Fréttablaðið - 11.04.2015, Side 22
11. apríl 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22
Ilmur Kristjánsdóttir leikkona og nú borgarfulltrúi í Reykja-vík á að baki áhugaverðan feril þrátt fyrir að vera enn ung að árum. Hún hefur átt gifturík-an feril í leikhúsi, sjónvarpi og
kvikmyndum en í vikunni tók hún
sæti borgarfulltrúa fyrir Bjarta
framtíð og sest í forsæti fyrir vel-
ferðarráð Reykjavíkurborgar. Síð-
ustu mánuði hefur Ilmur verið upp-
tekin við tökur á Ófærð og fyrir
skömmu var frumsýnd kvikmynd-
in Fúsi þar sem Ilmur er í burðar-
hlutverki á móti Gunnari Jónssyni
og bæði þykja þau fara á kostum í
myndinni.
„Gussi er svo frábær náungi og
það var roslega gaman að vinna
þessa mynd með honum. Hann er
svo fullkomlega laus við að vera
alltaf að hafa áhyggjur af því hvað
öðrum finnst eða hvernig hann á
að vera. Hann er einfaldlega alltaf
hann sjálfur og engum líkur. Slíkt
er helst til fágætt í nútímasamfélagi.
Narsissos og Facebook
Um daginn byrjaði ég til að mynda
að segja dóttur minni dæmisöguna
um Narsissos sem var svo hrif-
inn af sinni eigin fegurð að hann
drukknaði í eigin spegilmynd – allt-
af að kíkja á sjálfan sig í hylnum
þangað til hann drukknaði,“ segir
Ilmur með leikrænum áherslum og
bætir við með ekki síðri tilþrifum:
„Og svo fór ég beint á Facebook.
Hvað er ég komin með mörg læk?
Þetta er alveg það sama. Við erum
alltaf að kíkja í hylinn. Velta því
fyrir okkur hvað öðrum finnst og
hvort að það er verið að samþykja
okkur og læka. Svo drukknum við
bara í sjálfum okkur,“ segir Ilmur
og hlær prakkaralega.
„Svona er þetta með svo margt.
Það er svo miklu meira spennandi
að horfa í kringum sig og hlusta á
annað fólk en að vera alltaf að stara
í spegilinn – hvort sem hann er inni
á baði eða í símanum.“
Leikhús og pólitík
Áhugi á öðru fólki, velferð þess og
líðan er nauðsynleg hverjum þeim
sem vill taka þátt í stjórnmálum og
Ilmur hefur einlægan áhuga á vel-
ferð annarra.
„Ég hef alltaf haft áhuga á póli-
tík. Að gera heiminn að betri stað
hefur eiginlega verið einhvers
konar þráhyggja hjá mér. Leikhús-
ið fæst líka við að reyna að breyta
samfélaginu til betri vegar en það
gerir það með sögum og sköpun
sem getur hreyft við okkur. Mótað
hugmyndir okkar um lífið og mann-
eskjuna til betri vegar. Svo það er
kannski skemmra á milli leikhúss-
ins og stjórnmálanna en virðist
við fyrstu sýn. Ég skrifaði lokarit-
gerðina mína í Listaháskólanum
um Agusto Boal, brasilískan leik-
húsmann sem notaði leikhúsið til
þess að fræða og virkja samfélagið.
Hann skrifaði bók sem heitir Leik-
hús hinna kúguðu og vinnur eftir
þeirri aðferðafræði á fátækustu
svæðum jarðar. Þegar ég kom til
Mósambík á vegum UNICEF þá sá
ég svona leikhóp að störfum. Fólk
kom með vandamál og hópurinn
lék þau fyrir áhorfendur sem tóku
þátt í að leita lausna og leika þær á
staðnum. Þannig er leikhúsið önnur
leið að því sama markmiði að bæta
samfélagið og ég er bara að prófa
að fara aðra leið.
Þörfin fyrir að hjálpa
Mér finnst merkilegt að Agusto
Boal var svo eitt sinn boðið til Sví-
þjóðar. Boðið að koma til fyrir-
myndarlandsins og hjálpa þarlend-
um að takast á við sín vandamál.
Honum fannst það nú frekar hlá-
legt tilhugsunar en engu að síður
uppgötvaði hann þar ný og rosaleg
vandamál sem hann hafði aldrei
séð áður í sínu starfi. Í Svíþjóð sá
hann einmanaleikann og óham-
ingjuna í velsældinni þar sem fólk
var jafnvel að svipta sig lífi. Það
fær mann til þess að hugsa að við
þurfum öll að taka ábyrgð hvert á
öðru. Við höfum öll fundið þennan
einmanaleika og hann er dálítið
skyldur narsissismanum. Því það
að heillast af sjálfum sér leiðir til
einmanaleika. En í dag er ég með
verkfæri gegn mínum einmana-
leika og það er ómetanlegt.
Við þurfum líka á því að halda að
hjálpa og gefa af okkur. Að hjálpa
snýst ekki bara um peninga. Þeir
sem eru aflögufærir um peninga
ættu endilega að deila þeim en svo
er líka ómetanlegt að tala við fólk,
vera til staðar og sýna hvert öðru
virðingu. Allt er þetta liður í vel-
sæld okkar allra – bæði að gefa og
þiggja.
Tækifærin í lífinu
Ég er alin upp á pólitískt meðvit-
uðu heimili, mjög vinstri- og jafn-
réttissinnuðu. Foreldrar mínir eru
fólk með sterka réttlætiskennd og
auðvitað mótar þetta mann eins og
annað í uppvextinum. Annars hef
ég í raun alltaf verið frekar leitandi
manneskja og reiðubúin til þess að
prófa nýja hluti. Fyrir nokkrum
árum skellti ég mér t.d. í guðfræði
og sumum þótti það óvænt skref á
sínum tíma. Það snerist nú einfald-
lega um það að ég hætti að refsa
mér fyrir það að vera leitandi. Hver
segir að maður þurfi að vera í sama
starfinu alla ævi?
Mér finnst reyndar frekar bros-
legt að það virðast margir halda að
ég sé alveg svona korter í prest en
það er satt best að segja langt frá
því, en hver veit hvað framtíðin
ber í skauti sér. Þessi tími opnaði
augu mín fyrir áhugaverðum hlut-
um. Ég kynnti mér líka búddisma
og íslam og er í sjálfu sér hlynnt
trúarbrögðum. Öll trúarbrögð eru
leiðarvísir að sama marki; guði eða
kærleikanum en fólki hættir til að
flækja málið.
Stóra málið er að þora að fylgja
hjartanu og stökkva á þau tækifæri
sem lífið færir manni. Pólitíkin er
þannig eitt af þessum tækifærum
og nú er ég að byrja að takast á
við hana. Það verður mikil og góð
áskorun.“
Eins og Mexíkóborg
Það þarf að sönnu hugrekki til
þess að takast á við það tækifæri
sem býður Ilmar með því að skella
sér út í borgarpólitíkina og það í
sjálft velferðarráð. En hún óttast
ekki verkefnið heldur nálgast það
af lítillæti.
„Þetta er svipuð tilfinning og
þegar ég fór til Mexíkóborgar sem
var talin ein hættulegasta borg í
heimi. Ég var alveg skítstressuð og
fólk var duglegt við að benda mér
á hætturnar áður en ég fór. En svo
var þetta bara alveg æðisleg upp-
lifun.
Auðvitað átta ég mig á því að ég
er fara að takast á við stórt og erf-
itt verkefni í velferðarmálunum.
Það eru margir búnir að koma til
mín og segja: „Ilmur ertu brjáluð
– ætlarðu að taka við velferðar-
ráði? Veistu hvað það er erfiður
málaflokkur?“ Þannig að ég veit
að þetta verður erfitt verkefni en
vonandi verður það líka skemmti-
legt eins og ferðin til Mexíkóborg-
ar var á sínum tíma. Ég er ekki að
fara að umbylta neinu en vonast til
þess að við sem samfélag bætum
okkur.
Að gera gagn
Ég er svo heppin að vera að taka
við af Björk Vilhelmsdóttur og
hún býr yfir gríðarlegri þekkingu
á þessu sviði. Hún hjálpar mér
fyrstu skrefin og það gerir þetta
léttara. Það sem ég hef helst haft
áhyggjur af er að velferðarkerfið,
eða kannski öllu heldur samfélagið,
sé þannig saman sett að þeir sem
nýti velferðarþjónustu hverju sinni
séu þiggjendur með neikvæðum for-
merkjum. Það býr til einhverja hug-
læga skömm sem á ekki að eiga sér
stað. Við lendum öll í áföllum og við
þurfum að standa með hvert öðru.
Málið er að við erum öll þiggj-
endur. Við erum þiggjendur þjón-
ustu sem við sköffum hvert öðru.
Fullt af barnlausu fólki borgar
skólagöngu barnanna okkar. Fullt
af heilbrigðu fólki niðurgreið-
ir læknisþjónustu en þetta heitir
að vera í samfélagi. Það er hagur
allra að öllum líði sem best og það
er réttur fatlaðs fólks og öryrkja að
það sé búið þannig um þá að þeir
geti skilað til samfélagsins. Við
viljum öll vera nytsamleg. Gera
gagn.“
Leikhúsið fæst líka
við að reyna að breyta
samfélaginu til betri vegar
en það gerir það með
sögum og sköpun sem
getur hreyft við okkur.
Að hjálpa snýst ekki
bara um peninga. Þeir sem
eru aflögufærir um
peninga ættu endilega að
deila þeim en svo er líka
ómetanlegt að tala við
fólk, vera til staðar og sýna
hvert öðru virðingu.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Við viljum öll vera nytsamleg
Ilmur Kristjánsdóttir leikkona tók í vikunni sæti í borgarstjórn Reykjavíkur þar sem hún tekur við forsæti í velferðarráði
borgarinnar. Þrátt fyrir ungan aldur á hún að baki glæstan feril í leikhúsinu en nú taka við nú og spennandi tækifæri.
BORGARFULLTRÚI Ilmur Kristjánsdóttir leikkona og nú borgarfulltrúi er óhrædd við að breyta til og takast á við ný og krefjandi verkefni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
4
1
-5
6
F
C
1
6
4
1
-5
5
C
0
1
6
4
1
-5
4
8
4
1
6
4
1
-5
3
4
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K