Morgunblaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 Magimix matvinnsluvélar, blandarar og safapressur. Kaffivélar fyrir Nespresso og kaffi frá Caffé Vergnano fyrir Nespressovélar. vi lb or ga @ ce nt ru m .is Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is J Ó L AT I L B O Ð Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Vinnuflæðið milli kóranna ersérlega skemmtilegt,strákarnir verða svolítiðtrekktir að mæta Kötl- unum og það brýst út í gauragangi. Þetta er smá fyrirtíðaspenna hjá strákunum, en ég tala þá til og stemningin er alltaf sérlega góð á tónleikum og líka í partíum með stelpunum,“ segir Jón Svavar Jós- efsson, kórstjóri Karlakórsins Bar- tóna, þar sem hann og Lilja Dögg Gunnarsdóttir, annar stjórnandi kvennakórs Katlanna, koma saman til að plana næstu æfingu því kór- arnir ætla að vera með jólatónleika á morgun, fimmtudag. Samstýra Lilju Daggar er Hildigunnur Einarsdóttir, en sönggleðin er í fyrirrúmi hjá báð- um kórunum, þó að ekki sé slegið af kröfunum. „Að finna töfrana í sam- söng er einstakt, það þekkja þeir sem reynt hafa. Það eru líffræðilegar ástæður fyrir því að fólk vill vera í kór, því við losum um náttúrulegt gleðihormón, serótín, þegar við syngjum, og við losum líka um kvíða- stillandi hormón,“ segir Lilja Dögg. Kórstjóri að eilífu og alvaldur „Við Kötlurnar erum duglegar við að útsetja þannig að við skiptum laglínum milli radda. Við erum ekk- ert að setja okkur fyrirfram gefnar fastar reglur, við erum í flæði í sköpuninni og það skilar sér inn í sönggleðina og framkomusjarmann,“ segir Lilja Dögg, en Jón Svavar seg- ist ekki þora að vinna með slíkt flæði hjá piltunum. „Ég get til dæmis ekki beðið strákana mína um að gera hljóðverk, þeir eru lítið fyrir að fara út fyrir rammann, það er munurinn á þessum tveimur kórum,“ segir hann og hlær. „Stelpurnar verða stundum pirraðar af því að þeim finnst strák- arnir ekki nógu fljótir, það er þeirra Guðdómlegar gyðjur og hvirfil- vindar kynþokkans Jú, hann lekur vissulega af þeim kynþokkinn strákunum sem þenja brjóst í söng og ekki eru þær síður heillandi stelpurnar hverra hljómi og framkomu hefur verið líkt við kröftugt eldgos. Sönggleðin og sprellið er í fyrirrúmi hjá karlakórnum Bar- tónum og kvennakórnum Kötlunum, en þó er ekkert slegið af kröfunum í söngn- um. Þau ætla að syngja saman inn jólin og lofa gleði, glimmeri og geðveiki. Vanda sig Piltarnir einbeittir í söngnum eins og glögglega má sjá hér. Morgunblaðið/Golli Handapat Jón Svavar baðar út höndum við stjórnun Katla og Bartóna. Það má vissulega breyta örlítið út af vananum þegar jólatréð er skreytt, ekki satt? Á vefnum www.realsimple- .com er að finna ótal fínar hugmyndir að einföldum en góðum skreytingum fyrir jólatréð, jólaborðið og flest sem hefur forskeytið „jóla“. Hvað jólatréð snertir er bent á nokkur lykilatriði sem vert er að hafa í huga. Til að mynda er gott að litirnir séu djúpir þannig að þeir tóni skemmtilega við iðjagrænt grenið. Með því að halda sig við sömu litafjölskylduna má föndra vel og lengi við skreytinguna. Önnur hugmynd er að ákveða eitt- hvert þema fyrir hver jól og skreyta tréð með svipuðu skrauti frá toppi og niður. Einnig getur verið skemmtilegt að blanda saman gömlu og nýju skrauti. Til dæmis með því að setja gamla skrautið hennar ömmu inn á milli þess skrauts sem börnin hafa útbúið í skólanum. Vefsíðan www.realsimple.com/holidays-entertaining Morgunblaðið/Kristinn Hugmyndir Skreyta má jólatréð með ýmsu móti og það þarf ekki að vera flókið. Sniðugar jólatrésskreytingar Nú fer hver að verða síðastur til að sjá sýningu um Tove Jansson og Múmínálfana en hún er haldin í Barnahelli bókasafns Norræna húss- ins. Sýningin er opin frá klukkan 12 til 17 og er síðasti sýningardagur sunnudagurinn 21. desember. Endilega … … skoðið Múm- ínálfasýningu Skoðið Sýningu lýkur á sunnudag. Sumir telja ómögulegt að temja sér hollari lífshætti án þess að það komi niður á lífsgæðunum. Það þarf alls ekki að vera rétt, eins og fram kemur í nýlegri grein blaðamanns breska blaðsins The Guardian. Hann segir að fyrsta skrefið sé að venja sig á að borða staðgóðan morgunverð sem inniheldur prótín. Stungið er upp á tveimur hrærðum eggjum og eins og lúkufylli af spínati. Í öðru lagi er talið þjóðráð að draga úr drykkju sykraðra drykkja og þá einkum gosdrykkja. Stungið er upp á að drekka heldur kolsýrt vatn og setja sítrónusneið út í það. Hér á landi getum við að sjálf- sögðu drukkið kranavatn daginn út og inn. Í þriðja lagi er mælt með því að koma sér upp „varaleiðum“. Ef ekki tekst að snæða morgunverð væri gott að eiga hnetur, banana eða gulrætur til vara sem hægt er að maula á leiðinni í vinnuna. Það kann að koma spánskt fyrir sjónir að stungið sé upp á því að borða meira af sætum kartöflum. Þær eru bæði ríkar af A-vítamíni og kalíumi og þær má matreiða með ýmsum hætti. Hafi sætu kartöflurnar komið einhverjum spánskt fyrir sjón- ir þá hlýtur þetta ráð að kollvarpa öllu: Borðið meira smjör! Það má segja að smjörið hafi fengið vissa endurreisn þegar dr. Aseem Malhotra sýndi fram á hversu ríkt smjör er af D-vítamíni, fosfór og kalki. Smjörið þarf að sjálfsögðu að vera ekta til þess að innihalda efnin í einhverju magni. Einnig er mælt með neyslu brokkólís sem inniheldur aragrúa bætiefna rétt eins og spínatið. Flestir ættu að geta verið sammála um að hófleg neysla áfengis sé lykill að góðri heilsu og til að lifrin haldist í lagi er talið gagnlegt og gott að sleppa öllu áfengi samfleytt í 48 klst. á viku hið minnsta. Síðast en ekki síst skal nefnt að sem minnst unnar matvörur séu betri fyrir heilsu fólks en unnar vörur. Því styttri innihaldslýsing á matvörum þeim mun betra! Matur er mannsins megin Breytt mataræði ekki á kostnað lífsgæða Morgunblaðið/Golli Hollt? Gæta þarf jafnvægis í neyslumynstri til að fæðan nýtist sem best. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.