Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.08.2013, Qupperneq 22

Ægir - 01.08.2013, Qupperneq 22
22 „Smábátaveiðarnar eru að mörgu leyti hliðhollar um- hverfinu, veiðarfærin eru vist- væn og við stýrum veiðum okkar á ábyrgan hátt. Um- hverfisvænar veiðar smábáta- útgerðarinnar á Vestfjörðum, í hreinum fjörðum og afli þeirra er fiskur sem fer inn í há- gæðafiskvinnslur. Við getum sameinast um að skjalfesta stöðu okkar í umhverfismálum hér á svæðinu og selja ímynd okkar umhverfisvænu og ábyrgu fiskveiða,“ sagði Sig- urður Ingi Jóhannsson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráð- herra, þegar hann ræddi sjáv- arútvegsmál og Vestfirði á ráðstefnu á Ísafirði fyrr í haust. Ráðherra vék í máli sínu nokkuð að gæðamálum og meðferð afla. Hann sagði mikla ábyrgð því fylgja að fá að nýta sjávarauðlindina. Ábyrð fylgir meðferð afla „Það er algjörlega óviðunandi ef að illa kældur og meðfar- inn fiskur er að fara á sömu verðum og hágæðahráefni. Mér finnst mikilvægt að menn líti í eigin barm í þessum efn- um. Þessi réttur að fá að nýta auðlindina er ekki sjálfsagður. Það er aftur á móti sjálfsögð krafa að hann sé nýttur á ábyrgan hátt og verðmæti hráefnisins hámarkað. Við þurfum að taka gæða- málin föstum tökum. Nýta okkur þau úrræði sem eru til staðar til að bæta úr. Notum sérstöðu svæðisins sem svæð- is með hágæða fisk frá um- hverfisvænum veiðum, veidd- um undir ábyrgu fiskveiði- stjórnunarkerfi sem hægt er að upprunamerkja sem slík- an. Sameinumst um tæki- færin, finnum sérstöðu svæð- isins og vinnum með hana,“ Ráðstefna Vestfirðinga um markaðsmál í sjávarútvegi: „Verðum að taka gæða- málin föstum tökum“ -sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra. V E S T F I R Ð I R

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.