Morgunblaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 Héraðsdómur Reykjavíkur Dómsmálin verða að hafa sinn gang, hvernig sem viðrar, og í héraðsdómi sjá uppáklæddir menn um að sópa tröppurnar þegar á þarf að halda eins og í gær. Ómar Íslenski skattgreið- andinn á fáa vini en fjölmarga óvildarmenn sem nýta hvert tæki- færið sem gefst til að sækja að honum. Þeir stjórnmálamenn sem reyna að taka upp hanskann fyrir skatt- greiðandann – gerast talsmenn hans – eru úthrópaðir og sumir sakaðir um að vera „óbilgjarnir öfgasinnar“. Skattgreiðandinn er því í stöð- ugri vörn. Af vanmætti reynir hann að verjast krumlu hins opinbera sem seilist æ dýpra í vasa hans. Barátta skattgreiðandans fyrir að fá að ráðstafa sjálfur sem mestu af sjálfsaflafé sínu er hins vegar ójöfn. Kröftugir sérhags- munahópar hvetja skattmann áfram og þeir eru studdir af öfl- ugum fjölmiðlum. Snjallir pennar, vinsælir lista- menn, háskólakennarar og starfs- menn fjölmiðla taka þátt í eineltinu gegn skattgreiðandanum sem á takmarkaða möguleika á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Penninn leikur ekki í höndum skattgreiðandans og ekki er hann svo lagviss að hann geti boðað til útitónleika til að mótmæla. Að- gangur hans að ríkisreknum fjöl- miðli er í besta falli takmarkaður og eins víst að þar verði málstaður hans skrumskældur. Öllu snúið á hvolf Í baráttunni gegn skattgreiðandanum er leyfilegt að snúa öllu á hvolf. Jafnvel kennarar við Háskóla Íslands – prófessorar, lektorar og aðjunktar – telja réttlætanlegt að fara fram með rangar eða villandi fullyrðingar í ályktun sem send var þingmönnum. Þar er því haldið fram að fé til Ríkisútvarpsins hafi „verið skorið niður um 30% á undanförnum ár- um“. Ég veit hreinlega ekki hvort er verra að háskólakennarar fari vís- vitandi fram með villandi staðhæf- ingar eða að þeir hafi ekki haft fyrir því að kynna sér staðreyndir, líkt og þeir hljóta að leggja áherslu á að nemendur þeirra geri. Það er a.m.k. nokkur kokhreysti af háskólakennurum að setja fram fullyrðingu um niðurskurð á fjár- veitingum til Ríkisútvarpsins þegar það liggur fyrir að framlag skatt- greiðandans verður 485 milljónum krónum hærra á komandi ári en árið 2013. Hvernig fræðimenn við æðstu menntastofnun landsins geta komist að því að skattgreiðandinn sé með því að „vega að grundvelli stofn- unarinnar sem getur þá ekki sinnt lögbundnum verkefnum sínum leng- ur“ er ekki aðeins óskiljanlegt held- ur ósvífið. Þeir háskólakennarar sem skrif- uðu undir ályktunina eru greinilega sannfærðir um að flest vandamál sé hægt að leysa með því að ausa fjár- munum úr vasa skattgreiðandans. Hvort vel sé farið með peningana og þeir nýttir með hagkvæmum hætti er spurning sem fræðimennirnir velta ekki fyrir sér. Skattgreiðand- inn fær auðvitað ekkert um það að segja hvort hann vilji nota nær 3.700 milljónir króna til að styðja við list- ir, menningu, kvikmynda- og dag- skrárgerð með öðrum hætti en með umfangsmiklum rekstri ríkisfjöl- miðils. Hugmyndir um að leysa allan vanda í rekstri ríkisins með auknum fjármunum eru úr sama jarðvegi og hugmyndir um sérstakan „of- urskatt“ á tekjur einstaklinga. Fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna lagði til fyrir nokkrum ár- um að tekið yrði upp nýtt 60-70% skattþrep á tekjur yfir eina milljóna á mánuði. Ekki gátu þingmenn Samfylkingarinnar verið eftirbátar og einn þeirra boðaði 80% skatt- þrep. Hættulegasti tíminn Hættulegasti tíminn fyrir skatt- greiðandann er undir lok hvers árs. Á aðventunni fara sérhagsmuna- hópar á stjá til að tryggja sína hags- muni við afgreiðslu fjárlaga kom- andi árs. Þar er krafan ekki um lægri skatta, lægri útgjöld eða að- hald og sparnað í ríkisrekstri. Ákall- ið er alltaf á aukin útgjöld sem skattgreiðandinn skal með góðu eða illu standa undir. Jafnvel stjórn opinbers fyrirtækis telur rétt að taka þátt í leiknum og krefjast meiri fjármuna frá skatt- greiðandanum. Og svo hart er geng- ið fram að talið er nauðsynlegt að ráðast á gamlan pólitískan samherja með dylgjum, fyrir það eitt að hafa tekið sér stöðu með skattgreiðand- anum. Það er í þessu andrúmslofti sem talsmaður sérhagsmuna boðar úti- tónleika og segir í samtali við mbl.is: „Þarna er í sjálfu sér bara verið að biðja menn um að leyfa okkur að horfast blygðunarlaust í augu við sjálf okkur í sameiginlegum skjá okkar allra. Það er að við fáum að borga okkar útvarpsgjald með at- fylgi ríkisins í stað þess að þurfa að fara að efna til söfnunar og sam- skota.“ Jón Magnússon, hæstarétt- arlögmaður og fyrrverandi þing- maður, er einn fárra vina skatt- greiðandans. Á bloggsíðu sinni skrifar hann: „Mér finnst það … öfgar hjá öll- um þeim sem telja rétt að svipta mig og aðra frelsi til að vera áskrif- endur að eða ekki áskrifendur að RÚV. Þeir eru að stela peningunum okkar til að þjóna lund sinni. Er slíkur þjófnaður á annarra fé með samþykki meirihluta Alþingis ekki mun frekar brot á réttindum frjáls- borins fólks til að ráða málum sín- um sjálft? Hver er þá óbilgjarn öfgasinni? Sá sem vill frelsi eða sá sem vill halda við helsi og frelsisskerðingu?“ Dreginn á asnaeyrunum Engu er líkara en að í aðdrag- anda síðustu kosninga hafi verið reynt að hafa skattgreiðandann að fífli. Allir stjórnmálaflokkar hétu honum að forgangsraða í ríkisút- gjöldum og sumir lofuðu einnig að létta af honum byrðunum. For- gangsröðunin var í þágu heilbrigð- iskerfisins, menntakerfisins, al- mannatrygginga, samgangna og löggæslu. Enginn lofaði því að auka ríkisútgjöld til Ríkisútvarpsins eða flytja ríkisstofnanir hreppaflutn- ingum fyrir hundruð milljóna. Skattgreiðandinn minnist þess heldur ekki að nokkur frambjóðandi hafi haft í hótunum um að leggja á hann sérstakan nýjan skatt svo hann hafi „leyfi“ til að fara um land- ið líkt og forfeður hans hafa gert í upphafi byggðar. Á aðventunni er íslenski skatt- greiðandinn því fremur einmana, hrakinn og barinn. Sérhags- munahóparnir hafa alltaf litið á að- ventuna sem sérstaka uppskeru- hátíð og að eðlilegt sé að reikningurinn sé sendur til þess sem litlar varnir hefur. Eftir Óla Björn Kárason »Hættulegasti tíminn fyrir skattgreiðand- ann er undir lok hvers árs. Á aðventunni fara sérhagsmunahópar á stjá til að tryggja sína hagsmuni. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokks. Hann er einmana, hrakinn og barinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.