Ægir - 01.08.2013, Page 20
20
Á dögunum kom á markað hér
á landi nýr aflanemi frá
norska fyrirtækinu Scanmar.
Tilkoma hans markar nokkur
tímamót því með honum er
Scanmar að hefja á ný fram-
leiðslu á einfaldari gerðum
nema við hlið nemalínunnar
SS4 sem fyrirtækið markaðs-
setti fyrir nokkrum árum.
Fjöldamargar útgerðir hér á
landi eru enn með gömlu afla-
nemana frá Scanmar í notk-
un.
„Af Scanmar aflanemanum
hafa útgerðir hér á landi
langa og mjög góða reynslu.
Það er ekki óalgengt að við
sjáum nema í notkun sem
orðnir eru um 20 ára gamlir,
sem er afburða góð ending.
Með tilkomu nýju SS4 kyn-
slóðarinnar fyrir nokkrum ár-
um var settur á markað nemi
sem hefur fleiri notkunarsvið,
gefur t.d. upplýsingar um
halla og straum, svo dæmi sé
tekið. Hann var því eðlilega
bæði flóknari og dýrari en
með tilkomu hans var fram-
leiðslu þessa klassíska eldri
aflanema hætt. Við höfum
skynjað mikinn áhuga á
markaðnum á því að fá nýja
uppfærslu af gamla góða afla-
nemanum frá Scanmar og
þessi nýi Scan Classic er svar
við því. Ég veit að margir út-
gerðaraðilar og sjómenn hafa
beðið eftir þessum nema og
taka því fagnandi að eiga aft-
ur kost á honum,“ segir Þórir
Matthíasson, framkvæmda-
stjóri Scanmar á Íslandi.
Skiptanleg rafhlaða - enginn
hleðslutími
Nýi aflaneminn er að ytra út-
liti nánast eins og fyrirrennar-
inn. Hann er búinn öllu því
besta sem Scanmar hefur að
bjóða í senditækni og innri
búnaði en stærsta breytingin
er hins vegar sú að ekki þarf
að hlaða hann eins og gömlu
nemana heldur er í honum
skiptanleg rafhlaða sem hefur
gríðarlegan líftíma.
„Stóra breytingin er raf-
hlöðuendingin. Gömlu nem-
ana þarf að taka af veiðarfær-
inu og hlaða á 30-50 klukku-
stunda fresti en í þessum nýja
nema er umhverfisvæn raf-
hlaða sem hefur 1500-2000
klukkustunda endingu. Þá er
verið að tala um þann tíma
sem neminn er virkur og
sendir frá sér upplýsingar en
skynjun í honum stýrir því að
hann sendir aðeins þegar
neminn er í sjó. Þetta þýðir
að hægt er að fara í marga
róðra án þess að þurfa að
hugsa um að skipta um raf-
hlöðu en þegar að þeim
tímapunkti kemur er neminn
tekinn af trollinu og skipt um
rafhlöðu á nokkrum mínútum
með mjög einfaldri aðgerð,“
segir Þórir.
Eins og áður segir er Scan
Classic aflaneminn sá fyrsti í
kynslóð sem Scanmar mun
markaðssetja á komandi mán-
uðum og árum við hlið SS4
nemakerfisins. „Með þessari
kynslóð erum við að mæta
þeim sem betur henta ein-
faldari og ódýrari nemar,
bjóða nýjan valkost og
breiðari vörulínu fyrir við-
skiptavini okkar,“ segir Þórir.
Þórir Matthíasson, framkvæmdastjóri Scanmar á Íslandi, með nýja aflanemann.
T Æ K N I
Nýr aflanemi
frá Scanmar