Fréttablaðið - 11.04.2015, Blaðsíða 104
11. apríl 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 64
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
FÓTBOLTI Gunnar Nielsen, lands-
liðsmarkvörður Færeyja, vill
sýna sig og sanna upp á nýtt með
Íslandsmeisturum Stjörnunnar
en hann samdi við nýverið við
liðið og hefur nú hafið æfingar í
Garðabænum. Hann var kynntur
fjölmiðlum á blaðamannafundi á
Samsung-vellinum í gær.
„Ég er ánægður með að vera
kominn hingað til Stjörnunnar,“
sagði Gunnar sem er hálfur Íslend-
ingur en móðir hans er frá Siglu-
firði. Gunnar ólst þó upp í Færeyj-
um en hefur margsinnis heimsótt
Ísland.
Þessi 28 ára gamli markvörður á
langan feril að baki og hefur verið
á mála hjá bæði Blackburn og
Manchester City í ensku úrvalsdi-
eldinni. Þar fékk hann hins vegar
fá tækifæri en varð fyrsti Færey-
ingurinn til að spila í ensku úrvals-
deildinni er hann kom inn á fyrir
Shay Given í leik City gegn Arse-
nal árið 2010.
En tíð meiðsli hafa sett strik í
reikninginn hjá honum og það var
ekki fyrr en hann samdi við Mot-
herwell í Skotlandi árið 2013 að
hann fékk að spila reglulega. En
samningi hans við félagið var rift
í síðasta mánuði og vildi hann ekki
greina frá ástæðum þess.
„Ég veit að ég hef átt skrýtinn
feril og þegar maður ákveður að
semja við stór lið eins og Black-
burn og Manchester City er áhætt-
an vissulega sú að það sé erfitt að
komast í liðið. En mér fannst að ég
yrði að segja já þegar maður fær
tækifæri sem þetta,“ sagði hann.
„Ég sé ekki eftir neinu. Auð vit-
að vil ég spila meira og nýta þau
tækifæri sem ég fékk. En það er
margt sem getur skemmt fyrir,
eins og meiðsli, sérstaklega þegar
maður er hjá stórum félögum.“
Hann vill sanna sig hjá Stjörn-
unni og veit að gott gengi á Íslandi
getur leitt til þess að stór erlend
félög fylgist með honum.
„Ég vil fyrst og fremst fá að
spila fullt af leikjum. Vonandi
tekst okkur að ná árangri, hvort
sem er í deildinni eða Evrópu-
keppninni. Ég hef líka séð að leik-
menn sem standa sig vel hér fá
tækifæri hjá erlendum liðum. Ég
lít ekki á þetta sem skref aftur á
bak,“ segir Gunnar en hann samdi
við Stjörnuna út tímabilið. - esá
Sér ekki eft ir neinu
Gunnar Nielsen vill sanna sig hjá Stjörnunni.
ÚRSLIT
DOMINO’S-DEILD KARLA
UNDANÚRSLIT, 2. LEIKUR
HAUKAR - TINDASTÓLL 74-86 (30-48) 0-2
Haukar: Emil Barja 18/7 fráköst/7 stoðsendingar,
Haukur Óskarsson 16/6 fráköst, Kristinn Marinós-
son 11, Helgi Björn Einarsson 9/4 fráköst, Sigurður
Þór Einarsson 7, Alex Francis 7/13 fráköst, Kári
Jónsson 4, Kristinn Jónasson 2.
Tindastóll: Darrel Keith Lewis 28/9 fráköst,
Myron Dempsey 17/18 fráköst/3 varin skot, Ingvi
Rafn Ingvarsson 13, Pétur Rúnar Birgisson 8/7
stoðsendingar, Svavar Atli Birgisson 6, Darrell
Flake 6/4 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 5, Helgi
Freyr Margeirsson 3.
Tindastólsliðið er búið að vinna fimm fyrstu leiki
sína í úrslitakeppninni.
NÆSTU LEIKIR
KR - NJARÐVÍK SUN. KL. 19.15
TINDASTÓLL - HAUKAR MÁN. KL. 19.15
OLÍSDEILD KARLA
8-LIÐA ÚRSLIT, 2. LEIKUR
AKUREYRI - ÍR 23-20 (15-11) 1-1
Mörk Akureyrar (skot): Kristján Orri Jóhannsson
11/5 (13/5), Brynjar Hólm Grétarsson 4 (7), Nicklas
Selvig 3 (6), Heiðar Þór Aðalsteinsson 2 (5),
Halldór Logi Árnason 1 (1), Sverre Jakobsson 1 (1),
Heimir Örn Árnason 1 (5).
Varin skot: Tomas Olason 14 (28/2, 50%), Hreiðar
Levý Guðmundsson 1 (7/1, 14%).
Mörk ÍR (skot): Davíð Georgsson 5 (10), Sturla
Ásgeirsson 4/3 (7/3), Arnar Birkir Hálfdánsson 3
(11), Ingvar H Birgisson 2 (2), Bjarni Fritzson 2
(3), Ingi Rafn Róbertsson 2 (5), Daníel Ingi Guð-
mundsson 2 (7).
Varin skot: Arnór Freyr Stefánsson 11 (24/3,
46%), Svavar Már Ólafsson 2 (12/2, 17%).
ÍBV - AFTURELDING 21-22 (11-10) 0-2
Mörk ÍBV (skot): Andri Heimir Friðrikss. 6 (10),
Theodór Sigurbjörnss. 5/4 (6/4), Guðni Ingvarss. 3
(5), Einar Sverriss. 3 (9), Agnar Smári Jónss. 2 (4),
Dagur Arnarsson 1 (1), Grétar Þór Eyþórsson 1 (2).
Varin: Kolbeinn Aron Arnars. 16/2 (38/3, 42%),
Mörk Aftureldingar (skot): Örn Ingi Bjarkason 4
(11), Árni Bragi Eyjólfsson 3 (3), Pétur Júníusson
3 (4), Jóhann Jóhannsson 3 (6), Jóhann Gunnar
Einarsson 3/1 (8/3), Elvar Ásgeirsson 2 (3), Birkir
Benediktsson 1 (1), Ágúst Birgisson 1 (1), Gunnar
Þórsson 1 (2), Böðvar Páll Ásgeirsson 1 (3).
Varin skot: Davíð Hlíðdal Svansson 13 (33/3,
39%), Pálmar Pétursson (1/1, 0%).
NÆSTU LEIKIR
AKUREYRI - ÍR SUN. KL. 16.00
SWANSEA–EVERTON
Lau. 11. apríl kl. 11:35
Sun. 12. apríl kl. 14:45
MAN. UNITED–MAN. CITY
Mán. 13. apríl kl. 18:50
LIVERPOOL–NEWCASTLE
Í opinni dagskrá á dominoshelgin.is
Ef þú sækir, 8.–13. apríl.
2.999KR.
STÓR PIZZA
af matseðli,
2 L gos og að eigin vali.
KOMINN Í BLÁTT Gunnar Nielsen leikur með
Stjörnunni í sumar. Hér er hann með þjálfara
Garðarbæjarliðsins, Rúnari Páli Sigmundssyni.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SPORT
UFC „Þetta var frábært að komast þarna inn
enda stærsta bardagakvöld ársins hjá UFC,“
segir Gunnar Nelson en hann mun berjast
við Englendinginn John Hathaway í Las
Vegas þann 11. júlí næstkomandi.
Þetta verður fyrsti bardagi Gunnars í
Bandaríkjunum og frábært auglýsinga-
tækifæri fyrir hann þar í landi enda verður
áhorf hugsanlega sögulegt enda hefur UFC
aldrei haft jafn mikið fyrir því að auglýsa
eitt bardagakvöld. Sumir segja að þetta sé
stærsta kvöld í sögu UFC.
„Þetta verður geðveikt kvöld og má vel
vera að þetta sé það stærsta frá upphafi. Ég
hafði mikinn áhuga á að komast þarna inn
og minntist á það við Dana White [forseta
UFC] fyrir löngu og hann sagði strax já. Þá
var bara spurning hvenær þetta yrði opin-
bert og gegn hverjum ég myndi berjast.“
Það verður tekið vel á því næstu vikur og
Gunnar ætlar að mæta snemma til Banda-
ríkjanna í undirbúninginn.
„Ég fer örugglega út til Vegas í byrjun
maí og verð fram yfir bardagann. Við verð-
um í einhverju húsi og með eigin æfingaað-
stöðu. Þetta er mjög fínt og gott að ná góðum
æfingabúðum fyrir bardagann,“ segir Gunn-
ar og bætir við að það verði um tíu manns í
æfingahópnum.
Mun reyna að róa Conor
Þar verða strákar sem Gunnar hefur æft
með í Dublin meðal annars. Þar á meðal er
Conor McGregor en hann er aðalnúmerið á
bardagakvöldinu í Vegas og berst um titilinn
í fjaðurvigt við Jose Aldo.
„Það er flott mál og þetta verður gaman,“
segir Gunnar en mun hann eitthvað reyna
að róa hinn æsta vélbyssukjaft frá Írlandi
niður? „Ég reyni að slaka hann eitthvað
niður. Sprauta hann með einhverju,“ segir
Gunnar léttur.
Andstæðingur Gunnars er 27 ára gamall
og með árangurinn 17-2. Hann hefur aftur
á móti lítið keppt síðustu ár vegna veikinda
en hann greindist með Crohns-sjúkdóm, eða
svæðisgarnabólgu.
Hann keppti síðast fyrir 13 mánuðum
og tapaði þá fyrir Dong Hyun Kim. Síð-
asti sigur kappans kom í lok september
árið 2012. Hathaway hefur aftur á móti náð
heilsu á ný og mun vafalítið mæta beittur í
búrið gegn Gunnari.
„Ég hef fylgst með þessum strák lengi og
hann er helvíti öflugur og verðugur and-
stæðingur. Hann hefur sigrað marga góða
menn í UFC og er aðeins með tvö töp á bak-
inu. Þetta er alvöru nagli,“ segir Gunnar en
Hathaway hefur meðal annars haft betur
gegn Rick Story sem Gunnar tapaði fyrir
á síðasta ári. Sá bardagi fór fram fyrir sex
árum.
Englendingurinn er talsvert hávaxnari en
Gunnar og með lengri faðm. Það er eitthvað
sem Gunnar þekkir vel og kemur honum
ekki úr jafnvægi.
„Þetta er alltaf voðalega svipað hjá mér.
Ég mun æfa gegn skrokkum sem eru svip-
aðir og Hathaway. Undirbúningur verð-
ur því svipaður og oft áður. Ég mun alltaf
halda minni áætlun í búrinu og bregðast
við aðstæðum hverju sinni. Ég veit hvernig
hann er og hann á ekki að geta komið mér á
óvart,“ segir Gunnar en hann býst ekki við
því að bardaginn fari mikið fram í gólfinu.
„Ég efast um að hann vilji fara í gólfið með
mér en ég mun rífa hann í jörðina um leið
og tækifæri gefst til.“
Var ekki nógu góður gegn Story
Gunnar tapaði frekar óvænt síðasta bar-
daga sínum í október á síðasta ári. Bardag-
inn, sem var gegn Rick Story, fór í fimm
lotur og tveir dómarar af þremur dæmdu
Story sigur. Telur Gunnar sig hafa eitthvað
að sanna eftir tapið í Stokkhólmi?
„Allir bardagar eru þannig. Maður fer í
hvern bardaga til þess að klára dæmið og
gera það almennilega,“ segir Gunnar en
hann telur sig hafa lært mikið af bardag-
anum gegn Story.
„Ég vil meina að almennt hafi ég einfald-
lega ekki verið nógu góður í þeim bardaga.
Ég var svolítið stífur og ekki að hreyfa mig
eins frjálst og ég er vanur að gera. Ég hef
lent í því áður en unnið og komist upp með
það. Þarna gekk það ekki og þá lærir maður
og sér hvað það er sem getur þvælst fyrir
manni,“ segir Gunnar en fyrir vikið mun
hann mæta beittari en áður í búrið í Las
Vegas. „Ég verð í mínu allra besta formi og
reynslunni ríkari.“ henry@frettabladid.is
Þetta verður geðveikt kvöld í Vegas
Gunnar Nelson er á leið í tveggja mánaða æfi ngabúðir í Las Vegas ásamt Conor McGregor og fl eiri félögum þeirra. Gunnar berst við
Englendinginn John Hathaway 11. júlí á stærsta kvöldi ársins, og jafnvel allra tíma, hjá UFC. Gunnar segir Hathaway vera alvöru nagla.
ALLTAF EITTHVAÐ AÐ SANNA Gunnar fær
frábært tækifæri til þess að sýna hæfileika
sína í Bandaríkjunum á risakvöldi UFC í júlí.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
4
1
-8
D
4
C
1
6
4
1
-8
C
1
0
1
6
4
1
-8
A
D
4
1
6
4
1
-8
9
9
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K