Fréttablaðið - 11.04.2015, Page 102
11. apríl 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 62
SERIAL (BAD) WEDDINGS
MYNDIN SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM
SÝND ÁFRAM VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA
Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI AKUREYRI!
SÝNINGARTÍMAR Á
MIDI.IS OG LAUGARASBIO.IS
Sýnd með
íslensku tali
í 2D og 3D
-K.M.Ó., FBL
- Empire
-H.S., MBL
.bio siSAM
CHICAGO SUN-TIMES
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
kem hingað en mig hefur lengi
langað til þess að koma. Það er
frábært að sýna myndina hér og
ég veit að það er mikill stuðning-
ur við Ed hér á Íslandi, svo það
er frábært,“ segir Laura Poitras,
leikstjóri heimildarmyndarinn-
ar Citizenfour sem fjallar um
Edward Snowden og opinberun
gagna Þjóðaröryggisstofnunar
Bandaríkjanna (NSA) árið 2013.
Hún er stödd hér vegna frumsýn-
ingar myndarinnar hér á landi
á kvikmyndahátíðinni Shorts &
Docs.
Citizenfour hlaut Óskarsverð-
laun sem besta heimildarmyndin
í febrúar og segir Poitras verð-
launin hafa komið sér talsvert
á óvart. „Það kom mjög á óvart,
þegar við vorum í Hong Kong
voru það ekki verðlaunin sem
við höfðum áhyggjur af, það voru
meira aðkallandi hlutir,“ segir
hún alvarleg en stærstur hluti
myndarinnar gerist í borginni og
fylgir hún Snowden eftir frá því
fyrstu gögnin voru birt.
Snowden er sem stendur með
pólitískt hæli í Rússlandi og segir
Poitras þau halda sambandi.
Poitras hefur alltaf verið með-
vituð um það að nota samskipta-
tækni og internetið á ábyrgan
hátt, en hún segist hafa aukið við
meðvitund sína og varúðarráð-
stafanir eftir að hafa komist í
samband við Snowden. Einnig hafi
hún verið sett á sérstakan eftir-
litslista í kjölfar útgáfu myndar-
innar sem hafi meðal annars gert
ferðalög erfið.
Þrátt fyrir það sem flestir gætu
haldið var það að gerast kvik-
myndagerðarkona og leikstjóri
sem tekur gríðarlega áhættu
við það að færa almenum borg-
urum sannleikann ekki það sem
Pointras stefndi alltaf að því hún
starfaði á öðrum vettvangi í tals-
verðan tíma áður en hún lagði
kvikmyndagerð fyrir sig.
„Ég var kokkur í tíu ár og tók
námskeið í kvikmyndagerð með-
fram og varð virkilega heilluð af
því,“ segir hún.
„Þegar ég byrjaði að gera
myndir gerði ég mjög abstrakt
■ Citizenfour 2014. Fékk meðal
annars Óskarsverðlaun og
BAFTA-verðlaun sem besta
heimildarmynd.
■ The Oath 2010.
■ Death of a Prisoner, stutt-
mynd 2014.
■ Flag Wars, 2003.
■ P.O.V., sjónvarpsseríur 2011.
Tilnefning til Emmy-verðlauna.
■ My Country, My Country 2008.
Helstu verk
og verðlaun
ÓSKARSVERÐLAUNAHAFI Laura Poitras er stödd hér á landi í tengslum við sýningu á mynd-
inni Citizenfour. MYND/INGIR.INGASON
ÓSKARS-
VERÐLAUN-
IN KOMU
TALS VERT
Á ÓVART
Heimildarmyndin Citizenfour sem fj allar um
Edward Snowden verður sýnd í fyrsta sinn
hér á landi í kvöld. Myndin vann til Óskars-
verðlauna í febrúar og er Laura Poitras, leik-
stjóri hennar, stödd hér á landi.
Gyða Lóa
Ólafsdóttir
gydaloa@frettabladid.is
myndir. Ég er feimin og ég sá
aldrei fyrir mér að ég myndi fara
inn í líf fólks og segja frá því á
þennan máta,“ segir hún afslöpp-
uð en næsta verkefni hennar verð-
ur sýning í Whitney Museum of
American Art og segir hún efni
sýningarinnar tengt því sem
fjallað er um í Citizenfour, þótt
uppsetningin sé á annan máta.
Citizenfour er sýnd klukkan
átta í kvöld í Bíó Paradís. Eftir
sýningu myndarinnar munu
Poitras og Kristinn Hrafnsson
svara spurningum áhorfenda auk
þess sem Poitras mun vera með
ókeypis masterclass í Bíó Para-
dís sem hefst klukkan þrjú í dag.
gydaloa@frettabladid.is
Það kom mjög á
óvart, þegar við vorum í
Hong Kong voru það ekki
verðlaunin sem við höfð-
um áhyggjur af, það voru
meira aðkallandi hlutir,
Save the Children á Íslandi
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
4
1
-1
B
B
C
1
6
4
1
-1
A
8
0
1
6
4
1
-1
9
4
4
1
6
4
1
-1
8
0
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
1
1
2
s
_
1
0
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K