Morgunblaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014
Ármúla 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn.is | www.gahusgogn.is
GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á
íslenskum markaði um árabil. Við leggjum áherslu á
stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu.
Við tökum málin þín
í okkar hendur
Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki
Jólagjöf gr i l lmeistarans
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Kjúklingastandur
Hamborgarapressa
FULLT VERÐ
5.500
4.500
Þráðlaus kjöthitamælir
Ljós á grill
Pítsusteinn
FULLT VERÐ
8.990
5.99015”
FULLT VERÐ
7.990
5.990
Spaði og
skeri fylgja
FULLT VERÐ
4.490
3.490
Einstökupplifun
Stilltu á kjöttegund og
steikingu. Mælirinn lætur vita
þegar maturinn er tilbúinn
Fyrir grill ogofna
FULLT VERÐ
4.990
3.990
LED
Stillanlegþykkt
verðsveiflur, brælur á sjó, ófærð á
landi og á stundum meiri flutn-
ingskostnað.“
Hægt að kaffæra markaði
Guðmundur telur að horfur fyrir
næsta ár séu góðar og staðan sé í
heildina mun betri nú en hún var
fyrir ári.
„Eitt af lykilatriðunum er þó
hvernig veðrið verður á Íslandi og
Norður-Noregi í janúar, febrúar
og mars. Ef það verða brælur þá
helst verðið á fersku afurðunum
uppi, en ef það verða blíður veiðist
meira og mjög hratt í Noregi frá
því í janúar og fram í maí. Þá geta
komið vikur sem markaðurinn
verður hreinlega kaffærður í fiski.
Þá er vertíðin í algleymingi í Nor-
egi og þeir moka vertíðarfiski á
land,“ segir Guðmundur.
Hækkun á ferskum
fiski og góðar horfur
Á línu Þorskflök og bitar hafa átt vinsældum að fagna í Frakklandi.
Valgeir Magnússon beitir línuna um borð í línuskipinu Önnu EA 305.
Sterk staða í þorskflökum og bitum í Frakklandi
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Verð á ferskum fiski hefur hækkað
í ár og vel hefur gengið að selja
þessar afurðir. Vaxandi hluti er
fluttur út ferskur og þorskflök og
bitar hafa átt vinsældum að fagna í
Frakklandi, sem er stærsti mark-
aðurinn fyrir ferskar afurðir. Útlit-
ið er talið gott fyrir næsta ár.
Guðmundur Jónasson, deildar-
stjóri ferskfiskdeildar Iceland Sea-
food, Tros, segir að í haust hafi
verðhækkun fyrir ferska hnakka
inn á Frakklandsmarkað verið í
kringum 15%. Íslendingar séu
stærstir á Frakklandsmarkaði í
ferskum þorskhnökkum og hafi
aukið magnið úr um fjögur þúsund
tonnum 2011 í um níu þúsund tonn
í fyrra.
Mun minni birgðir
Guðmundur segir að 2013 hafi í
sjálfu sér gengið vel að selja fersk-
an fisk frá Íslandi, en lækkun hafi
orðið í flestum vörutegundum. Á
tímabili í fyrra hafi mikið magn
verið sett í ferskar afurðir, en í ár
hafi birgðir minnkað verulega á
flestum mörkuðum, sama hvort um
sé að ræða t.d. saltfisk í Suður-
Evrópu eða frystan fisk í Kína.
Samkeppnin sé því að verða eðli-
leg, sem hafi leitt til verðhækk-
unar.
Á Bretlandsmarkaði hafa fersk-
ar þorskafurðir frá Íslandi átt und-
ir högg að sækja og þorskur úr
Barentshafinu sótt fram. „Breski
markaðurinn er visst áhyggjuefni
því Bretar hafa í auknum mæli
keypt frystan, hausaðan línufisk af
Norðmönnum og þítt hann upp
sjálfir,“ segir Guðmundur.
Norski fiskurinn þíddur
upp og unninn í Bretlandi
„Fiskinn flaka þeir í Skotlandi
eða Grimsby og þó svo að fiskurinn
sé uppþíddur fá þeir MSC-vottun
fyrir línufisk. Vinnslan er ódýr hjá
þeim sem kemur sér vel þar sem
víða í Evrópu eimir enn eftir af
kreppunni og allir fá eitthvað fyrir
sinn snúð, hvort sem um er að
ræða milliliði, vinnslu eða stór-
markaði.
Norðmenn losna við sína vöru og
eru í raun hráefnisland í þessum
útflutningi. Þeir geta hins vegar
boðið stöðugleika í framboði, með
jafnaðarverði til lengri tíma. Við
þurfum hins vegar að glíma við
Þrátt fyrir tíðar brælur hefur
fiskast þokkalega síðustu vikur
og sömuleiðis gengið vel að koma
vörunni til viðskiptavina erlendis.
„Það er helst ófærðin hérna inn-
anlands sem hefur gert okkur
erfitt fyrir og stundum er þetta
mikið púsl,“ segir Guðmundur
Jónasson hjá Iceland Seafood.
Tíminn er dýrmætur þegar fersk-
ur fiskur á í hlut.
„Fyrst þarf að koma fiskinum í
vinnslurnar, svo unninni vöru til
flutningsaðila og til viðskiptavina
erlendis, annaðhvort með skipi
eða flugvél. Stundum hefur þetta
verið þrautin þyngri og skipulag-
ið riðlast, því ef fiskurinn missir
af flugi þarf að koma honum í
annað flug og oft er undir hælinn
lagt hvort pláss er í þeirri vél.
Við erum með samninga um
magn og afhendingartíma við okk-
ar viðskiptavini sem fylgjast vel
með. Við erum duglegir að senda
þeim veðurupplýsingar svo þeir
skilji hvað við erum að glíma við
og þeir vita að við getum lítið gert
þegar náttúran er annars vegar.
Ég sendi þeim oft kort Vega-
gerðarinnar sem sýnir rauðar línur
og upplýsingar um að bíllinn með
fiskinn þeirra sé fastur á tiltekn-
um stað. Það þarf heldur ekki
mörg orð um blindbylinn í dag
þegar þeir sjá mynd sem tekin er
út um skrifstofugluggann. Þeir
skilja vandann því hjá þeim fer allt
úr skorðum við minnstu snjóföl,“
segir Guðmundur.
Senda viðskiptavinum myndir
af kortum Vegagerðarinnar
MIKIÐ PÚSL VEGNA ÓFÆRÐAR INNANLANDS
„Málum er þannig háttað að ekki
hefur verið fundað hjá ríkissátta-
semjara í tólf daga. Fundur hefur
að vísu verið boðaður á fimmtudag-
inn en það er bara vegna þess að
sáttasemjara ber að boða til fundar
á tveggja vikna fresti. En það þýðir
ekki að eitthvað sé að gerast,“ segir
Maríus Sigurjónsson, formaður
samninganefndar flugvirkja, í sam-
tali við mbl.is.
Flugvirkjar hjá Landhelgisgæslu
Íslands hafa boðað til ótímabundins
verkfalls frá því á miðnætti 5. jan-
úar. Kjaradeilu þeirra var vísað til
ríkissáttasemjara í lok október.
Maríus segir að deilan snúist fyrst
og fremst um þá kröfu samninga-
nefndar ríkisins að horfið verði frá
því fyrirkomulagi að miða kjör
flugvirkja Gæslunnar við kjör flug-
virkja sem starfa fyrir Icelandair.
Flugvirkjar Landhelgisgæslunnar
boða til ótímabundins verkfalls í janúar