Ægir - 01.08.2013, Blaðsíða 27
27
A Ð A L F U N D U R L Í Ú
Gjaldtakan hefur nú þegar
skaðað
Adolf gerði veiðigjöld að um-
fjöllunarefni og taldi sýnt að
þau hafi hamlandi áhrif á
framþróun í greininni. „Veiði-
gjöld hafa verið lögð á á
grunni reglna sem eru ógagn-
sæjar og óraunhæfar og
mundu ekki halda væri látið á
þær reyna fyrir dómstólum.
Veiðigjöldin hafa þegar skað-
að atvinnugreinina, en þær
hugmyndir um veiðigjöld sem
uppi voru síðastliðinn vetur
hefðu sem meira er sennilega
riðið að fullu mörgum útgerð-
arfélögum hefðu þær orðið
að lögum og þeim hrint í
framkvæmd. Þessi staða skap-
ar slíka óvissu í rekstri útgerð-
arinnar að farið er að hamla
verulega þróun greinarinnar
og fjárfestingu í henni,“ sagði
formaður LÍÚ og bendi einnig
á gjaldtökuna sem áhrifaþátt í
kjarasamningaviðræðum við
sjómenn. Ljóst megi vera að
bæði þurfi að taka tillit til
kostnaðarauka vegna veiði-
gjalda sem og stórhækkun
olíukostnaðar þegar að með-
altali megi gera ráð fyrir að
laun sjómanna séu um 40% af
aflaverðmæti. „Sú hugsun að
hagsmunir útvegsmanna og
sjómanna haldist í hendur
hefur að miklu leyti tapast og
það þarf að leiðrétta.“
Hvati þarf að fylgja
rekstrarumhverfinu
Í lok ræðu sinnar rifjaði Adólf
upp ákvæði stefnuyfirlýsingar
nýrrar ríkisstjórnar hvað sjáv-
arútvegsmál varðar. Þar komi
fram að grundvöllur fiskveiði-
stjórnunar verði áfram afla-
markskerfið.
„Þá kemur fram að áfram
verði unnið með tillögu sátta-
nefndar sem starfaði á liðnu
kjörtímabili um að samnings-
bundin réttindi um nýtingu
aflaheimilda taki við af varan-
legri úthlutun. Samningarnir
feli í sér rétt til endurnýjunar
að uppfylltum skilyrðum sem
samningarnir kveði á um.
Í stefnuyfirlýsingunni segir
ennfremur að lög um veiði-
gjald verða endurskoðuð á
þann hátt að tekið verði al-
mennt gjald sem endurspegli
afkomu útgerðarinnar í heild
og annað sérstakt gjald sem
taki mið af afkomu einstakra
fyrirtækja.
Útvegsmenn hafa lýst sig
reiðubúna til samstarfs með
stjórnvöldum að skapa megi
sjávarútveginum góðan grunn
til verðmætasköpunar, samfé-
laginu til heilla. Til þess að
svo megi verða þarf að
tryggja frið um greinina og
rekstraumhverfi sem hefur í
sér hvata til fjárfestingar og
sóknar.“
Hvalaafli verði ákveðinn
til næstu fimm ára
Á aðalfundi LÍÚ var samþykkt ályktun um
hvalveiðar. Þar er skorað á sjávarútvegsráð-
herra að ákveða leyfilegan heildarafla á
langreyði og hrefnu fyrir næstu fimm ár „til
að tryggja að áfram verði hægt að veiða
hval við Ísland í anda ábyrgrar og skynsam-
legrar nýtingar sjávarauðlinda,“ eins og seg-
ir samþykktinni.
Fylgst með framsöguerindum á aðalfundi útvegsmanna. Kristján Ragnarsson, fyrrverandi formaður LÍÚ, lét sig ekki vanta á aðalfundinn og
heilsar hér Sigurði Inga Jóhannssyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.