Morgunblaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Stjórn Árvakurs ákvað á fundi sín-
um í gær að ráða Harald Johann-
essen, ritstjóra Morgunblaðsins, í
starf framkvæmdastjóra Árvakurs
frá og með næstu áramótum, en þá
mun Óskar Magnússon, útgefandi
blaðsins, láta af störfum. Haraldur
mun gegna starfinu samhliða rit-
stjórastarfi sínu, og verða hann og
Davíð Oddsson því áfram ritstjórar,
en þeir hófu störf samtímis fyrir
rúmum fimm árum.
Ásamt þessum breytingum verð-
ur Árvakur hf. aftur útgefandi
Morgunblaðsins og mbl.is líkt og
verið hefur lengst af í sögu félags-
ins og munu framkvæmdastjóri og
ritstjórar heyra beint undir stjórn
félagsins. Staða útgefanda, sem
verið hefur í skipuriti Árvakurs frá
árinu 2009, hefur verið lögð niður.
Haraldur er hagfræðingur að
mennt og hefur langa reynslu af
starfi á fjölmiðlum, auk ýmissa ann-
arra starfa. Hann hefur starfað sem
blaðamaður á viðskiptablaði Morg-
unblaðsins og var ritstjóri Við-
skiptablaðsins 2007-2009. 2008-2009
gegndi hann starfi framkvæmda-
stjóra útgáfufélags Viðskiptablaðs-
ins samhliða starfi ritstjóra.
Sigurbjörn Magnússon, stjórn-
arformaður Árvakurs, sagði um
ráðningu Haraldar í starf fram-
kvæmdastjóra og breytingar á
skipulagi yfirstjórnar félagsins að
stjórn félagsins bæri fullt traust til
Haraldar og vænti mikils af honum
nú þegar hann kæmi bæði að
rekstri og ritstjórn. Auk þess teldi
stjórnin að með ráðningunni muni
nást fram ákveðin hagræðing.
Vill viðhalda traustum rekstri
Haraldur segir að markmið sitt í
nýju starfi verði að tryggja og við-
halda traustum rekstri Árvakurs og
skjóta enn styrkari stoðum undir
útgáfuna. „Árvakur mun skoða á
næstunni hvaða nýjunga er þörf til
að ná því markmiði, auk þess að
efla enn frekar þá starfsemi sem fé-
lagið hefur nú þegar með höndum.“
Haraldur segir að fjölmiðlar um
allan heim hafi þurft að bregðast
við breyttu umhverfi á markaði,
ekki bara blöð og net heldur einnig
ljósvakamiðlar. Haraldur segir að
miðlar Árvakurs hafi verið fremstir
í flokki þegar kemur að tækni-
framförum. „Morgunblaðið hefur til
dæmis alla tíð staðið fremst hvað
prentun snertir, það var einnig
frumkvöðull í fréttaþjónustu á net-
inu, og það verður áfram mikilvægt
að tryggja að miðlar Árvakurs
verði í fararbroddi í tækni og í
þjónustu við neytendur,“ segir Har-
aldur.
Haraldur segir að hin nýja staða
eigi ekki að breyta neinu um störf
sín sem ritstjóri. „Ég hef sem rit-
stjóri tekið þátt í rekstri ritstjórn-
arinnar, sem er fjölmennasta deild
fyrirtækisins, auk þess að sitja í
framkvæmdastjórn þess,“ segir
Haraldur, og bendir auk þess á að
hann hafi áður gegnt svipuðu hlut-
verki á Viðskiptablaðinu, þó að
reksturinn þar hafi verið smærri í
sniðum. „Þar var ég um tíma með
þessa tvo hatta, og það gekk ágæt-
lega, og annað starfið truflaði ekki
hitt og mun ekki gera það nú.“
Haraldur segir að ekki standi til að
gera frekari breytingar á yfirstjórn
eða skipulagi félagsins.
Haraldur ráðinn fram-
kvæmdastjóri Árvakurs
Mun gegna stöðunni samhliða ritstjórastarfinu
Sigurbjörn
Magnússon
Haraldur
Johannessen
Komdu inn
úr kuldanum
www.n1.is facebook.com/enneinn
Hluti af öruggri vetrarumferð
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Norska krónan hefur lækkað mikið á
síðustu vikum og var miðgengi henn-
ar aðeins 16,4 íslenskar krónur í
gær. Til samanburðar var miðgengi
hennar 23,4 íslenskar krónur 30. jan-
úar í fyrra, eða 7 kr. hærra en nú.
Skýringin á falli norskrar krónu er
verðhrun á heimsmarkaðsverði olíu.
Samkvæmt norsku hagstofunni
voru meðalárslaun norskra heimila
eftir skatta 446.200 norskar krónur
2012. Það samsvaraði 10,45 milljón-
um íslenskra kr. í janúar í fyrra en
aðeins tæplega 7,32 milljónum í gær.
Það er 30% lækkun í íslenskum
krónum. Annað dæmi er að meðal-
árslaun einhleypra sem eru 45 ára og
yngri í Noregi eftir skatta hafa á
sama tímabili lækkað úr 5,98 millj-
samanburður til að verulega hafi
dregið saman með útborguðum laun-
um í löndunum tveimur.
Spurð hvort mikil lækkun á gengi
norsku krónunnar að undanförnu
muni hafa áhrif á ásókn Íslendinga í
störf í Noregi segist Þóra Ágústs-
dóttir, verkefnisstjóri hjá Eures á
Íslandi, samstarfsvettvangi opin-
berra vinnumiðlana á EES-svæðinu,
telja að slík áhrif muni koma fram.
„Ábyggilega minni eftirspurn“
„Mér þykir líklegt að það hafi ein-
hver áhrif á eftirspurnina og ég tala
nú ekki um framboðið á störfum í
Noregi. Ef norska krónan er að
lækka þá eru væntanlega að fara í
hönd efnahagserfiðleikar hjá Norð-
mönnum. Það verður því ábyggilega
minni eftirspurn eftir Íslendingum,
sem og öðrum, og minna framboð á
störfum í Noregi,“ segir Þóra sem
telur þessa þróun munu hafa áhrif á
fjölda norskra starfskynninga hér.
Margir Íslendingar hafa freistað
gæfunnar í Noregi á síðustu árum.
Samkvæmt Hagstofu Íslands
fluttu 4.047 fleiri íslenskir ríkisborg-
arar til Noregs en frá Noregi til Ís-
lands á árunum 2009-2013.
Norsk króna
er í frjálsu falli
Kostar 7 kr. minna en í janúar 2013
Eures býst við minna framboði starfa
ónum íslenskra króna niður í 4,19
milljónir kr., eða í 349 þús. á mánuði.
Til samanburðar voru regluleg heild-
arlaun á Íslandi 2012 að meðaltali
488 þús. kr. á mánuði fyrir skatta og
526 þús. í fyrra. Bendir þessi lauslegi
Norska krónan hrapar
Þróunin á síðari helmingi ársins*
Dagsetning Miðgengi
16.6. 2014
16.7. 2014
15.8. 2014
16.9. 2014
16.10. 2014
17.11. 2014
16.12. 2014
19,039
18,46
18,802
18,535
18,115
18,314
16,402
*Heimild: Seðlabanki Íslands
Ljósmynd/Statoil/Øyvind Hagen
Í ólgusjó Borpallurinn Sleipnir A.
Betur fór en á horfðist þegar upp kom leki í Silfur-
bergssal Hörpu í fyrrinótt. Að sögn Halldórs Guð-
mundssonar, forstjóra Hörpu, óttuðust menn um raf-
lagnir og dýr raftæki í salnum en þau sluppu. „Það var
ekki álitlegt þegar maður kom þarna í nótt. Það rigndi
hreinlega úr loftinu,“ segir Halldór. vidar@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Eins og rigning í Silfurbergi
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Samninganefnd lækna lagði fram
gögn sem ætlað er að vera liður í
lausn á launadeilu lækna við samn-
inganefnd ríkisins á fundi hjá rík-
issáttasemjara í gær. Samninga-
nefnd ríkisins mun fara yfir gögnin
í dag en áætlað er að samninga-
nefndirnar komi saman að nýju á
fimmtudagsmorgun klukkan 10.
„Okkar menn lögðu fram efni sem
samningamenn ríkisins eru að
skoða. Þetta er ekki heildstætt til-
boð, heldur er þetta minna í snið-
um, en þetta er hugsað sem hluti af
lausn,“ segir Þorbjörn Jónsson, for-
maður Læknafélagsins. Hann segir
að fundurinn hafi verið gagnlegur
og deilir sýn Kristjáns Þórs Júl-
íussonar, heilbrigðisráðherra, um
að deilan sé ekki í hnút. „Það er
fundað og því augljóslega um eitt-
hvað að ræða,“ segir hann.
Ekki fylgt launaþróun
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra sagði í ræðu á Alþingi í fyrra-
dag að meðallaun sérfræðilækna
væru í heild 1.100 þúsund krónur
og yfirlækna 1.350 þúsund krónur.
Hann kvaðst þó gera sér grein fyrir
því að vandamálið sneri að sam-
setningu vinnunnar og krafa lækna
um að fá hærra hlutfall launa greitt
á dagvinnutíma væri skiljanleg.
Í grein Reynis Arngrímssonar,
varaformanns Læknafélags Reykja-
víkur, í Morgunblaðinu í dag leggur
hann fram gögn sem sýna sam-
anburð á launaþróun opinberra
starfsmanna og lækna frá mars
2007 til júní 2014. Sé mið tekið af
þeim hafa laun lækna ekki haldið í
við almenna launaþróun. „Til að ná
meðallaunum lækna sem fjármála-
ráðherra hefur kynnt Alþingi en lét
líða hjá að skýra frá þarf slíkur sér-
fræðilæknir að vera allt að 10 daga
á vakt eða þriðja hvern dag mán-
aðarins. Dæmi um slíkt vaktafyr-
irkomulag eru tvær helgar og fjór-
ar aðrar nætur í mánuði. Til
viðbótar hefðbundinni dagvinnu frá
átta til fjögur. Full dagvinna auk
nætur- og helgarvinnu […] Reikn-
ingsdæmið er einfalt. Það þarf gríð-
arlega mikla vinnu til að ná slíkum
meðallaunum,“ segir m.a. í grein
Reynis. »26
Gögn hugsuð
sem liður í lausn
Samninganefnd ríkisins fer yfir útspil
lækna Há meðallaun fyrir mikla vinnu
Bjarni
Benediktsson
Þorbjörn
Jónsson