda og gagn-
rýnenda. Þetta er sprenghlægilegt
leikrit um þrjá mjög ólíka
handritshöfunda í tilvistar-
kreppu. Hvað gerist þegar sjálf-
titlaður stórsnillingur, hjart-
næmur unglingur og graðnagli
reyna að vinna saman? Að því
má komast í Gaflaraleikhúsinu á
morgun.
Starfsemi framtíðardeildar
Gaflaraleik hússins hefur farið af
stað með miklum krafti í vetur
með sýningum á Heila Hjarta
Typpi og Konubörnum og er
framtíðardeildin án efa komin til
með að vera.
í Laugardalshöll
NÚ FYLLUM VIÐ HÖLLINA AF HAUKAFÓLKI!
Miðaverð er kr. 1.500 á hvorn leik fyrir 16 ára og eldri, en kr. 500 fyrir börn
6-15 ára.
Þeir sem kaupa miða á báða leikina í einu fá miðana á kr. 2.500 og börn fá
einnig miðana á kr. 500, séu þeir keyptir samtímis á báða leiki.
Forsala miða á Ásvöllum alla daga fram að leikjunum.
Fim. 26.feb.2015
ÍBV - Grótta
kl. 20:00
Final
Four
Helgin í Bikarnum
26 feb.-1.mars
Fös. 27.feb.2015
kl. 20:00
kl. 17:15
Fim. 26.feb.2015
Fös. 27.feb.2015
Valur - FH
kl. 17.15
Lau. 28.feb.2015
Úrslitaleikur kvenna
kl. 13.30
Lau. 28.feb.2015
Úrslitaleikur karla
kl.16.00
Aðrir leikir:
Bæði Haukaliðin í Final Four
Haukar eru flottir og nú mætum við öll í rauðu og styðjum vel við bakið
á okkar fólki.- ÁFRAM HAUKAR!
ÖLL SALA Á ÁSVÖLLUM RENNUR BEINT TIL HAUKA!
Markmiðið að bæta námsárangur
120 milljónum kr. varið til ýmissa þróunarverkefna í fræðslumálum
Átak hefur verið gert í að auka lestraráhuga m.a. í Öldutúnsskóla.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Heili Hjarta Typpi aftur á svið
Gaflaraleikhúsið sýnir þetta vinsæla leikrit á morgun