Fréttablaðið - 11.04.2015, Síða 32

Fréttablaðið - 11.04.2015, Síða 32
11. apríl 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 Hann segist lifa ósköp venjulegu lífi í Kabúl. Þangað kom hann fyrst árið 1989 þegar Sovét-menn voru nýfarn-ir. Hann bjó í Kabúl meðan talibanar voru við völd og þar býr hann enn, starfar á vegum Alþjóðanefndar Rauða krossins við að hjálpa særðu og limlestu fólki að koma undir sig fótunum á ný. „Það er ekkert friðvænlegra núna í Kabúl en verið hefur,“ segir Alberto Cairo, ítalskur sjúkraþjálf- ari, sem hefur hlotið margvísleg- ar viðurkenningar fyrir störf sín í Afganistan undanfarinn aldarfjórð- ung. Hann var í stuttri heimsókn hér á landi nýverið. „Það er alltaf hættulegt að vera þar. Sprengjur geta sprungið hve- nær sem er. En á hinn bóginn þá veitir merki Rauða krossins mikla vernd. Fólk ber mikla virðingu fyrir okkur og því sem við erum að gera. Það hefur alltaf verið svo.“ Hann segir talibanana þar ekki hafa verið neina undantekningu. „Þeir sýndu okkur virðingu. Þegar maður gerir gagn, þá er allt- af borin virðing fyrir því. Ef maður væri ekki að gera gagn, þá myndu þeir ekki sjá neinn tilgang í því að maður væri að flækjast þarna. Héldu kannski að maður væri njósn- ari eða eitthvað. En þeir sendu til okkar ættingja sína og nánustu fjöl- skyldu. Samfélagið í Afganistan er mjög íhaldssamt, þannig að ef talib- anarnir senda til manns eiginkonu sína eða systur, eða börnin sín, þá fer ekki á milli mála að maður hefur áunnið sér traust þeirra.“ Hann segir þetta traust sam- félagsins hafa ráðið úrslitum um að hægt hefur verið að halda úti þessu starfi allan þennan tíma, þrátt fyrir allt sem hefur gengið á þennan aldar fjórðung sem hann hefur búið í Kabúl. „Þetta var stundum kannski svo- lítið flókið. En alltaf mjög gefandi. Það sem hjálpar mér og félögum mínum að vera þarna áfram eftir svona mörg ár er að sjá fólk koma til okkar í mjög erfiðu ástandi en fara svo frá okkur gangandi.“ Samstarfið við Ísland Tilefni Íslandsheimsóknarinn- ar var að hitta bæði starfsmenn Rauða krossins hér á landi og full- trúa Össurar, fyrirtækis sem lengi hefur verið í fremstu röð við smíði gervilima. Í rúmlega tvö ár hefur Cairo nefnilega verið í samstarfi við íslenska Rauða krossinn um félags- lega endurhæfingu fyrir fórnar- lömb jarðsprengna. Rauði krossinn fjármagnar starfið, Össur útvegar gervilimi en Cairo og félagar sjá svo um að koma fólkinu aftur út í lífið. „Ég kom hingað til að kasta kveðju á fólkið og útskýra hvað við erum að gera. Svo hef ég aldrei komið til Íslands. Mig langaði til að þakka fyrir okkur með von um að þessi aðstoð og samvinna geti haldið áfram. Trúðu mér, þörfin er mikil.“ Cairo er yfirmaður endurhæf- ingarstarfsins, sem er með aðal- bækistöðvar í Kabúl en útibú í sex borgum landsins. Hann skiptir tíma sínum þannig að helming hans dvelst hann í Kabúl en hinn helming tímans ferðast hann á milli hinna stöðvanna sex. „Þetta félagslega verkefni, sem er í samstarfi við Ísland, snýst um að hjálpa fólkinu eftir að það er komið með gervilimi. Við reynum að veita því menntun, starfsþjálfun, smálán og hjálpa því að finna vinnu. Svo hvað störfin varðar þá höfum við sjálf tekið upp þá stefnu að vera með jákvæða mismunun, þannig að við ráðum engan til okkar nema hann sé fatlaður. Hjá okkur, á stöðvunum sjö, starfa meira en 700 manns, allt Afganar, og 685 þeirra eru fatlaðir. Þannig að þetta er ströng regla: Ef þú vilt vinnu þá þarftu að vera fatl- aður. Í sjálfu sér er þetta rangsnúið, því auðvitað eigum við að aðlaga fólk að samfélaginu og láta fatlaða og ófatlaða starfa saman, en á meðan staðan er þessi að enginn veitir fötl- uðum vinnu þá höfum við þá stefnu að veita eingöngu fötluðum vinnu. Þannig að þetta er okkar stríð gegn samfélaginu, gegn fordómum.“ Afganistan var tilviljun Cairo er menntaður sjúkraþjálfari en lærði reyndar upphaflega lög- fræði. „Ég kláraði próf í lögfræði heima á Ítalíu og átti að verða lögfræðing- ur, en hætti eftir að hafa starfað við það um tíma. Sjúkraþjálfun var áhugamál sem ég stundaði í frítíma mínum og hafði mjög gaman af. En þar kom að mér fannst ég þurfa að gera upp við mig hvort ég ætti að verða lögfræðingur í fullu starfi eða hvort ég ætti kannski að gera áhuga- málið að starfsvettvangi mínum. Niðurstaðan varð sú að ég fór aftur í skóla og fékk réttindi sem sjúkra- þjálfari. Starfaði sem slíkur fyrst í nokkur ár á Ítalíu, svo í Afríku og loks í Afganistan. Og þar er ég enn.“ Hann segir tilviljun hafa ráðið því að hann fór til Afganistans. „Ég var í Afríku seint á níunda áratugnum og var að svipast um eftir nýju verkefni við mannúðar- störf einhvers staðar. Svo ég sendi bréf til Rauða krossins í Genf og sagði þeim að ég væri tiltækur ef þau vildu mig. Og þau sögðu mér að það væri verkefni í Afríku og ég sagði gott og vel, var mjög ánægð- ur með það, en svo á síðustu stundu, þremur vikum fyrir brottför, þá sögðu þau mér að þetta væri ekki í Afríku heldur Afganistan, og spurðu hvort það væri í lagi mín vegna? Og ég sagði það vera í lagi mín vegna. Þannig að ég valdi þetta ekki, það gerðist bara. En ég held að þetta hafi verið góð niðurstaða.“ Gefandi starf Hann segir starfið í Afganistan vera mjög gefandi, enda þörfin gríðarleg. Starfið hafi þó tekið nokkrum breyt- ingum í tímans rás. „Framan af fengum við eingöngu til okkar fólk sem hafði skaddast í stríðsátökum. Dæmigerðir sjúkling- ar hjá okkur voru menn, konur eða börn sem höfðu lent í jarðsprengj- um. En árið 1994 ákváðum við að það væri ekki lengur hægt að aðgreina fólk með þessum hætti, þannig að þeir sem höfðu til dæmis lent í bíl- slysi fengju ekki meðferð hjá okkur. Við fáum nú á hverju ári níu þúsund nýja sjúklinga, en af þeim eru ein- ungis 1.500 fórnarlömb stríðsátaka. Hinir hafa fatlast af öðrum ástæð- um, vegna erfðagalla, meiðst í bíl- slysum, fengið slag eða sjúkdóma af ýmsu tagi. Auðvitað fáum við enn fólk með stríðsskaða. Og það er ekkert lát á því vegna þess að jarðsprengjurn- ar eru þarna enn þá. Og svo er hin hliðin, sem er forvarnastarfið. Það þarf að bólusetja fólk svo það fái ekki berkla til dæmis, en því starfi er öllu mjög ábótavant. Fólk verður fatlað vegna ýmissa sjúkdóma sem við sjáum ekki lengur hér á Íslandi og Vesturlöndum vegna forvarna- starfsins.“ Enginn hörgull er á fólki til starfa hjá Rauða krossinum í Afganistan. „Okkur hefur tekist að gera fleira en að sinna bara sjúklingum frá degi til dags, því við höfum einnig getað fjárfest í þjálfun og kennslu, þannig að nú erum við með marga sjúkraþjálfara og marga bæklunar- lækna, allt saman Afganar sem eru mjög duglegir. Þannig að við erum vel mönnuð. Auðvitað væri gott ef við hefðum fleiri stöðvar víðar um landið, en við höfum komið upp tilvísunar kerfi þannig að þar sem við erum ekki með bækistöð, þar getur fólk leitað til heilsugæslu- stöðvar, sem oftast er þá á vegum Rauða hálfmánans, og fengið tilvís- un þaðan til okkar.“ Íþróttirnar efla Nýjasti þátturinn í endurhæfingar- starfinu eru íþróttir. sem Cairo segir að hafi náð að gjörbreyta lífi fjölda fólks. „Þetta er mjög skemmtilegt og það eina sem ég sé eftir er að hafa ekki byrjað á þessu fyrr, því ég gerði mér enga grein fyrir því hvað íþrótt- ir geta verið öflugar. Við erum með fótbolta, badminton, blak og hjóla- stólakörfubolta. Og við erum með lið úti um allt, bæði konur og karla í sex borgum landsins. Ég hef vissu- lega séð miklar breytingar verða á fólki í endurhæfingarstarfinu okkar, en það er alveg ótrúlegt hvað íþrótt- irnar hafa mikil áhrif. Þetta breytir bæði hugsunarhætti og líferni fólks, hvernig það á samskipti við aðra. Þetta gefur fólki bæði sjálfstraust og sjálfsvirðingu. Svo fæ ég svo mikið út úr þessu sjálfur. Ég er að þjálfa og þarf að hlaupa mikið. Þetta hjálpar mér að halda mér í formi.“ Cairo býr einn í íbúð inni á afgirtri húsalóð í Kabúl. Það eru verðir við hliðið, en þeir eru óvopnaðir. „Ég lifi bara ósköp venjulegu lífi,“ segir hann. „Ég hef mikið að gera. Á hverjum degi hitti ég sjúklingana. Þeir eru fjölskyldan mín.“ Guðsteinn Bjarnason gudsteinn@frettabladid.is 1992 Borgarastyrjöld hefst í landinu eftir að Mohamm- ed Nadsjíbúllah forseta er steypt af stóli. 2001 Bandaríkjaher gerir, ásamt fleiri ríkjum, inn- rás og steypir talibana- stjórninni. 2001 Alþjóðleg ráðstefna um Afganistan, haldin í Bonn í Þýskalandi, samþykkir að Hamid Karzai verði forseti til bráðabirgða 2003 Ný stjórnarskrá samþykkt. Afganistan verður íslamskt lýðveldi 1989 Sovéski herinn fer frá Afgan- istan eftir tíu ára hernám. Komm- únistastjórn nýtur áfram stuðnings Sovétmanna. 1996 Talibanar ná völdum í höfuð- borginni Kabúl og hafa þá stærstan hluta landsins á sínu valdi 2004 Hamid Karzai kosinn forseti 2014 Ashraf Ghani kosinn forseti 1989 1994 1999 2004 2009 2014 STJÓRNARFARIÐ Í AFGANISTAN UNDANFARINN ALDARFJÓRÐUNG Í návígi við sprengjurnar Ítalski sjúkraliðinn Alberto Cairo hefur í aldarfjórðung starfað í Kabúl þar sem hann hjálpar særðu og limlestu fólki að komast út í lífið aftur. Afganar bera virðingu fyrir merki Rauða krossins, sem tryggir honum öryggi þótt sprengjurnar springi. ALBERTO CAIRO Hann kom í stutta heimsókn til Íslands nýverið til að ræða við fulltrúa Össurar og starfsfólk Rauða krossins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ef talib- anar senda til manns eigin- konu sína eða systur, eða börnin sín, þá fer ekki á milli mála að maður hefur áunnið sér traust þeirra. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 1 1 2 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 4 0 -2 E B C 1 6 4 0 -2 D 8 0 1 6 4 0 -2 C 4 4 1 6 4 0 -2 B 0 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 1 1 2 s _ 1 0 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.