Fjarðarpósturinn - 26.02.2015, Síða 12
12 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2015
Stofnað 1982
Dalshrauni 24 • Sími 555 4855
steinmark@steinmark.is
Reikningar • Nafnspjöld
Umslög • Bæklingar
Fréttabréf
Bréfsefni
Og fleira
styrkir barna- og unglingastarf SH
Sundstund
gefur gull í mund Stofnuð 1983
EIGN VIKUNNAR
Smárahvammur 15.
Glæsileg efri sérhæð,
eign í sérflokki.
v. 41,5 millj.
Skátafélagið Hraunbúar
fagnaði 90 ára afmæli sínu 22.
febrúar sl. með afmælishátíð í
Hraunbyrgi. Þar voru margir góð
ir gestir, ungir sem aldnir og
fögnuðu með hinu síunga skáta-
félagi.
Sýndar voru kvikmyndir sem
Eiríkur Jóhannesson, sem margir
muna eftir frá St. Jósefsspítala,
tók og nýverið hafa verið færðar
yfir á stafrænt form. Skátakórinn
söng og dagskrá var í skátaheim-
ilinu. Bæjarstjóri, Haraldur L.
Haraldsson flutti góðar kveðjur
frá Hafnar fjarðar bæ og færði
félaginu forláta myndavél til
nota í skátastarfinu. Eldri skátar;
skátagildin í Hafnarfirði, Skáta-
kórinn og Hraunbúasjóðurinn
færðu félaginu veglega gjöf, nýja
fullkomna lýsingu í salinn og
skátahöfðingi fagnaði tíma-
mótunum og færði félaginu stórt
Íslandskort að gjöf. Forseti
Íslands hr. Ólafur Ragnar Gríms-
son, aðlagaði stífa dagskrá sína
til að fagna með skátunum en
forsetinn lagði einmitt horn-
steininn að Hraunbyrgi. Ávarp-
aði hann gesti og rifjaði að sjálf-
sögðu upp brot úr sínu skátastarfi
á Ísafirði.
Sýning var á gömlum myndum
og skátaminjum en sameiginleg
minjanefnd Hraunbúa og St.
Georgsgildisins hafði komið upp
glæsilegri sýningu.
Boðið var upp á kakó að skáta-
sið og veisluborðið var hlaðið
kræsingum frá foreldrum en
margir lögðu hönd á plóg við að
gera daginn sem hátíðlegastan.
22. febrúar er einnig hátíðisdagur
skátahreyfingarinnar en upphafs-
maður hennar, sir Baden Powell
var fæddur þennan dag. Myndir
frá afmælinu má finna á Face-
book síðu Fjarðarpóstsins.
Una félagsforingi tekur við góðri gjöf frá Haraldi bæjarstjóra.
90 ára síungir Hraunbúar
Forseti Íslands, skátahöfðingi og bæjarstjóri mættu í afmælishófið í Hraunbyrgi
Forseti Ísland ávarpaði skátana á léttu nótunum.
Fjórir Hraunbúar voru heiðraðir gott starf fyrir félagið.
Sumir fá skátabakteríuna strax
með móðurmjólkinni og flestir
hætta aldrei að vera skátar.
Skátakórinn söng í afmælinu.
Lj
ós
m
yn
di
r:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n