Fréttablaðið - 11.04.2015, Blaðsíða 92
★★★ ★★
Carroll: Berserkur
Tjarnarbíó
SÝNING FER AÐ MESTU FRAM Á ÍSLENSKU.
LEIKSTJÓRN: Bergdís Júlía Jóhannsdóttir
LEIKARAR: Anna Korolainen, Henrietta Kristensen, Sólveig
Eva, Bergdís Júlía Jóhannsdóttir, Daníel Þór Bjarnason, Ástþór
Ágústsson, Hrefna Lind Lárusdóttir, Agnes Wild, Hugrún Margrét
Óladóttir
LEIÐSÖGUMENN: Almar Atlason, Arnoddur Magnús Danks og
Auður Ingólfsdóttir
TÓNLIST: Pekka Koivisto, Jófríður Ákadóttir og Margrét
Arnardóttir
SVIÐSHÖNNUN: Hallveig Kristín Eiríksdóttir
BÚNINGAHÖNNUN: Lúcía Sigrún og Áslaug Sigurðardóttir
LJÓSAHÖNNUN: Juliette Louste
Í Tjarnarbíó hafa furðuverur úr hugarheimi Lewis
Carroll hreiðrað um sig í nær öllum skúmaskotum. Þar
sýnir hinn fjölþjóðlegi leikhópur Spindrift verkið Carr-
oll: Berserkur, unnið upp úr verunum frá Undralandi.
Þrátt fyrir að leikárið sé senn á enda er ennþá af nægu
að taka og spennandi að sjá hóp af ungu sviðslistafólki
takast á við klassík af þessu tagi.
Spindrift þýðist yfir á íslensku sem sjávarúði eða
sjávarmistur og því kannski við hæfi að persónurnar
kunnuglegu taka við áhorfendum með niðandi sjóinn
í bakgrunni. Áhorfendur fara þannig í hlutverk hinn-
ar týndu Lísu strax við innkomu en þrír leiðsögumenn
leiða þrjá mismunandi hópa um undirveröld Undra-
lands, en mætast líka reglulega á ferðalagi sínu.
Vandamálið við slíkan gjörning er erfiðleikinn við
að mynda sterk tengsl við persónurnar en sýningin er
frekar eins og mörg myndbrot af ástandi eða myndræn
framsetning á súrrealískum veruleika. Kjarni sýning-
arinnar virðist snúast um sjálfið í krísu og leitina að
tilgangi í óskiljanlegum veruleika. Sumar senur virt-
ust vera uppfyllingarefni frekar en sjálfstæðar eining-
ar eða hluti af heildinni. Bergdís Júlía Jóhannsdóttir
stýrir þessum stóra hópi ágætlega en hefði mátt hugsa
betur heildarupplifunina og tengingarnar á milli ein-
stakra atriða.
Aftur á móti standa Glottsýslukötturinn og Hvíta
kanínan upp úr en þarna eru virkilega sniðug atriði
á ferð sem eru vel skrifuð, útfærð og flæða vel inn í
heildarmyndina. Glottsýslukötturinn, í fínum leik Ást-
þórs Ágústssonar, birtist sem eins konar smeðjulegur
spjallþáttarstjóri sem telur að allir geti fundið sína leið
í lífinu með hjálp taflborðsins. Hvíta kanínan, leikin
af Hrefnu Lind Lárusdóttur, er tímabundin og tauga-
strekkt í endalausri leit að augnablikinu sem líkt og
moldarflögur renna henni alltaf úr greipum.
Bæði vigt og tengingu á milli atriða skorti í sýning-
unni og uppbrotin eru ekki nægilega mörg þannig að
senurnar urðu örlítið fyrirsjáanlegar þegar líða tók á.
Afmælisveisla Hjartadrottningarinnar hefði til dæmis
mátt fara alveg úr böndunum en í staðinn var þetta
atriði notað sem tengiliður á milli atriða og var í lengra
lagi.
Búningahönnunin er virkilega vel gerð og sviðshönn-
unin sömuleiðis. Þrátt fyrir að aðalsviðið sé nær tómt
fyrir utan stóran skjá og lítið leikrými þar bak við nær
Hallveig Kristín að skapa lifandi örheima í hverju rými
sem ríma á frumlegan hátt við persónurnar sem þar
dvelja. Búningateymið Lúcía Sigrún og Áslaug er hug-
myndaríkt og sjá má glitta í falleg smáatriði í hönnun
þeirra. Tónlistin er bæði afspiluð og lifandi en hefði
kannski mátt vera fjölbreyttari.
Það er gaman að sjá ný andlit í sviðslistaflórunni og
þrátt fyrir ýmsa galla á sýningunni í heild er vert fyrir
leikhúsgesti að nýta tækifærið og rannsaka hvað leynist
í innviðum Tjarnarbíós í fylgd furðuvera Lewis Carroll.
Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Einstaka senur heppnast með ágætum og
hönnunin er fyrsta flokks en tilraunin er ekki nægilega
markviss.
Undirheimar Undralands
SPINDRIFT Ungur og spennandi leikhópur stendur að sýningunni Carroll: Berserkur í Tjarnarbíó.
„Ótrúlega áhugaverð … svakalega sterk
og áhrifamikil … Héðinn er fantagóður
penni, dásamlegur texti.“
FRIÐRIKA BENÓNÝSDÓTTIR / KILJAN
„Mjög áhrifarík … maður er vanari
að lesa svona í skáldskap … það er nánast óþægilegt
að lesa hana á köflum …“
ÞORGEIR TRYGGVASON / KILJAN
„Héðinn er gáfaður maður og það er mikið
innsæi í þessari bók.“
EGILL HELGASON / KILJAN
„Bók sem sannarlega hristir upp í
stöðluðum hugmyndum.“
FRIÐRIKA BENÓNÝSDÓTTIR / STUNDIN
HÉÐINS UNNSTEINSSONAR
um baráttu hans við kerfið
og sjálfan sig.
v æ g ð a r l a u s s a g a
a f h a m s k i p t u m
Eyþór Franzson Wechner spilar á
orgeltónleikum í Langholtskirkju
á morgun, 12. apríl, klukkan 17
og leikur verk eftir J.S. Bach,
Dietrich Buxtehude, Louis Coup-
erin, John Stanley og Vincent
Lübeck.
Eyþór hóf píanónám sjö ára
gamall en skipti yfir á orgel á
fimmtánda aldursári. Kennarar
hans voru Úlrik Ólason og Björn
Steinar Sólbergsson við Tónskóla
Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla
Íslands. Eftir tvö ár í Listahá-
skólanum hélt hann til Leipzig í
Þýskalandi og lauk þaðan meist-
aragráðu á síðasta ári. Hann
hefur verið organisti í Fella- og
Hólakirkju í vetur.
Orgeltónar
ORGANISTI Tónleikarnir með Eyþóri
eru á vegum Listafélags Langholtskirkju.
MENNING
11. apríl 2015 LAUGARDAGUR
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
4
1
-3
9
5
C
1
6
4
1
-3
8
2
0
1
6
4
1
-3
6
E
4
1
6
4
1
-3
5
A
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K