Ægir - 01.08.2013, Blaðsíða 8
8
Á síðastliðnum árum hefur
áhersla íslenskra fiskvinnslu-
fyrirtækja á ferskar afurðir
aukist enda er eftir meiru að
slægjast fjárhagslega en í
öðrum afurðaflokkum, sagði
dr. Björn Margeirsson á ráð-
stefnu um markaðsmál sjávar-
útvegs sem haldin var á Ísa-
firði nýverið. Frá árinu 2000
jókst útflutningur ferskra
flaka og flakabita (hnakka-
stykkja) úr tæplega 12 þús-
und tonnum í tæp 27 þúsund
tonn árið 2012. Þessa 15
þúsund tonna aukningu má
aðallega rekja til tæplega 11
þúsund tonna aukningar í
gámaflutningi en flugflutning-
urinn jókst um 4 þúsund tonn
tonn á umræddu 12 ára tíma-
bili. Árið 2012 voru um 42%
ferskra afurða flutt með skip-
um borið saman við 4-10% á
árabilinu 1999 og 2003. Út-
flutningsverðmætið (FOB
verð) jókst úr um 6 milljörðum
króna árið 2000 í rúma 34
milljarða króna árið 2012.
Lægri kostnaður með
sjóflutningum
„Áhugi útflytjenda á gáma-
flutningi má væntanlega eink-
um rekja til lægri flutnings-
kostnaðar auk þess sem sýnt
hefur verið fram á að al-
mennt er erfiðara að halda
umhverfishitaálagi í skefjum í
flugflutningi en í gámaflutn-
ingi á sjó. Í doktorsritgerð
minni, Hermun hitastigsbreyt-
inga í flutningi ferskra fiskaf-
urða sem lokið var við árið
2012, er þetta staðfest,“ sagði
Björn. Hann benti á að mun
styttri flutningstími í flugi og
takmarkað framboð á skipa-
ferðum valdi því þó að í fyr-
irsjáanlegri framtíð muni
ákveðinn hluti ferskra afurða
áfram verða fluttur með flugi.
Ú T F L U T N I N G U R
Sífellt meira af ferskfiski
flutt á markaði með skipum
- meðalverð sjófluttu afurðanna hækka hraðar en flugfisksins
Kæling hráefnis í vinnsluferli er
veigamikill þáttur í ferskleika vör-
unnar í gegnum flutningsferli á
leið til kaupenda.
Dr. Björn Margeirsson rannsóknastjóri Promens - Tempru.