Morgunblaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
Elsku afi. Það er
einhvern veginn erf-
itt að vera sorg-
mæddur og hugsa
um þig á sama tíma
sem alltaf varst svo glaður og já-
kvæður.
Ég er ofboðslega þakklátur fyr-
ir allar þær góðu stundir sem við
áttum saman. Sérstaklega rennur
hugurinn til góðra stunda í bíl-
skúrnum í Hrauntúninu þar sem
allt var mögulegt. Þá skipti engu
máli hvað okkur datt í hug, það
var flestallt framkvæmanlegt og
breytti engu hvort smíða ætti
töfrastafi eða langdræg skotvopn
og ekki til það bilaða leikfang sem
ekki fékk bót sinna meina í skúrn-
um. Allra skemmtilegast var þó
þegar þú veiddir músina sem þú
hélst síðan í búri í skúrnum
leyndri fyrir ömmu í lengri tíma,
eða þar til Daði bróðir fór til
ömmu og bað um „ostbita fyrir
músina í skúrnum“, þá var gam-
anið búið. Það þarf ekki að taka
það fram að bæði gildran og búrið
voru að sjálfsögðu smíðuð í bíl-
skúrnum góða. Það er auðvitað
margra annarra góðra stunda að
minnast, svo sem á Bárunni, úti í
Brandi, uppi á brennustæði, í
Færeyjum, úti á golfvelli eða bara
á bryggjurúnti með bláan Opal.
Fyrir allar þessar góðu stundir og
margar fleiri er ég ofboðslega
þakklátur.
Það hefur alltaf verið skemmti-
legt að heimsækja ykkur ömmu,
hér áður fyrr ekki síst fyrir vegleg
veisluborð en amma á nú meiri
heiður af þeim. Skemmtilegast
hefur mér þótt það í seinni tíð, eft-
ir að ég eignaðist börn sjálfur, að
sjá hvað lifnaði yfir bæði þér og
börnunum þegar þið hittust og
vart mátti á milli sjá hvor hafði
meira gaman af fíflalátunum í
ykkur. Afbakaðir söngtextar og
furðulegt barnamál hafa verið
fastir liðir í þessum fagnaðarfund-
um sem enda svo allir á sömu orð-
unum „komdu fljótt aftur“.
Mér hefur alltaf þótt það leið-
inlegt að hafa aldrei þekkt ömmur
og afa foreldra minna. Þetta fólk
sem þau tala svo fallega um en ég
þekki ekki neitt. Þess vegna er ég
mjög þakklátur fyrir að Aron fékk
að kynnast þér og mun alltaf eiga
fallegar og skemmtilegar minn-
ingar um þig, alveg eins og ég og
aðrir sem voru svo lánsamir að fá
að kynnast þér.
Sindri Ólafsson.
Elsku Einar afi. Ég á agalega
bágt með að trúa því að þú sért
ekki lengur á meðal okkar og
hryggir það mig mikið að hugsa til
þess að ég fái aldrei aftur að hitta
þig. Alveg frá því að ég man eftir
mér varstu alltaf svo yndislegur,
lífsglaður og hjálpsamur. Það var
alltaf ljúft að hugsa til þess að ef
mig vantaði einhverja hjálp, ein-
hvern til að spjalla við eða bara
horfa á vikugamlan fótboltaleik,
þá gat ég alltaf leitað upp á
Hrauntún, síðar Smáragötu, og
fundið þig í bílskúrnum að brasa
eða inni í góðu yfirlæti hjá ömmu.
Þó svo að þú sért farinn frá
okkur þá munu allar þessar stór-
kostlegu minningar lifa með okk-
ur að eilífu. Allir skutluskallarnir,
lakkrísbíltúrarnir og öll þau skipti
sem ég hringdi í ykkur ömmu,
annaðhvort með fáránlegar hug-
myndir sem mig vantaði hjálp við
eða þegar ég fór í fýlu og ákvað að
strjúka að heiman. Ef ég komst
lengra en út að horni þá endaði ég
oftar en ekki í köku og mjólk hjá
ykkur hjúunum.
Ég mun ávallt vera þakklátur
fyrir það að Hrafntinna hafi fengið
að eyða tíma með langafa sínum
sem er í kláru uppáhaldi en alltaf
Einar Ólafsson
✝ Einar Ólafssonfæddist 23. des-
ember 1933. Hann
lést 30. nóvember
2014. Útför Einars
fór fram 13. desem-
ber 2014.
þegar hún sá þig þá
titraði hún öll af
gleði og skreið/hljóp
í fangið til þín.
Margfrægir barna-
slagarar eins og
„gúrri, gúrri“, „vei,
vei, vei“, „áfram
ÍBV“ og „ðá, ðá“
ásamt óteljandi öðr-
um munu lifa í huga
okkar allra um
ókomna tíð. Ég mun
sjá til þess að Hrafntinna viti hver
Einar langafi hennar var og hvaða
mann hann hafði að geyma.
„Hvað segirðu, nafni?“ er setn-
ing sem ég hef heyrt frá blautu
barnsbeini. Ég hef alltaf verið svo
innilega stoltur af því að heita
sama nafni og afi minn, því þessi
afi minn er enginn venjulegur
maður heldur ein af mínum helstu
fyrirmyndum og einhver besta sál
sem fyrirfinnst. Það er þess vegna
sem ég skrifa þetta með kökkinn í
hálsinum og berst við að halda aft-
ur af tárunum á sama tíma og ég
brosi upp til þín og rifja upp allar
þær skemmtilegu stundir sem við
áttum saman.
Ég elska þig, elsku afi minn.
Takk fyrir allt saman. Þinn nafni,
Einar Kristinn Kárason.
Með hlýju frá hjartans rótum
og miklum söknuði kveðjum við
vin okkar og frænda, Einar á Kap-
inni. Einar Ólafsson, skipstjóri og
útvegsbóndi, var höfðingi í öllu
sem hann kom nálægt, hugsaði
stórt og af miklum metnaði og
samferðamenn hans nutu þess í
starfi og leik.
Það var alltaf skemmtilegt, allt-
af gaman að hitta Einar og gest-
risni hans og Ágústu konu hans
ljómaði ávallt af hlýju, gleði og
höfðingsskap. Það fór ekkert á
milli mála að við fundum alltaf
hvað við vorum velkomin og alltaf
var tekið vel á móti okkur. Húm-
orinn var ekki langt undan og ein-
hvern veginn var aldrei farið í um-
ræður án þess að þær enduðu með
einhverjum hlátrasköllum og vit-
leysu.
Nú ert þú síðastur farinn af þín-
um stóra og sterka systkinahópi
og þín verður sárt saknað eins og
allra hinna. Þú varst heljarmenni,
frábær, yndislegur, heiðarlegur,
góður og gerðir heiminn betri.
Takk fyrir okkur, takk fyrir allt
og takk fyrir að hafa verið ná-
kvæmlega eins og þú varst.
Við sendum Ágústu, börnum,
tengdabörnum og barnabörnum
kveðju með von um að Guð verði
með ykkur og verndi.
Bjarki Guðna og fjölskylda.
Hann móðurbróðir minn, Einsi,
Einar Ólafsson skipstjóri, hefur
yfirgefið þessa jarðvist. Dánartil-
kynningin er ein af þeim stundum
sem munu aldrei gleymast. Guð
virðist standa heiðursvörð og þótt
andartakið sé dánarfregn nákom-
ins ættingja örlar á létti með sorg-
inni. Stálhörð harka var ómæld ef
á þurfti að halda og henni beitti
Einar ekki síst gagnvart sjálfum
sér í óbilgjörnu kvalastríði sjúk-
dómsins fram til loka. Ekki tjáði
að spyrja hann hvernig hann hefði
það? Einatt var svarið; „gott“,
jafnvel þó svo útlitið væri allt ann-
að en gott. En sigur hefur unnist.
Sá sem spyr hvort maður hafi beð-
ið bænirnar sínar, en það gerði
Einsi, er trúaður. Svo mikinn þátt
átti hann í lífinu að alls ekki er of-
sögum sagt að hann hafi verið fyr-
irmynd, fóstri, þótt lærisveinninn
hafi ekki alltaf fylgt námsefninu
sem kennarinn lagði fyrir nógu vel
eftir.
Sjómenn koma og fara, góðir
sjómenn og afburðagóðir sjómenn
líka. Einar tilheyrði seinni hópn-
um. Hann byrjaði ungur, fyrst
sem háseti en fljótlega valdist
hann til ábyrgðarstarfa á sjónum.
Að vera valinn 14 ára gamall til að
gerast háseti hjá slíkum snillingi
er að ekki sé meira sagt upphefð í
lífi unglings. Má segja að þá hafi
verið mótandi skref stigið. Einar
gerðist útgerðarmaður í félagi við
Ágúst Guðmundsson, ættaðan af
Ströndunum, tiltölulega ungur.
Kap II VE 4 var skipið fyrst. 100
tonna austurþýskt. Seinna stækk-
uðu þeir við sig og stundaðar voru
mest loðnuveiðar. Fiskað var frek-
ar af lagni en hörku og aflabrögðin
voru góð. Hann átti til að færa sig
um set á miðunum, stundum um
tugi mílna, eða hundruð, úr góðu
fiskiríi í enn betra. Kom fyrir að
menn undruðust hvað væri verið
að færa sig úr svo góðu. Það þurfti
örugglega kjark til og óbilandi
innsæi. En niðurstaðan var ávallt
að enn betra fiskirí beið okkar.
Spurður undir fjögur augu hvað
réði þessum einhliða ákvörðunum
var svarið: „Ég er ekki klár á því,
ég efaðist sjálfur en gerði það
samt.“ Það einkennir snillinga að
geta ekki útskýrt gerðir sínar.
Einar var einn af sex systkina
hópi, fimm bræður og ein systir.
Þau fæddust flest inn í erfið ár
kreppunnar, um þriðja áratug síð-
ustu aldar. Einar var sonur Ólafs
Ingileifssonar, útgerðarmanns og
skipstjóra í Eyjum, sem ættaður
var frá Höfðabrekku, Vík í Mýrdal
og Guðfinnu Jónsdóttur frá Ólafs-
húsum í Vestmannaeyjum. Systk-
in Einars voru: Sigurgeir (Siggi
Vídó) skipstjóri, Eggert vélstjóri,
Þórarinn sem dó innan eins árs,
Guðni skipstjóri og Jóna Guðrún.
Þau eru nú öll látin. Það sem ein-
kenndi Einar til hugar og handar
var lagni en veiðimennska var
honum í blóð borin. Hann var mik-
ill lundaveiðimaður sem og fiski-
maður, það voru kjörkostir á hans
uppvaxtarárum í Eyjum. Að eiga
hann að sem stoð og styttu al-
mennt í dagsins amstri var ómet-
anlegt, sterkur og traust góð-
menni. Ungur giftist hann Ágústu
Ágústsdóttur frá Aðalbóli í Eyj-
um. Þau eignuðust fjögur fyrir-
myndarbörn, Ólaf skipstjóra,
Agnesi endurskoðanda, Viðar
málara og Hjalta stýrimann og
skipstjóra. Ágústa og Einar voru
alltaf sem eitt, samhent og falleg
hjón til fyrirmyndar. Tregi og
söknuður hvílir yfir en tími gæfu-
manns er kominn.
Fyrir sérstaka tryggð og hug-
ulsemi í gegnum tíðina friður guðs
þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Innilegustu samúðarkveðjur
fyrir hönd okkar systkina,
Gunnar Marel Eggertsson.
Afburðamaður, beinskeyttur
og sanngjarn í senn, yfirvegaður
með stóíska ró sunnanblæsins,
húmoristi af Guðs náð, glæsi-
menni og athafnamaður sem alltaf
voru hlunnindi að hitta.
Einar á Kapinni sigldi særok-
inn ef svo bar undir af öryggi,
reynslu og verkviti. Ég man eftir
því sem peyi þegar maður átti
nánast heima hjá bryggjunum og
fylgdist með bátunum koma til
hafnar oft í misjöfnu. Við þekktum
bátana á mastursljósunum og
fleiru, en Einar var mjög ná-
kvæmur á beygjunni fyrir Kletts-
nefið. Hann fór mjög nálægt eins
og hann væri að renna sér fyrir
keilu í skíðabrekku.
Einar var aflakló og mjög far-
sæll. Sjarmi hans var undarlegt
rólyndi á harðsóttum leikvelli.
Hann haggaðist aldrei frekar en
Heimaklettur þótt hvini í rá og
reiða, bergi og brimi. Það fylgdi
honum alltaf þetta þægilega við-
mót, hlýja og nærgætni og gam-
ansemin var ávallt til staðar í aug-
um og orðum. Systkinin öll voru
mörkuð þeim sterka stofni sem að
þeim stóð, kynngimagnað fólk
sem hefur skilað sér í ríkum mæli
til afkomendanna. Góð bankainn-
istæða fyrir Ísland.
Einar var traustur og staðfast-
ur, gat verið meinhæðinn en
meiddi aldrei og svo brosti hann
sínu saklausa brosi og það fór hon-
um svo vel hvað þá þegar hann
brosti til hennar Ágústu sinnar
sem var honum svo öflugur bak-
hjarl, enda voru þau svo sannar-
lega eins og eitt alla tíð.
Það var í rauninni eins og að
lenda í góðu veðri að hitta Einar á
förnum vegi, það fylgdi honum svo
þægileg birta og yfirvegun að
maður sá betur en að öllu jöfnu
raunveruleg verðmæti í lífsins
leik. Einars er sárt saknað. Góður
Guð verndi og varðveiti Ágústu og
fjölskyldu þeirra og vini. Hann er
kominn fyrir Klettsnef himnarík-
isrannsins í öruggri beygju að
bryggjupolla á altari almættisins í
nýtt skipsrúm, afburðamaður.
Árni Johnsen.
Einar Ólafsson, félagi okkar og
vinur, hefur nú, eftir hetjulega
baráttu, orðið að lúta í lægra haldi
fyrir hinum illvíga sjúkdómi,
krabbameini.
Kynni okkar Einars hófust árið
1962 þegar ég réðst sem háseti um
borð í Ófeigi II VE hjá Óla í Skuld.
Þar var Einar 1. vélstj. og hægri
hönd skipstjórans. Með okkur
tókst fljótt góð vinátta. Haustið
1963 tók ég vélstjóranámskeið og
var ráðinn 2. vélstjóri á Ófeig. Þar
fékk ég góða reynslu undir hand-
leiðslu Einars sem var frábær
lærifaðir. Hann var sérstaklega
þolinmóður við strákinn sem
kunni lítið til véla. Innprentaði
mér reglusemi í umgengni við vél-
ar sem ég hef búið að alla mína
vélstjóratíð. Þegar Óli skipstjóri
hætti tók Einar við skipstjórninni.
Þá réð hann mig sem 1. vélstjóra.
Farnaðist Einari vel sem skip-
stjóra og aflaði vel.
Árið 1971 ákváðum við að fara í
útgerð saman. Fengum fyrir-
greiðslu í Útvegsbankanum. Þeir
spurðu, meðal annars: Eigið þið
eyðslusamar eiginkonur? Við lit-
um hvor á annan, sögðum svo ekki
vera. Úr varð að við stofnuðum
fyrirtækið Bessa sf., keyptum
Kap II, 100 tonna bát, og byrjuð-
um róðra um sumarið. Gekk út-
gerðin strax vel. Um haustið var
farið á síld. Næsta haust á eftir
voru síldveiðar bannaðar og voru
nú góð ráð dýr. Þá var ákveðið að
fara á net og gekk langt umfram
væntingar. Oft var slarksamt á
þessum litla bát hér austur á
grunnum og köntum í misjöfnum
haustveðrum og reyndi mikið á
skipstjórann en honum fórst verk-
ið vel úr hendi eins og endranær. Í
júní 1976 festum við kaup á Óskari
Magnússyni frá Akranesi og
nefndum hann Kap II VE-4. Þótti
hann mikið skip á sínum tíma og
reyndist okkur þetta mikið happa-
fley.
Einari voru slysavarnir sjó-
manna hugleiknar. Eftir að ungur
maður lenti í netaspili um borð í
Kap heimsóttum við Sigmund Jó-
hannsson uppfinningamann og
ræddum við hann um hvort hægt
væri að útbúa öryggi á netaspilið
svo það stöðvaðist sjálfkrafa. Kom
hann með fullmótaða teikningu að
spilöryggi. Vélsmiðjan Þór smíð-
aði og setti búnaðinn upp sem
virkaði vel. Þessi útfærsla fór um
borð í bátaflotann á næstu árum. Í
kjölfarið fækkaði þessum slysum.
Nefna má að Gunnar Felixson hjá
TM samþykkti að greiða kostnað-
inn við verkið. Virtum við Gunnar
alltaf fyrir þetta. Árið 1981 sýndi
Sigmund okkur teikningar að fjar-
stýrðum skotgálga til sjósetningar
gúmmíbjörgunarbáta. Þarna var
lausnin komin og var fyrsti skot-
gálginn settur upp og prófaður um
borð í Kap. Sambærilegur búnað-
ur er nú skyldubúnaður í íslenska
flotanum.
Árið 1987 hættum við útgerð og
rerum á önnur mið. Seldum Kap-
ina en Bessa ehf. höfum við rekið
til þessa dags. Eru samstarfsárin
því orðin 43. Margs er að minnast
eftir svo mörg ár. Það er mikil
gæfa að hafa eytt stærstum hluta
ævistarfsins í samvinnu við Einar
og Ágústu konu hans og fjölskyld-
una, enda eru vinaböndin sterk.
Við vottum Ágústu og hennar fjöl-
skyldu okkar dýpstu samúð. Með
söknuði kveðjum við góðan vin og
samstarfsmann.
Fyrir hönd okkar Ásu konu
minnar og allrar fjölskyldunnar,
Ágúst Guðmundsson.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum.
Minningargreinar
Teg. Sedan Vandaðir herra inniskór
hlýir og góðir. Stærðir: 40 - 48
Verð: 4.475.-
Teg. Moscou Vandaðir herra in-
niskór hlýir og góðir. Stærðir: 40 - 46
Verð: 3.975.-
Teg. Raflon Vandaðir herra inniskór
hlýir og góðir. Stærðir: 40 - 48
Verð: 5.475.-
Teg. 608 Vandaðir herra inniskór
hlýir og góðir. Stærðir: 41 - 46
Verð: 3.985.-
Teg: 824 Vandaðir herra inniskór
hlýir og góðir. Stærðir: 41 - 46
Verð: 3.975.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardag 20. des 10 -18
Þóláksmessu: 10 - 20
Aðfangad. 10 - 12
Ath. lokað á sunnudögum
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Teg. 503601 42 Vandaðir og mjúkir
herrainniskór úr leðri. Stærðir: 40 -
46 Verð: 11.800.-
Teg. 314705 12 0037 Vandaðir
herraskór úr mjúku leðri, loðfóðraðir.
Stærðir: 41 - 46 Verð: 17.885.-
Teg. 314701 12 3003 Vandaðir
herraskór úr mjúku leðri, loðfóðraðir.
Stærðir: 41 - 46. Verð: 17.885.-
Teg. 204203 23 000 Klassískir
herraskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 40 - 47. Verð: 16.750.-
Teg: 204203 23 322 Klassískir
herraskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Stærðir: 40 - 47 Verð: 16.750.-
Teg. 53802 482 Vandaðir herra-
kuldaskór úr leðri, fóðraðir með
lambsgæru. Stórar stærðir.
Verð: 29.950.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardag 13. des 10 -16
laugardag 20. des 10 -18
Þorláksmessu: 10 - 20
aðfangad. 10 - 12
Ath. lokað á sunnudögum
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Smáauglýsingar
Ýmislegt
BÍLAR
Sérblað um
bíla fylgir
Morgunblaðinu
alla þriðjudaga