Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.2013, Blaðsíða 19

Ægir - 01.08.2013, Blaðsíða 19
19 F R É T T I R höfn hefði alveg borið það að starfsemi Meitilsins héldi áfram. „Hafnarmannvirkin myndu bera slíkt, bara eins og þau eru í dag. En hér hefur þó ýmislegt byggst upp, eins og t.a.m. Lýsi, sem er hér með myndarlega starfsemi og frek- ari uppbygging er í vændum. Einnig verður að nefna Frost- fisk sem er mjög sérstakt fyr- irtæki á landsvísu. Það á eng- an kvóta og er eingöngu í fiskvinnslu og kaupir á mark- aði. Fyrirtækið er einmitt í fyrrum húsnæði Meitilsins. Hér eru líka mjög stöndug út- gerðarfyrirtæki sem byggja á gömlum grunni, eins og Hafnarnes VER, Auðbjörg og Rammi.“ Þrátt fyrir að ýmislegt hafi gengið á í atvinnumálunum síðustu árin hefur íbúum fjölgað jafnt og þétt síðustu tvo áratugi í Þorlákshöfn. Þetta má þakka þróuninni sem hefur orðið í atvinnumál- um en einnig sækja margir vinnu til höfuðborgarsvæðis- ins en búa í Þorlákshöfn. Stórskipahöfn og ferjusiglingar Gunnsteinn segir að mörg tækifæri séu til staðar í Þor- lákshöfn til að renna enn styrkari stoðum undir at- vinnumálin. „Við sjáum gríðarleg tæki- færi í tengslum við höfnina. Hún er stór en ekki nægilega stór til að fanga þau tækifæri sem við sjáum fyrir okkur. Þar erum við að horfa til sjó- flutninga til og frá Evrópu. Síðastliðin 100 ár hefur sú umræða verið á kreiki að gerð yrði stórskipahöfn hérna. Þó að sigling fyrir Reykjanesið hafi verið að styttast í áranna rás með bættum skipakosti og sigl- ingatækni tekur það enn drjúgan tíma að sigla fyrir nesið, eða 8-10 tíma hvora leið. Landfræðileg lega stór- skipahafnar er því með ákjós- anlegasta móti í Þorlákshöfn með tilliti til sjóflutninga til Evrópu.“ Nú þegar er kominn vísir að slíkri starfsemi í Þorláks- höfn því Sláturfélag Suður- lands og fleiri fyrirtæki flytja inn áburð frá Evrópu sem er skipað upp í Þorlákshöfn. SS er að hefja framkvæmdir við byggingu nýs 1.500 fermetra birgðahúss á staðnum í tengslum við áburðarinnflutn- inginn. Lýsi er að reisa tvo myndarlega lýsistanka niðri við höfnina en fyrirtækið flyt- ur verulegt magn af lýsi til landsins til sinnar framleiðslu. Skipakomur munu aukast í Þorlákshöfn með þessum fjár- festingum. Nú er allt útlit fyrir að ferjusiglingar frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja hafi endan- lega lagst af. Sú starfsemi var talsvert mikil í rekstri hafnar- innar. „Það er áhugi fyrir Ís- landi og við sjáum alveg fyrir okkur að það séu tækifæri í ferjusiglingum milli Íslands og Evrópu. Allt er þetta á umræðustigi en ekki í fram- kvæmdafasa en það eru mörg tækifæri til frekari atvinnu- uppbyggingar hér í Þorláks- höfn,“ segir Gunnsteinn. DELTA VO3 OF PV3 Toghlerar Góðir í köstun • Fljótir að ná skver • Stöðugir Ásoðnir skór og slitjárn • Hagkvæmir í rekstri og lítið viðhald Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets: • Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28 • Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19 • Ísnet Húsavík - Barðahúsi • Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi • Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1 • Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is www.isfell.is Á þessari lóð rís innan tíðar 1.500 fermetra birgðahús Sláturfélags Suðurlands.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.