Ægir - 01.08.2013, Blaðsíða 28
28
F I S K V I N N S L A
Frostfiskur ehf. er stærsta
fiskvinnslan í Þorlákshöfn og
framleiðir úr allt að 12 þús-
und tonnum af hráefni á ári.
Fyrirtækið kaupir nánast allt
sitt hráefni á markaði. Inn-
kaupunum er hagað eftir
pöntunum sem berast frá er-
lendum kaupendum og hrá-
efnið er mest línuveiddur fisk-
ur frá dagróðrabátum. Aðals-
merki Frostfisks er að útvega
viðskiptavinum sínum ferskan
og frosinn fisk af réttum gæð-
um og á réttum tíma.
„Þorlákshöfn hefur verið
útundan í umræðunni.
Kannski vegna þess að for-
kólfar í atvinnulífinu hérna
eru ekki nógu frekir. Menn
láta allt yfir sig ganga,“ segir
Steingrímur Leifsson. Hann er
framkvæmdastjóri Frostfisks
ehf. og rekur fyrirtækið ásamt
bróður sínum, Þorgrími. Þeir
bræður liggja ekkert á skoð-
unum sínum og kveða fast að
orði þegar talið berst að sam-
keppnisstöðu innan fisk-
vinnslunnar og útfærslu á
vigtunarreglum.
Kaupa nánast allt sitt hráefni
utan Þorlákshafnar
Auk Frostfisks reka þeir
bræður skreiðarþurrkunina
Klumbu í Ólafsvík.Frostfiskur
var stofnaður árið 1992 og
vinna um 140 manns hjá fé-
laginu.
Steingrímur minnist fundar
með Jóni Bjarnasyni, fyrrver-
andi sjávarútvegsráðherra,
sem haldinn var í Þorláks-
höfn þar sem fram hafi kom-
ið að árið 1990 hafi um það
bil 30 skip verið gerð út frá
Þorlákshöfn en eru nú innan
við 10.
„Þetta voru samt ekki
nægilega sterk rök til þess að
fá byggðakvóta hingað. Bent
var á að það byggju of margir
á staðnum til þess að hann
fengi byggðakvóta, eða 52
fleiri en reglurnar sögðu til
um. Miðað við önnur svæði á
landinu hefur Þorlákshöfn al-
gjörlega orðið útundan,“ segir
Steingrímur.
Hann segir það einnig til
marks um stöðuna í Þorláks-
höfn að Frostfiskur verður að
kaupa nánast allt sitt hráefni
annars staðar frá.
„Áherslan hefur alltof lengi
verið öll á útgerðina en augu
manna hafa síður beinst að
fiskvinnslu og sölu. Við get-
um ekki búið til verðmæti úr
aflanum nema við getum
unnið hann í verðmætar
pakkningar sem seljast á
góðu verði. Það sem skiptir
öllu máli á neytendamarkaði
eru gæði og stöðugt framboð.
Berist varan ekki fyllast hill-
urnar af annarri matvöru,“
segir Þorgrímur.
Steingrímur segir að alveg
frá upphafsárum kvótakerfis-
ins hafi verið einblínt á út-
Vilja eina vigtarreglu
og allan fisk á markað
Bræðurnir Þorgrímur og Steingrímur Leifssynir reka Frostfisk ehf. í Þorlákshöfn með miklum myndarbrag en hafa eitt og ann-
að út á samkeppnisstöðu fiskvinnslunnar að setja.