Morgunblaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 ✝ Jónas ÞórirDagbjartsson fæddist í Vest- mannaeyjum 20. ágúst 1926. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Grund 6. desem- ber 2014. Foreldrar Jón- asar voru Mar- grét Runólfs- dóttir, f. 6.6. 1986, og Dagbjartur Gíslason múrarameistari, f. 1.5. 1895. Þau slitu samvistir. Albræður Jónasar Þóris eru Runólfur múrarameistari, f. 21.4. 1923, d. 19.5. 2008, og Kristinn Helgi, verslunarmaður í Reykjavík, f. 16.9. 1942, d. 26.7. 1979. Hálfbróðir sam- feðra er Dagbjartur Kort, f. 16.9. 1942, búfræðingur í Borgarfirði. Hálfbróðir sam- mæðra var Erlendur Hvann- berg Eyjólfsson, f. 23.11. 1919, d. 28.12. 2000. Jónas Þórir kvæntist 8.11. 1947 Ingrid Kristjánsdóttur, f. 5.5. 1926, d. 13.5. 1989. Foreldrar hennar voru Krist- ján Hallgrímsson og Kaja Hallgrímsson, fædd í Halsa, Noregi. Þau voru búsett á Siglufirði. Sambýliskona Jón- Ölmu Auðunsdóttur og Önnu Björgu Auðunsdóttur og barnabörnin eru tvö. Frá fimm ára aldri ólst Jónas Þórir upp hjá Jónasínu Þóru Runólfsdóttur, móð- ursystur sinni, og eiginmanni hennar Þórarni Guðmunds- syni sem gengu honum í for- eldrastað. Hann lærði á fiðlu og trompet í Vestmanna- eyjum hjá Oddgeiri Kristjáns- syni sem barn eða þangað til hann fór til Reykjavíkur og nam þá í Tónlistarskólanum í Reykjavík, fyrst hjá Þorvaldi Steingrímssyni, síðan Birni Ólafssyni og Hans Stephanic. Jónas Þórir lék með ýmsum hljómsveitum sem voru for- verar Sinfóníuhljómsveitar Íslands svo sem Hljómsveit Reykjavíkur, Strengjasveit Tónlistarskólans og Útvarps- hljómsveitinni. Þegar Sinfón- íuhljómsveitin var stofnuð spilaði hann með henni frá upphafi til ársins 1996 eða tæplega hálfa öld. Hann lék þó síðast með Sinfón- íuhljómsveitinni 2001 á Vín- artónleikum. Jónas Þórir lék með ýmsum danshljóm- sveitum frá árinu 1946-1975. Hann var stundakennari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Tónlistarskóla Keflavíkur og þá stjórnaði hann einnig Lúðrasveit Keflavíkur á ár- unum 1969-72. Jarðarför Jónasar Þóris fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 17. desember 2014, kl. 14. asar Þóris frá 1992 er Laufey Karlsdóttir. Börn Jónasar Þóris og Ingrid eru: 1) Margrét Linda Þórisdóttir kenn- ari, f. 26.1. 1948, búsett í Kópavogi, maki Guðmundur Þórðarson lög- maður, þau eiga þrjá syni: a) Guð- mund Inga, maki er Oan, b) Þórð, maki Harpa Rós Heim- isdóttir og eiga þau þrjú börn og c) Jónas Þór, maki Karin Vabson, þau eiga eitt barn. 2) Kristín Þórisdóttir leikskóla- kennari, f. 10.1. 1951, búsett í Kópavogi, maki Karl Jóhann- es Karlsson pípulagn- ingameistari, þau eiga fjögur börn. Þau eru a) Þórir Andri, b) Jóhannes Karl, maki Fann- ey Karlsdóttir og eiga þau þrjú börn, c) Ingrid, unnusti hennar Hjörtur Yngvi Jó- hannsson. 3) Jónas Þórir Þór- isson organisti, f. 28.3. 1956, búsettur í Mosfellsbæ. Kona hans er Rósa Einarsdóttir kennari. Jónas Þórir á fjögur börn, Aron Dalin, Viktor Dí- ar, Isold Ötlu og Egil. Rósa Einarsdóttir á dæturnar Við systkinin, börn Laufeyj- ar, sambýliskonu Jónasar síð- astliðin 23 ár, minnumst hans sem „séntilmanns“. Hann vakti til lífsins brostið hjarta hennar með kurteisi og nærgætni og hafði vinskapur þeirra ómetan- leg áhrif á líf hennar. Hann varð ekkjumaður um sextugt og hún hafði misst hann föður okkar 13 árum áður, aðeins 46 ára gömul, ósátt og þoldi illa alla tilhugalífstilburði manna. En Jónas gaf ekkert slíkt í skyn, hann bað hana bara kurt- eislega að aðstoða sig við að innheimta vinnulaun á fínustu matsölustöðum borgarinnar, en þar spilaði hann gjarnan á fiðl- una fyrir matargesti og var síð- an sjálfum boðið til veislu á móti, en leiddist að sitja einn til borðs. Svona hófst þeirra samband og þannig leið það alla tíð, í vináttu, tillitssemi og gagnkvæmri virðingu. Nú grætur hún vininn sinn besta og leitar að honum. Jónas og mamma ferðuðust víða saman, vinir hennar urðu góðir vinir hans og öfugt og alltaf voru þau ótrúlega sam- heldin og sæt. Í okkar augum var Jónas „elskulegi maðurinn hennar mömmu“, hann varð afi barnanna okkar, alltaf tilbúinn að fagna með okkur og við hvert hátíðlegt tækifæri var hann mættur með fiðluna og gerði litlar hátíðarstundir svo fallegar með dásamlegum hljóðfæraleik við hæfi. Það minnast hans líka eflaust margir nágrannar, bæði þeirra og okkar, fyrir áramótatromp- etleikinn, en það var hefð hjá Jónasi að kveðja hvert ár með stæl. Nú kveðjum við hann hinstu kveðju með þakklæti og virðingu, Aðalheiður, Hjálmar og Sigríður Erla Jónsbörn. Nú á þessum tímamótum hefur afi minn, Jónas Þórir Dagbjartsson, kvatt þennan heim. Það er margs að minn- ast, en eftir stendur þó helst minning um góðan mann sem reyndist mér alltaf vel. Þegar þetta er skrifað eru jólin á næsta leiti og það er óneitanlega skrýtið að afi muni ekki vera með okkur framar yf- ir hátíðarnar. Hann var mikið jólabarn, enda rómantískur í eðli sínu. Mér eru mjög minn- isstæð jólaboðin sem hann hélt hvert ár á jóladag. Þá tók hann á móti stórfjölskyldunni á Flyðrugrandanum þar sem afi og amma áttu svo fallegt heim- ili. Tónlistin ómaði og allir voru glaðir. Sömu sögu má segja um áramótin, þá hafði hann þann sið að stíga út í nóttina á mið- nætti og spila „Nú árið er liðið“ á trompetinn þannig að það bergmálaði allt um kring. Sem barn dáðist ég að þessu uppá- tæki hans, fannst það gera augnablikið mjög hátíðlegt og gefa því ákveðna merkingu. Sjálf hef ég alla tíð haft mjög sterkar taugar til afa. Snemma heillaðist ég af fiðluleiknum og á tónlistarsviðinu hefur hann verið einn af mínum stærstu áhrifavöldum. Hann hafði þá náðargáfu að hrífa fólk með tónlistinni og þar var ég engin undantekning. Ég er afskaplega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast honum og mun minnast hans um ókomna tíð. Ég kveð afa með þessum ljóðlínum úr „Þá var ég ungur“, en það ljóð fór hann oft með og hélt mikið upp á. Er syrtir af nótt, til sængur er mál að ganga, – sæt mun hvíldin eftir vegferð stranga … (Örn Arnarson) Ingrid Karlsdóttir. Mágur minn, einlægur vinur og aðstoðaruppalandi minn, Jónas Þórir Dagbjartsson, hef- ur kvatt þetta líf. Þegar systir mín, Ingrid, og Þórir giftu sig var ég á tíunda ári og fékk þann heiður að vera brúðar- mey. Móðir mín, sem var ekkja eftir að faðir minn drukknaði á stríðsárunum, þurfti að sjá fyr- ir okkur tveim. Þá atvikast það að ég átti mitt annað heimili og mína fjölskyldu rétt eins í Fax- askjólinu hjá þeim og hjá móð- ur minni. En þarna 10 ára göm- ul var mér boðin fyrsta launaða vinnan. Ég skyldi fá 10 krónur fyrir hvert skópar sem ég burstaði fyrir Þóri. En í starfi hans sem hljóðfæraleikari bæði í Sinfóníunni og með hljómsveit Aages Lorange skyldi hann ætíð vera í háglansandi burst- uðum skóm. Ég lít síðan alltaf svo á að hann hafi verið minn fyrsti launagreiðandi. Á þessum tíma minnist ég þess þegar mig langaði að fara með vinkonu minni í Tívolí. Ég, staurblönk 10 ára hnáta. En ég taldi mig geta unnið úr þessu vandamáli. Ég tók mig til og burstaði skóna hans mágs míns, fór með þá til hans og rukkaði hann fyrir verkið. „Heyrðu Kittý mín, er ég ekki nýbúinn að greiða þér fyrir að bursta þessa sömu skó? Nú ertu að reyna að plata mig!“ Ég gat ekki annað en viður- kennt óheilindi mín, en í Tívolí fór ég þó og meira að segja með 20 krónur. Þarna lærði ég að heiðarleiki ætti alltaf að vera í fyrirrúmi, maður sleppur ekki svo létt. Ég taldi mig eiga jafnmikið í börnunum þeirra, þeim Mar- gréti Lindu, Kristínu og Jónasi Þóri, og fannst ég bera jafn- mikla ábyrgð á þeim og for- eldrarnir. Öll systkinin hafa komist vel áfram í lífinu, sem ég er nú ekki að þakka mér, og eiga þau yndislegar fjölskyldur sem Þórir hefur verið afar stoltur og þakklátur fyrir. Eft- ir að móðir þeirra lést, langt fyrir aldur fram, hafa þau hugsað einstaklega vel um pabba sinn og gert allt til að honum liði sem best. Það var alla tíð mikill sam- gangur á milli okkar fjöl- skyldnanna. Við bökuðum sam- an fyrir jól og páska og þá dugði ekki minna en 14 smá- kökusortir. Stórhátíðum deild- um við lengi vel saman. Fórum í berjamó og sultuðum og söft- uðum saman. Fórum meira að segja í partí og á böll með þeirra vinum – og geri aðrir betur. Að drusla litlu systur og mági með sér eins og þau gerðu. Jafnframt komu þau vel inn í okkar vinahóp. Við hjónin eigum ekkert nema góðar og fallegar minningar frá þessum tíma. Fyrir mig er mikill missir að Þóri, hann var í rauninni sá eini sem ég átti eftir af okkar litlu fjölskyldu sem ég leit á sem verndara minn og vin, en hann fylgdist alla tíð mjög vel með mér og mínum. Við hjónin þökkum fyrir yndislegar minningar sem við geymum í huganum. Bið góðan Guð að vera með þeim sem eft- ir lifa og sakna yndislegs föður, afa og vinar. Kristíana Kristjánsdóttir. Kveðja frá Lúðrasveit Reykjavíkur Það er athyglisverð stað- reynd í tónlistarsögu okkar hve margir fiðluleikarar af fyrstu kynslóð atvinnumanna voru einnig góðir blásarar og alhliða músíkantar. Að nokkru stafar þetta af þörf manna til að hafa næga atvinnu af list sinni, en segir einnig nokkuð um viðhorf þessara manna til tónlistar. Það er mín skoðun að þessi staðreynd hafi mjög orðið ís- lensku tónlistarlífi til góðs. Á veitinga- og danshúsum bæjar- ins var tónlist í hæsta gæða- flokki og þegar menn sneru sér að kennslu var það af meiri víð- sýni en ella. Lúðrasveit Reykjavíkur naut í áratugi ómældrar atorku þessara manna og tryggðar. Með þessum kveðju- og þakk- arorðum til Jónasar Dagbjarts- sonar tel ég við hæfi að nefna nokkra af hans bestu vinum úr strengjadeildinni, en jafnframt góða félaga í Lúðrasveit Reykjavíkur: Þorvald Stein- grímsson, Jóhannes Eggerts- son, Svein Ólafsson, Skafta Sigþórsson og Óskar Cortes. Fyrir unglinga sem voru að feta sín fyrstu spor í tónlist upp úr miðri síðustu öld, við takmarkað framboð af kennslu, var ómetanlegt að kynnast þessum mönnum. Njóta við- horfs þeirra til tónlistar, sem einkenndist af ljúfmennsku og hógværð, en einnig af ríkum metnaði, gæðakröfum og víð- sýni. Við fengum tækifæri til að leika með þeim og fyrir það er nú þakkað við fráfall Jón- asar Dagbjartssonar. Jónas gekk í Lúðrasveit Reykjavíkur vel fyrir miðja síðustu öld og starfaði fram á áttunda áratug. Hann var frá- bær félagi og lá aldrei á liði sínu. Jónas var ávallt hrókur alls fagnaðar í pásum og þegar komið var saman til að gleðj- ast, og hann var góður sögu- maður. Hann var frábær tón- listarmaður, setti ávallt mark á leik sveitarinnar og miðlaði öðrum af sinni miklu leik- reynslu og þekkingu. Hann lék á fyrsta kornett með sveitinni í tveimur stærstu tónleikaferð- um hennar, til Færeyja 1964 og Vesturheims 1972. Félagar í Lúðrasveit Reykjavíkur þakka Jónasi frá- bært starf fyrir sveitina og votta aðstandendum hans sam- úð og virðingu. Sverrir Sveinsson. Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt sína fyrstu tónleika fimmtudaginn 9. mars árið 1950 í Austurbæjarbíói. Hljóm- sveitina skipuðu þá 40 hljóð- færaleikarar. Erfitt er að gera sér í hug- arlund upplifun hljóðfæraleik- aranna af þessum fyrstu tón- leikum en ljóst að eftirvæntingin var mikil. Á for- síðu Vísis var skrifað að hljóm- sveitin væri „skipuð betri kröftum og betur æfð en nokk- ur hljómsveit sem hér hefir verið til áður“. Jónas Þórir Dagbjartsson fiðluleikari, sem nú er látinn, var einn þeirra kröftugu og vel æfðu hljóð- færaleikara sem léku á þessum upphafstónleikum. Hann lék með Sinfóníuhljómsveit Íslands í 46 ár. Hjá Jónasi Þóri kviknaði ástríðan fyrir tónlistinni á unga aldri eftir að hafa heyrt leikið á fiðlu. Sem barn fékk hann að læra á fiðlu og trompet og stundaði síðar nám við Tónlist- arskólann í Reykjavík. Síðar átti hann sjálfur eftir að kenna tónlist víða á höfuðborgar- svæðinu. Hljómsveitarleikur á sér ekki langa sögu á Íslandi. Víða erlendis er það þekkt að fjöl- skyldur geti rakið hljómsveit- arspilara langt aftur í aldir og þannig byggst upp dýrmæt fagþekking kynslóð fram af kynslóð. Það voru frumkvöðlar á borð við Jónas Dagbjartsson sem hófu hljómsveitarleikinn á Íslandi. Nú hefur Jónas Dagbjarts- son lokið sinni lífsgöngu. Við sem byggjum á arfleifð hans þökkum hans mikla framlag til Sinfóníuhljómsveitar Íslands og sendum aðstandendum inni- legar samúðarkveðjur. Arna Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfón- íuhljómsveitar Íslands. Með Jónasi Dagbjartssyni er genginn einn af frumherjunum sem fylltu raðir nýstofnaðrar Sinfóníuhljómsveitar Íslands á fyrstu tónleikum hennar 9. mars 1950. Jónas fylgdi síðan hljómsveitinni alla sína starfs- ævi. Hann var snjall fiðluleik- ari en lék einnig listavel á trompet. Kynntist ég honum fyrst sem unglingur í Lúðra- sveit Reykjavíkur. Þegar ég gekk í raðir Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands nokkrum árum tók Jónas mér opnum örmum líkt og öllum öðrum nýgræð- ingum en honum var eðlislægt að að láta menn finna áþreif- anlega að þeir væru velkomnir. Veit ég að mörgum erlendum félögum okkar í hljómsveitinni er þessi hlýja Jónasar í garð þeirra minnisstæð og dýrmæt. Sem kollegi var hann ætíð ljúf- ur og umgekkst alla af alúð og virðingu. Jónas var einkar fjölhæfur tónlistarmaður og lék jöfnum höndum hinar ýmsu tónlistar- tegundir. Hann hafði sérstakt dálæti á Vínartónlist og hafði hinn vandmeðfarna Vínarstíl fullkomlega á valdi sínu. Var hann allt fram á síðari ár eft- irsóttur „dinnermúsikant“ á hátíðarstundum þar sem hann yljaði gestum með ljúfum tón- um úr fiðlunni sinni. Jónas var mikill gleðimaður og hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi og eru samveru- stundir eftir tónleika á tón- leikaferðalögum Sinfóníu- hljómsveitarinnar einkum minnisstæðar. Það ríkir birta yfir minningu Jónasar Dagbjartssonar og þakka ég honum samfylgdina af alhug. Sigurður Ingvi Snorrason. Þær halda áfram að þynnast raðir frumkvöðlanna sem lögðu grunn að Sinfóníuhljómsveit Íslands. Nú síðast er horfinn af sviðinu kær vinur og sessu- nautur til hartnær fimmtán ára, Jónas Dagbjartsson. Jónas var einn af fyrstu starfsmönnum Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands við stofnun hennar árið 1950 en allt frá árinu 1943, þegar hann var að- eins sautján ára að aldri, lék Jónas með Hljómsveit Reykja- víkur og Útvarpshljómsveitinni sem voru undanfarar sinfóní- unnar. Tónlistarnám hans var ekki langt en hæfileikarnir því meiri. Þótt fiðlan yrði hans aðal- hljóðfæri var hann einnig lið- tækur á önnur hljóðfæri, eink- um trompet. Tónlistarkennarar hans voru Oddgeir Kristjáns- son, Hans Stephanek, Björn Ólafsson og Þorvaldur Stein- grímsson, sem var einn hans besti vinur. Annar góðvinur var Björn R. Einarsson, sem er nýlátinn, en Björn og Jónas deildu yfirleitt herbergi í tón- leikaferðum hljómsveitarinnar. Þeir félagar fengu viðurnefnið Hiltonbræður sökum þess hversu líkt því að mæta á Hil- ton-hótel það var að kíkja í heimsókn til þeirra, bæði hvað viðvék umhverfi og viðurgjörn- ingi. Fyrstu ár sinfóníunnar voru mikil mótunarár. Olav Kiell- and, skapmikill maður frá Nor- egi, var ráðinn aðalhljómsveit- arstjóri og hafði hann geipileg áhrif á þá sem þátt tóku. Þar sem ekki var um auðugan garð að gresja í launum hjá sinfóní- unni þurftu starfsmenn að drýgja tekjurnar með ýmiskon- ar aukavinnu, m.a. að spila fyr- ir dansi langt fram á nótt. Voru menn því oft ansi slæptir á morgunæfingum og tók aðal- hljómsveitarstjórinn því ekki alltaf með jafnaðargeði. Kiell- and vakti bæði ótta og elsku meðal hljómsveitarmanna og eru til ótal sögur af samskipt- um þeirra. Jónas kunni þær allar og var unun að heyra hann segja frá enda hafði hann sjálfur svo gaman af og hló sín- um smitandi, dillandi hlátri. Til merkis um músikalítet Jónasar má nefna Vínartón- leika fyrir margt löngu þegar hljómsveitarstjórinn Willy Boskowsky, sem var einn virt- asti hljómsveitarstjóri slíkra tónleika, var fenginn til að stjórna hljómsveitinni. Boskowsy var ekki rétt ánægður með túlkun hljóm- sveitarinnar og lét það óspart í ljósi nema hann benti á Jónas og sagði: „Sjáið þennan mann. Hann kann þetta, hann skilur þessa tónlist!“ Jónas var skemmtilegur maður; léttur og kvikur á fæti, með ríka kímnigáfu og glit í auga. Hann var jafnan í essinu sínu á tónleikum, átti það til að víkja að manni athugasemdum meðan setið var á sviði og beðið eftir upphafi tónleika, svo að bágt var að halda aftur af hlátri. Jónas er einn af þeim sem gáfu allt sitt til að Sinfóníu- hljómsveit Íslands mætti verða að veruleika og eiga hann og félagar hans ómældar þakkir skilið. Að vera þeirrar gæfu að- njótandi að sitja á sama púlti og Jónas Dagbjartsson í fimm- Jónas Þórir Dagbjartsson Hvort fær kona gleymt brjóstbarni sínu að hún miskunni eigi lífsafkvæmi sínu? Og þó að þær gætu gleymt þá gleymi ég þér samt ekki. Ég hef rist þig í lófa mér. ✝ Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN HARALDSDÓTTIR saumakona, lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn 11. desember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 19. desember kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið eða Styrktarfélag barna með einhverfu. Bragi S. Ólafsson, Sigþrúður Bergsdóttir, Marlín Birna Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.