Ægir - 01.08.2013, Qupperneq 15
15
F R É T T I R
séð hvernig vélar og búnaður
virkar. Þá segir hún að einnig
verði mikið um stærri vöru-
sýningar í húsinu og verður
sú fyrsta haldin í byrjun
febrúar sem er Marel Salmon
ShowHow. Sýningin hefur
skapað sér nafn sem ein
besta alþjóðlega sýningin á
tækjabúnaði og lausnum fyrir
vinnslu laxaafurða.
Mikill ávinningur fyrir íslenska
viðskiptavini Marel
Berta Daníelsdóttir, fram-
kvæmdastjóri sölu- og þjón-
ustuskrifstofu Marel á Íslandi,
segir að tilkoma Progress Po-
int muni hafa í för með sér
mikinn ávinning fyrir við-
skiptavini Marel um heim all-
an og ekki síst viðskiptavini
fyrirtækisins hér á landi.
„Með tilkomu Progress Po-
int verður mun auðveldara
fyrir okkur að gera prófanir
með viðskiptavinum þar sem
flest tæki verða tiltæk. Um-
gjörðin og aðstaðan verður
eins og best verður á kosið.
Progress Point ætti líka að
aðstoða viðskiptavini okkar í
ákvarðanatöku við kaup á
nýjum búnaði þar sem auð-
velt verður að fara og skoða
virkni búnaðarins. Við höfum
auðvitað alltaf lagt okkur
fram við að hjálpa viðskipta-
vinum okkar t.d. með því að
útvega þeim Mareltæki til
reynslu, áður en þeir taka
ákvörðun um kaup. Prófanir í
framleiðslurými viðskiptavin-
ar geta hins vegar valdið
röskun á daglegri starfssemi
hans. Til þess að mæta þessu
höfum við oft á tíðum sett
tækin upp í verksmiðju Marel
í Garðabænum og boðið við-
skiptavinum að koma og taka
þátt í prófunum með okkur.
Þar höfum við hinsvegar ekki
alltaf tiltæk öll þau tæki sem
þörf er á. Tilkoma Progress
Point mun gjörbylta þessu
ferli og við erum sannfærð
um að viðskiptavinir okkar
verði ánægðir með þessa
auknu þjónustu sem við get-
um nú boðið þeim,“ segir
Berta.
Berta Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri
sölu- og þjónustuskrifstofu Marel á
Íslandi.
Elísabet Austmann, þróunarstjóri
Progress Point.
Matís ohf. er í mörgum skilningi mikilvæg auðlind fyrir Íslendinga. Fyrirtækið er lykilaðili í
matvælarannsóknum og matvælaöryggi og hefur að baki sér þekkingu 100 starfsmanna
sem eru sérfræðingar og vísindamenn á ólíkum sviðum.
Rannsóknir eru íslenskum sjávarútvegi mikilvægar því þæ styðja framþróun, nýsköpun og
markaðsstarf greinarinnar. Hjá Matís er stöðugt unnið að fjölda rannsóknarverkefna sem
tengjast sjávarútvegi með ýmsum hætti. Þannig leitum við sífellt svara og vitum alltaf
meira í dag en í gær.
Rannsóknir
í þágu sjávarútvegs
Stefna Matís er að
... vera framsækið þekkingarfyrirtæki sem eflir samkeppnishæfni
Íslands og skilar þannig tekjum til íslenska ríkisins
... vera eftirsóttur, krefjandi og spennandi vinnustaður með fyrsta
flokks aðstöðu þar sem starfsmenn njóta sín í starfi
... hafa hæft og ánægt starfsfólk
Gildi Matís
Frumkvæði
Sköpunarkraftur
Metnaður
Heilindi
Hlutverk Matís er að
... efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs
... tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu um-
hverfisins með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu
... bæta lýðheilsu
www.matis.is